laugardagur, febrúar 24

Gott fólk, í gær speladi ég med hinu virta svíngbandi GBG Wildcat Swingers á balli hjá Chalmers Tækniháskóla. Chalmers eru gedveikir. Teir/tær/tau/tad/tud geta gert hvad sem teir vilja, búid til herbergi sem er gjörsamlega algjörlega hljóddempandi (madur heyrir ekkert nema eigin líkamshljód inni í eyrunum á sér...ekkert annad) eda til dæmis flutt Volvo vörutrukksferlíki upp á fjórdu hæd og notad húsid á honum sem DJ búr. Bara til dæmis. Athugid ad ekki er um ad ræda annad en húsid sjálft, tad er enginn gámur hengdur aftaní eda svona chaaftædi. Allavega, tá var tetta bara gaman, tónlistin var nokkud frjálslega skipulögd (mith-style) og mikid um sóló. Reyndar var ég útörafrosaalgjörlegagjörsamlegaútúrflippad treyttur í munni eftir spilid, en tad er samt gód tilfinning svo lengi sem madur hefur ekki skemmt á sér munninn. Og svo er ég ad verda veikur í dag.

Ég fór á hönnunarsafnid í Gautaborg í dag og tad var afskaplegt. Tetta byrjadi á syningu á smágerdum silfurverkjum og sídan var líka stólasyning. Èg var fjarzkalega einbeittur á svipinn allan tímann. Tarna voru tveir stólar eftir Philippe Starck. Tad gerdi mig afskaplega stoltan af tví ad vera íbúi tessarar jardar. Sídan fór madur upp á adra hæd og tar var fullt af barrokkdóti og væseni. À tridju hæd blasti sídan vid risastórt búddalíkneski frá Ming-tímanum, ásamt tveimur musterisljónum. Sídan var tarna endalaust af svona dóti frá Kína og austurlöndum. Tetta er dót sem var flutt til Svítjódar á ofanverdri19. öld and the early 20th century. Mér finnst alltaf hálf dúbíös ad sjá svona magnada muni á einhverjum söfnum lengst frá uppruna sínum. Af hverju er tetta ekki í Kína? Af tví ad tad var fullt af Evrópubúum sem hössludu dyrgripi fyrir hundrad árum í samstarfi vid grafarræningja og musteristjófa? Èg veit tad ekki. Og líka Metropolitan safnid. Mér finnst alltaf ótægilegt ad sjá einhverja ódaudlega muni standa varnarlausa og vafasamlega fengna á ókunnum stad. Usss...ég er fimmtugur, hvad erud tid?

Benni, hvad ætlardu ad vera lengi nordan heida? Má ég senda ydur skyrzlu um smjörlíki og krabbamein?

föstudagur, febrúar 23

Bíddu eru menn ad gleyma Reggae on Ice? Èg man ekki betur en ad Damon hafi bodid teim í tónleikaferdalag med sér og ordid besti vinur teirra. Og hvar eru teir núna? Fluttir til Bretlands og eru ad reyna ad meikada! Ì vöggu Britpoppsins! Og er ekki bassaleikarinn ordinn módel einhvers stadar í Evrópu? Vændiskona á götum Parísar? Gledikona á strætum Lundúna? Var ekki söngvarinn med svona megrunarinnslög í Dagsljósi og er núna med svona Spinning tíma hjá Örvari?

Èg fór í dag og versladi mér nidurlægingu fyrir swinghljómsveitargiggid í kvöld. Tad er ótrúlega ótrúlega erfitt ad finna búd sem selur axlabönd. Hins vegar keypti ég buxur á trjúhundrud og fimmtíu krónur íslenskar sem verdur ad kallast met (eda útlitsgöllud vara). Ì sömu búd fann ég ekta Philips háfjallasól í original pakkningum á adeins fimmhundrud kall íslenskar. Tetta er notudufatabúd rétt hjá sjálfum mér. Fimmtíu prósent af öllu heila klabbinu! Heee! Ùtsala lífsins.

