miðvikudagur, desember 21

afmæli og jól

Já, ég verð 25 ára 25/12 2005! Ykkur er öllum hér með boðið að fagna með mér og Önnu Lennon (sem á afmæli 28/12) á Alþjóðahúsinu 26/12. Mæting upp úr 22:30.

Gleðileg jól elskunar og ég vonast til að sjá ykkur sem flest.

þriðjudagur, desember 20

Tónleikar

Nemandi minn hélt einkatónleika fyrir fjölskylduna og mig ádan. Hann var bara asskoti gódur. Svoleidis crescendo diminuendo hjá stráknum ég skal segja ykkur thad.

Ég bakadi smákökur í nótt eftir ad hafa búid til 50 ljótustu jólakort aldarinnar í flýti, (var ad hugsa um ad skrifa afsökunarbeidni aftaná en fannst thad ekki nógu mikil stemmning, en thid vitid thad thá), farid á fyrirlestur, aeft mig, thvegid 3 vélar og keypt 15 jólagjafir og pakkad theim inn. Kökurnar urdu enda ekkert sérstakar. Thvílík vonbrigdi fyrir fullkomnu manísku húsmódurina. Madur tharf greinilega ad einbeita sér thegar madur er ad baka, ekki horfa á mynd um apa í sjónvarpinu og hlaupa ad píanóinu med deig á höndunum ad búa til undirspil vid jingle bells.

Hér med er ykkur öllum, og líka öllum laumulesendunum sem Svessi er ad ímynda sér, bodid á jólatónleika í Dómkirkjunni thann 28. desember klukkan 8. Fyrst madur er búin ad fljúga til Parísar til ad aefa fyrir thetta er eins gott ad einhver maeti. Ákaflega eyrna- og hjartvaent prógramm; Mozart, Beethoven, Schubert, Chopin og Ravel.
Og svo eru Ísafoldartóneikar á afmaelinu mínu, 8. jan. Líka adgengilegt prógramm.

mánudagur, desember 19

Their geta nú bara kúkad á sig sem nenna ekki ad skrifa nema einu sinni á ári og thá til ad gagnrýna hina, sem leggja sig fram um ad halda uppi heidvirdu bloggi. Thví midur kemst ég ekki í partíid. Vonandi náidi samt ad skemmta ykkur eitthvad smá.

laugardagur, desember 17

Rosalega er nú gaman ad spila á píanó. Tókst reyndar ekki ad sanna mig alveg nógu vel á samspilinu ádan, en thetta er allt ad koma. Med hverjum deginum.

Er nú á leid til Maggíar ad baka piparhnetur, bestar í heimi:

125g smjör
125g sykur
1/2 dl rjómi
1/2 tsk engifer
1/2 tsk kanill
1/2 tsk pipar
2 tsk heimasteyttar kardimommur
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
250g hveiti

Smjör, sykur og rjómi, allt vid stofuhita, hraert hvítt í hraerivél. Thurrefnunum blandad saman og hnodad vid. Litlar kúlur á staerd vid heslihnetur rúlladar milli handa, radad á plötu med dálitlu millibili og bakadar vid 180° í u.t.b.12 mín, eda thar til farnar ad taka lit.
Mmmmmmmmmmmmmunid ad greida afnotagjöldin.

mánudagur, desember 12

DV heldur áfram að leggja mig í einelti. Frétt um daginn að bókin mín ætti skilið að vera brennd. Jáhá! Af hverju ekki bara að skella sér aftur á miðaldir? Brennum bækur sem okkur mislíkar! Brennum fólk sem er leiðinlegt! Mikael Torfason getur verið eldpresturinn sem uppfyllir óskir Guðs um friðsælan og fallegan heim, lausan við óhreinindi og skít.

Ég söng á sviði Grand Rokks á föstudaginn. Ég söng slagarann "Satan er land þitt" við góðar undirtektir. Ég var reyndar ekki á staðnum, fjarverandi vegna áfengis, en þetta var líkaminn minn á sviðinu. Ég klæddist sömuleiðis nýja uppáhalds stuttermabolnum mínum sem ég föndraði um daginn vegna stríðsins á milli mín og DV. Á honum stendur "DV er Satan". Og ekki gleyma því krakkar.

blex! (hvern er ég að leika?)

óttar

fimmtudagur, desember 8

Áfram vid!

Sat inní aefingaherbergi ádan og lék haega kaflann úr Beethovensónötunni, adagio con expressione. Thá sá ég spegilmynd mína í svartpólerudu píanóinu (thetta var upprétt píanó) og hugsadi ad tíminn vaeri ekki núna heldur seinna og ég vaeri dáin.

þriðjudagur, desember 6

Hæhó

Vogin hefur náð jafnvægi á ný, fékk lofsaman dóm í Mogganum í dag, sem er nú skárra blað en skeinipappírinni DV (aka. Drusluvargar). Svo ég hef verið í góðu skapi í dag. Jólin eru að koma. Það kætir mig líka. Og ég sá gamla konu í bankanum áðan sem hafði ekki hugmynd um hvernig nýju rafmagnsskjáirnir sem maður á að skrifa á virkuðu. Það kætti mig líka. Og ég er búinn að kaupa miða til Sevilla, ég fer 8 janúar og verð til sumars. Það kætir mig líka. Þar mun ég sitja nakinn og slá mig með hríslu vegna hitans á meðan ég vinn að "my bestseller" (náði einhver Laxness vísuninni?). Það mun líka kæta mig.

Jæja.