Já thetta er alveg rétt hjá thér Dagný med lestarstödvarnar og flugvellina. Ég slekk alltaf ósjálfrátt á mér á svona stödum, er bara í einhverri leidslu. Styttist thá ekki lífid um thann tíma sem madur eydir í U-Bahn og bidsölum?
Ég er flutt inní íbúdina og thad er bara ad verda svolítid saett hjá mér. Mér finnst best hvad eldhúsid er stórt og bjart og haegt ad sitja thar í sólbadi innum gluggann med kaffibolla. Samt er einsog einhver lykt umljúki mig og loftid er thykkt. Fyrri leigendur reyktu sko. Thetta lagast vonandi thegar madur er búinn ad elda nokkrum sinnum...
Tóti er farinn og thad er dálítid einmannalegt. Ég hef aldrei búid alein ádur og var einsog asni í gaerkvöldi, líka afthví graejurnar eru biladar. Thad var thögn og ég prófadi fyrst ad vera inní eldhúsi, svo stofu og svo fór ég bara í rúmid.
Thad eru samt rosalega naes stelpur á haedinni minni. Thaer eru búnar ad gefa mér köku og svo hjálpudu thaer mér ad brjótast inn til mín í morgun thegar ég laesti mig úti.
Vid bjuggum til vírlykkju og festum band sitthvorumegin í hana. Svo tródum vid henni innum falsinn efst á hurdinni og létum hana detta nidur medan vid héldum í bandid. Svo fiskudum vid bandid hinumegin á lykkjunni undan raufinni undir hurdinni med reglustiku og vírlykkjan kraektist utan um húninn ad innanverdu og vid togudum í bandid ad nedan. Og eftir nokkrar tilraunir og endurbaetur opnudust dyrnar!!! Med thessu sparadi ég 20.000 krónur sem slökkvilidid var búid ad hóta ad láta mig borga.
Jaeja best ad fara í baeinn ad redda leidinlegum hlutum a la Deutschland...
Mútsjos Kvedjur. Hvad er ad gerast á Íslandi?