Ég fór á tónleika med Kurt Rosenwinkel í gærkveld, gratis í bodi skólans. Tetta voru gedveikir tónleikar. Bara straumur af fallegum hljódum sem streymdu af svidinu, beint inn í vagínu hjarta míns (afsakid). Tad voru líka ótrúlega margar flottar hugmyndir sem teir voru med. Ùff og óbeibí. Svo gat hann líka spilad á píanó eins og draumur einn. Hann spelar sko á gítar venjulega.

fimmtudagur, febrúar 22

Hef ég setid vid lestur The Wire all vel og lengi og komst ad tví ad tad er hreint ótrúlegt hvad bladamennirnir eru duglegir vid ad namedroppa hina og tessa jadarmúsíkantana/70´s rokktónlistarmenn/20.aldar minimalista. Ussususs, tetta gerir tad bara ad verkum ad um tad bil 30% greinanna verda ad vitsmunalegum eydum hjá sjálfum mér. Einnig hef ég komist ad tví ad ég verd ad kynna mér tónskáld ad nafni Terry Riley, tví nafnid hans kom fyrir í hverri einustu helvítis grein sem ég las...

Ég komst líka ad tví ad plötugagnrynin er ekki gagnryni heldur umfjöllun (ekki stjörnugjöf á tessum bæ, nei takk), og plötuumfjöllunin er líka birt í stafrófsröd, ekki í hype röd. Tetta er rosalega kúltúrpólitískt rétttenkjandi blad. Og gott blad líka. Fullt af gódum greinum...bara verst med tessi 30% sem madur fattar ekki...en tá er bara ad fylla í eydurnar (án tess tó ad tær verdi nokkurn tímann alfylltar, aha, slíkt er edli listarinnar...böhö)

miðvikudagur, febrúar 21

Hér med tilkynnist ad ég hef óafvitandi komid mér upp vínsídu sjálfs míns. Vinsamlegast óskid mér til hamingju med frábæran og ómedvitadan árangur. Takk, takk...

Hei, nennir einhver ad senda mér endurreisnarpésann? Til dæmis Bragi?

Mikid er nú gaman ad líf sé skapad med gneista rafurmagns og frumnasulli. Já, ég er ad tala um klónun. Tölum adeins um klónun. Nei.

Ì dag:

Èg rakst á stórt póstkort med loftmynd af mínu nánasta nágrenni. Èg sendi tad heim í heidardalinn og gerdi hring utan um herbergisgluggann minn med kúlupenna. Einnig keypti ég smjör í dag í stad smjörlíkis. Èg var á fyrirlestri í gær hjá Gunnari Lindgren yfirkennara og hann sagdi okkur frá tví ad smjörlíki væri banvænt eitur sem hefdi gengid í gegnum sjúkar efnabreytingar til ad líkjast smjöri í áferd, lit, lykt og bragdi. Tad eru medal annars krabbameinsvaldandi efni og efnabreyttar fitusyrur sem enginn veit enntá hvad gera. Svo er tetta allt saman flutt í stórum tönkum sem hafa ádur innihaldid hvada efni sem er. Hver sem vill getur fengid senda skyrslu á sænsku og ensku um tetta mál. 150kb word skjal. Chekit. Gunnar er búinn ad rannsaka tetta mál í nokkur ár eins og ekkert sé. Gunnar, tú ert madurinn.

Og sídan vil ég bara takka fyrir mig. Bjarni, um hvad fjallar BA werkefnid titt? Lífid sjálft í hnotskurn?

þriðjudagur, febrúar 20

Samkvæmt mbl.is mældist Akureyrisleysi adeins 1,6% í janúar. Tad jafngildir tví ad 2.174 manns hafi ad medaltali verid á Akureyrisleysisskrá í mánudinum, og er tad vel.

