Draslið er komið hingað inn og þar af leiðandi ekki griðarstaður til í íbúðinni. Ég þarf líklega annaðhvort að sætta mig við draslið eða fara í stríð. Ég er að hugsa um að fara í stríð og skipa Egil herforingja.
Annars er ég í heimaprófi eins og venjulega. Mig dreymdi í nótt að ég væri búin með það og það var erfitt að vakna.
Óttar! Mér finnst að þú eigir að fara á karókí kvöldið og meika það. Þá verður auðvelt fyrir þig að eignast vini og komast inn í internationella stúdentakúltúrinn sem er þúsund sinnum skemmtilegri en venjulegi stúdentakúltúrinn. Miklu meira djamm og miklu meira djamm.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home