mánudagur, febrúar 19

Hefur Sirkus verid endurinnréttadur? Kannski komin nytt "lounge" svædi á efri hædina? Svonefnt "//l@unge*?" Og svo tetta: Af hverju turfa allir ad segja Sirkús? Eins og í Markús? Hver ber ábyrgd á tessari málskeinu? Tetta er eins og ad segja Rís Kúbbar, bara af tví ad gaurinn í auglysingunni taladi med Röngum hreim. Og nú eru ordin ein fjórtán ár sídan sú auglysingaherferd var keyrd. Og fólk er ekki enn búid ad ná sér. Hvad er tetta mál. Hvurslags bylgja ófögnudar og málgubbs er ad flæda hérna yfir okkur. Tad er allt vadandi í málfarslegum vidbjódi, og sídan sullar tjódin í tessum málkúk gladlynd og hyr eins og ekkert hafi í skorist. Fjallkonan hefur verid grytt saur og lysi. Og ég ætla ekki ad horfa á tetta adgerdarlaus. Èg legg til ad allir teir sem segja Sirkús eins og í Markús og Rís Kúbbar verdi fluttir út í Videy og nyttir sem hráefni til leduridnadar tegar réttum aldri er nád. En leduridnadurinn hefur aldrei borid sitt barr eftir ad Albert Gudmundsson gerdi út um minkaidnadinn med einu pennastriki árid 1984. Èg hef aldrei farid í laungötur med tad ad ég hef ætíd stutt Sjálfstædisflokkinn í einu og öllu alla tíd sídan ég fékk kosningarétt, lítill strákpungur. En tá var ekki gert jafn mikid fyrir unga fólkid og nú, tad er aldeilis ad tad er spredad í tau gódgætinu og slikkeríinu. Og nú sídast heyrdi ég ad tad ætti ad fara ad gefa börnunum kók og lakkrís á dansæfingunum. Og tau fá nyjar flíkur annan hvern dag af tví ad tau heimta alltaf meira og meira. Èg fékk aldrei meir en vesælt sokkaplagg á jólunum og tóttist alsæll med tad. En ég hef aldrei farid dult med tad ad ég er Sjálfstædismadur. Tad er alveg á hreinu. Huh. Maturinn hérna er óætur. Sídan hvenær tótti mannskepnan alandi á grænmeti og sodnu hveitisulli. Og hvar eru kartöflurnar med tessu. Ògedslegt fólk hérna.

Èg veit ekki med ykkur, en ég kemst ekki inn á Ofn Sannleikans nema med tví ad logga mig inn. Altso tad virkar ekki ad slá inn donabossar.blogspot.com. Tá kemur bara eitthvad um ad sídan sé ekki til. Tetta er hrædileiki samkvæmt skilgreiningu.

Annad hrædilegt er ad tad eru skrádar tvær debetkortafærslur á reikninginn minn upp á samtals sextúsundkall í dag, 19. febrúar. Samt hef ég ekki notad kortid mitt neitt í dag. Tetta er ótrúlega spúkí. Og krefst lögreglurannsóknar.

Tad sem er hins vegar mest hrædilegt er ad ég vaknadi í morgun og hafdi breyst í risastórt skordyr. Ahahaha. Nei djók....æi ég er bara ad lesa KAFKA sko...já...hann er magntrungid skáld, tad er sko mín persónulega skodun...svo...einhvern veginn...svo...rosalega...(remb)...ah...eda sko pældur...(púst)...undan sinni samtíd hérna...úff...ö...(erfitt)...eda...

Èg hef kynnst hljódfæranámi og tónlistarsköpun í hnotskurn med tví ad reyna ad spila á trommur. Tetta er gaman! Já, og bæ the way, Stephen Malkmus diskurinn er skemmtilegur. Hefur einhver heyrt nyja Tortoise diskinn? Hefi ég einungis lesid um hann í dönskum húsblödum hingad til. Hahaha.

Vegna fjölda áskorana hefur umræduefnid majones tekid upp á ny. Já, haha, ég ætla ad finna upp gullid majones, svo fólk geti bordad söbbvei med gullinni sósu. Tad hlytur ad vera magnad. Sídan vantar tá silfurgljáandi tómatsósu til ad komplementa majonesid. Krómadar sósur! Sanseradar, blásprengdar pulsur! Tvílík hugmynd! Ætli Gunnars Majones hafi áhuga á tessu? Jafnvel svört pulsubraud med mynd af eldingu á hlidinni? Púströr, ef til vill?

sunnudagur, febrúar 18

Èg kem heim sennilega upp úr 10. júní. Módir/Fadir koma í heimsókn sídustu tvo daga skólans og sídan fara tau ad krúsa um Sverige á bíl eins og ekkert sé. Kannski. Og tá er ég kannski til ad krúsa med módur/födur í a little while. Sídan fara tau kannski tadan til Köben og eitthvad. Èg veit samt ekki hvort ég myndi fara med teim tangad eda hvad ég muni nú eiginlega gera. Já, hvad á madur ad gera? Hvad? Ò, hvad?

Èg vil takka Nokia fyrir ad framleida síma sem klára batteríin í millilandasamtali vid Audi Jörundsdóttur.

Annars gef ég tessari helgi fjórar stjörnur fyrir fólk sem hringdi í mig um helgina. Bjarni Ben, m&p, Sverrir og Audur. Takk fyrir mig og gódar stundir.

Já gódan daginn, ég heiti Torm-melé og hlusta á Indverskt teknó med smá blöndu af klezmer og eimar dulítid af Toronto-sándinu. Sumir segjast finna smávegis keim af timjan og piparrót, en ég held ad allir geti verid mér sammála í ad eftirbragdid er hrein unun. Hahaha.

Ì afmæli var ég í gær og tad var gaman. Tad var farid í flöskustút og sannleikann og kontór. Eda tad eitthvad. Einnig lærdi ég nyjan samkvæmisleik sem mun verda fluttur til Íslands á gódri stund. Bíddu nú vid...djöfull hljómar tetta eins og ég hafi verid í bekkjarpartíi í 11 ára bekk...zoyll

Mårten update: Ì gær sagdi hann mér ad hann hefdi dreymt um nóttina ad hann hefdi verid tekinn inn í framhaldsskóla sænska hersins. Òumbedid. Ef ég var ekki búinn ad segja tad ádur, tá er Mårten byrjadur ad vinna hjá Ericsson á gráu svædi í vopnaidnadinum (radarkerfi og tví tengt) Mårten er svona manneskja sem fer virkilega alla leid med lífstíl sinn, beint inn í anus drauma sinna. Hann er svo heill í tilvist sinni; tetta er hid fullkomna samvægi sem búddamúnkar leita eftir. Mårten streymir í gegnum lífid eins og á í fögrum dal, eins og regnid sem veit ekki ad tad fellur, líkt og blómid sem veit ei ad tad dafnar. Ef allir væru eins og Mårten værum vid öll hamingjusöm til æviloka.

Sverrir: This one's for you:

Eiríkur "ill killa" Òlafsson
Kjellmansgatan 9/210
41318 Göteborg
Sverige

Ben: Èg er ordinn töluvert spenntur fyrir hiphop & R'nB plötunni okkar. Vid verdum ad gera tetta.

laugardagur, febrúar 17

já hahahahaa...ég fór á tónleika í gær og hitti fyrir hann Erik Qvik trommara sem er ad kenna á Ìslandi í vetur. Hann sagdi allt gott ad frétta ad heiman. Jáhahahahahaha. Hann kynnti mig líka fyrir tveimur gaurum, gítar og basgaurum sem voru einmitt fyrstu Svíarnir sem ég hef hitt sem vita eitthvad um og halda uppá Chris Speed og Black og Tim Berne og svo framnesvegis. Tad var skyndileg spenna í loftinu og vid ákvádum ad vid tyrftum nú endilega ad hittast og spila á næstunni. Svo vid skiptumst á símanúmerum eins og elskendur í fyrsta sinn. Hahaha.

Èg keypti Stephen Malkmus plötuna í gær. Èg er sko ordinn indie núna. Èg reiknadi út ad tessi plata kostadi ekki nema 1283 krónur. Hverjum hefdi dottid í hug ad árid 2001 madur gæti ordid indie fyrir adeins 1283 krónur? Ekki mér, svo mikid er víst. Èg er líka farinn ad spila á trommur frá med deginum í dag. Ì dag tókst mér ad spila trommubreikid sem er í tridja taktinum í vidlaginu í Bullet with bötterflæ wings (tempo = andante dolce maradonna). Èg hef komist ad tví ad trommuleikur felst í tví ad nota sem minnsta orku hverju sinni, til dæmis med ad bada ekki út öngunum í trommubreikinu í tridja taktinum í vidlaginu í Bullet with bötterflæ wíngs. Betra er ad halda höndum sínum ad sér. Held ég. Èg líktist allavega meira Gulla Briem tegar ég hélt handahreyfingum í fagmannlegu lágmarki.

Jæja, ég er farinn í afmæli. Gódar stundir.

föstudagur, febrúar 16

Tja, hvar er hann ekki? Nei annars minnir mig ad tú hafir fengid hann í eigin hendur skömmu eftir ad ég keppti hann. Ef ekki, tá er hann heima hjá mér. Ef hann er ekki heima hjá mér, tá er mitt eigid eintak í geisladiskahirzlunni hjá rúminu mínu. Èg kaus ad skilja hann eftir heima af tví ad tetta reyndist ekki vera tebollinn minn. Ef tú finnur hvergi ydar eigin Rubinstæn, tá máttu fá minn eigin Rúbinschtæn lánadan tar til ek kem heim. Ef allt tetta er rangt, tá bidst ég afsökunar. Ef afsökunin skyldi vera röng bidst ég forláts. Hvernig var med hljómsveitarumsagnirnar? Hvad er títt, yo?

Benni: Kitchen Motors er fólkid sem vill gefa út plötuna tína. Vid gætum nefnt fólk til sögunnar eins og Kristínu Björk. Do you remember that funny old morning in the Grái Kötturinn when she said that she could absolutely dig your album? Yes? So I was just wondering if there was any framgangur á teirri historíu.

Èg var ad fatta ad bókasafnid er áskrifandi ad The Wire. Vei. Nú gat ég skodad bladid med Sigur Rós/Ìslandsgreininni. Tad var stórfengleikinn sjálfur. Tar stód ad Reykjavik has a music scene other cities would kill for. Òkei...kannski...hvad finnst ykkur? Hvernig eru nyju böndin sem eru ad koma núna? Jag har inte hört nånting endå. Singapore Sling, öö...hvad er meira komid...öö...

Ì tridja lagi: Hvar er Steinar og útborgunin fyrir Rim(n)askóla? Er hann búinn ad rukka? Hrópum vid skandall, allir sem einn? Èg svara en fæ ei spur.

Bragi og Benni: Tid eigid bádir diska heima hjá mér back in the land of ice and snow. Dave Douglas og Brad Mehldau bída tín ólmir, Brian minn. Og Benedikt, tú átt um tad bil fimm eintök af skífu tinni heima hjá mér. Skutlid ykkur nú endilega heim til mín, tiggid Quality Street af módur minni og náid í plötur ydar. Einnig á Níels eina Miles plötu heima hjá mér sídan á haustönn '99 ef ég man rétt.

fimmtudagur, febrúar 15

Karlmennska mín kom nokkud berlega í ljós tegar ég stód sjálfan mig ad tví ad hafa grannskodad Duracell batterípakka sem ég festi kaup á. Èg las textann á ensku, hollensku, sænsku, dönsku, norsku og einnig finnsku (til ad festa auga á atridi sem gætu hafa misfarist í tydingu). Nú fékk ég enn betri stadfestingu á tví ad batterí skal ekki taka í sundur, endurhlada né leggja eld ad. Sígildur sannleikur í menningarsögu mannkyns. Allavega 50% tess. Èg er aumingi.

Einnig tilkynni ég ad veggur hræsninnar hefur hafid nyjan kafla í sögu sinni: Èg er fór á bókasafnid ádan og fékk lánada bók med helstu verkum Kranz Fafka. Næstir í rödinni eru Allen Ginsberg, William H. Burroughs og Jean Genet (en tad er altekkt stadreynd ad nægilegt er ad hafa fengid helstu verk höfundar lánud af bókasafni til ad vera gjörkunnugur honum. Ekki er naudsynlegt ad hafa endilega "lesid" verkin).

Hefr Andrs Jormin slegid upp tví snilldarrádi ad vera effektívur í sínum æfingum og ekki eyda orku og tíma í ad æfa tad sem madur kann nú tegar. Skal tetta hollrád vera mitt mottó hédan í frá og vera gasalega einbeittur og effektívur í æfingum. Til dæmis er ég núna ad æfa tónbil sem ég vissi ei ad væru til, sem endurtaka sig í litlum tríundum upp tónstigann. Tetta heitir dim-lick, krakkar mínir. Stórar sjöundir endurteknar lítilli tríund ofar og svo ofar og svo ofar. Ædislega nytsamlegt. Jormin var med smá fyrirlestur um daginn. Èg komst ad tví ad hann eignadist barn tegar hann var 19 ára, tannig ad hann hafdi eigi tíma til ad eyda æfingatímanum í vitleysu. Òkei...seinna í tímanum sagdi hann ad honum fyndist gaman ad kenna..."annars væri ég ad spila núna í Tókyó..." og sídan seinna í sama tímanum: "ókei krakkar ég kemst ekki tarna á fimmtudaginn, ég verd ad spila í Los Angeles...já ókei..." Hversu hipp getur madur ordid? Fáránlegt! HNEISA!

Ben: Hvernig er med das kitchen motors dæmi? Er eitthvad í gangi?

Tilkynni ég hér med ad Bragi Bergtórsson hafi mælt hraustlega.

Èg tilkynni hér med ad sú dagsetning sem er mest videigandi í dag er fimmtándi febrúar árid 2001. Teir sem kunna ad vera ósammála mér vinsamlegast sendi mér tölvupóst tess efnis.

miðvikudagur, febrúar 14

Èg tilkynni hér med ad sá einstaklingur sem er mest videigandi fyrir vidtal fyrsta ársfjórdung ársins 2001 er Benedikt Hermann Hermannsson. Plötubúdin Pennies From Heaven er geymd í minningu minni jafn vandlega og sjálfur Ìsaksskóli. Hins vegar eru stúlkur úr Ìsaksskóla ekki alveg jafn vandlega geymdar í minningunni, en tá er bara ad spyrja. Hefi ég hlotid ad minnsta kosti fjórar samfarir út á spurningu sem slíka, og er tá eigi medtalin samförin er hlaust út frá setningunni "afsakid fröken, en tér lítid út fyrir ad vera skólagengin".

Èg átti frí í skólanum í dag og eyddi tess vegna aukalega tremur tímum í svefn og fánalegan göngutúr á leid í skólann. Tar arkadi ég um torg og stræti og komst ad tví ad verksmidjur eru eitthvad tad skemmtilegasta sem auga barnsins getur litid. Svona erkigamaldagsverksmidjur med risastórum strompi og asnalegum verkfrædimistökum utaná sér. Einnig komst ég ad tví ad afskaplega flotta fatabúd er ad finna í nágrenni sjálfs míns. Tar er ad finna dyr föt og flott. Sídar á gönguferd minni veitti ég tví athygli ad tad vantar algjörlega svona fáránlegt lúxushótel í Gautaborg med skyggni fyrir anddyrid og limósínum fyrir utan. Tad er reyndar eitt svoleidis nálægt skólanum, en tad er bara svo lágreist og lúdalegt ad tad meikar engan veginn sens. Tad er ekki hup. Einnig verd ég ad fara í óperuna brádum, tad gengur ekki ad hafa aldrei skodad óperuna. Enn einn nyr hluturinn birtist fyrir augum mér tegar Karl Oskar vinur minn bordadi lystilega súpu med braudbollu og súkkuladitussmola med. Hann hafdi fengid tetta meistaraslys í konditoríi (ég veit ad tad heitir bakarí, en mér dettur ekki í hug ad nota tad ord...ég er í útlöndum, damnit!) rétt fyrir nedan skólann á 330 kr. íslenskar. Einnig er vert ad geta tess ad allt tetta kom í fallega hönnudum bréfpoka. Tetta verd ég ad prófa. Lærdómur tessa bloggs míns er ad tad er miklu, miklu meira í Gautaborg en ég hef fattad. Òjá. Nú er bara ad nyta tessa fjóra mánudi sem eftir eru í rugl og vitleysu og alls konar svona óged. Eda eins og Anders Hagberg kennari minn (fráskilinn og lovesick) sagdi vid Jens um daginn: "Stundum verdur madur ad taka tímabil til ad æfa og æfa, en sídan verdur madur líka stundum ad taka tarnir og vera fullur og rída". Sú stadreynd ad tessi setning kemur úr munni for-midaldra Svía gerir tad ad verkum ad munnur ykkar gapir af undrun. Èg held reyndar ad tetta sé ekkert vandamál á Ìslandi; ad vera fullur og rída er ein helsta tómstundaidja Reykvíkinga...tschuss!

Sverrir, ég hef trjú ord handa tér. Annad teirra er lysingarord, en hitt er nafnord. Ordin eru eftirfarandi: Sjálfstædur og Atvinnurekandi. That's right, Sverrir. Tú og yfirdráttarheimildin tín eru ad fara út í sjálfstædan atvinnurekstur. Ekki lesa um The Loft, stofnadu The Loft! Nú er tækifærid, Sverrir! Tad er kominn tími til tess ad tú takir fullnadarpróf titt sem Ìslendingur. Stofnadu tinn eigin bissness. Mætti ég stinga upp á sólbadsstofu, vídeóleigu eda vefsídugerd? NEI ÉG VEIT: TAPASVAGNINN/LATTEVAGNINN!! Tú verdur med svona pulsuvagn í Faxafeni, nema hvad ad tú ert ekki med pulsur, heldur tapas og latte! Chekit! Sídan ferdu brádum ad gera út kvíarnar og stofnar útibú á Raufarhöfn og Trékyllisvík (sjómenn turfa líka tapas). Eftir svona hálft ár verdur tú ordinn einn ríkasti madur Nordurlanda! Og hverjum er tad ad takka? Nú audvitad besta vini tínum honum Eiríki, sem gaf tér hugmyndina. Og ad sjálfsögdu addáendunum, sem hafa verid svo duglegir ad kaupa tapas og latte. Tad verda sennilegast fundin upp sérstök Edduverdlaun bara til ad heidra tig, Sverrir, svoköllud Heidursverdlaun Eddu ellegar hlidarflokkur á svidi veitingareksturs í háklassa. Àdur en langt um lídur verdur tú sídan med eigin verdlaunaafhendingar, hinn svokallada "Sverrir", sem veittur verdur til hvers tess sem sker sig úr fjöldanum vardandi lattefrumur per rúmsentimetra líkama síns. Eda eitthvad. Èg er farinn ad ojfa mig.

Samt, Sverrir, tú ert skyldugur til ad hafa tig í frammi vardandi Sjálfstædishúsid gamla. Tetta er tækifæri til ad göfga menningarlíf Reykjavíkur, og tú einn hefur vald og kraft til ad knyja málid í gegn. Já! Stofnadu samtök! Pantadu vidtal vid Ingibjörgu Sólrúnu! Eitthvad!

þriðjudagur, febrúar 13

Sem merki um frumkvædisleysi og slappleika Svíanna er ágætt ad nefna ad á Afro-Forum (fundur) ádan birtist plan um ad láta vera nokkra skyldutónleika á jazzklúbbnum Nefertiti á önninni. Àstædan er ad jazznemendur tóttu ekki nógu duglegir ad mæta á tónleika. Segir tad tó nokkud um ástandid. Ì sídasta bloggi sagdi ég ad ég gæti öskrad framan í Svíana. Well, ég gerdi tad óbeint ádan á fundinum. And it felt güüd. Og teim fannst sjálfum vera almenn andleg ládeyda í skólanum. Djöfull er ég feginn ad hafa fengid ad hafa ord á tessu. Ùff.

Tad er samt gedveikt tetta med skyldudæmid, madur fær ókeypis á trjá tónleika! Wei!

Er farinn ad borda. Gódar stundir to you.

Tá get ég glatt tig med tví, Sverrir, ad ég er um tad bil ad krepera (of mikid kaffi) á frumkvædisleysi og slappleika Svíanna ad mig langar til ad öskra framan í tá hvad teir eru linir og hugmyndasnaudir. Tá er einnig gott ad minnast á ad ég er ad fara ad spila á balli fyrir Chalmers tækniháskólann med Swingbandi nokkru og svo einnig er líklegt ad vid spilum reglulega í Kaupmannahöfn. En ég er samt ekki ánægdur. Tad er ekki nóg. Èg vil fleiri Helga Svavara í Svítjód! Hvar ertu, Helgi Svavar? Ò, módir réttlætisins, hvar er tig ad finna? GGGAAAAAAAAA!!

Tetta blogg var í bodi sænsks braudgerdaridnadar.

Ì tilefni dagsins: Trautakóngur. Allir safnast í einfalda röd og herma eftir teim sem leidir rödina. Gjarnan má leidandi radarinnar ganga áfram eda tá standa kjur, allt eftir törfum, trám og draumum einstaklingsins hverju sinni.

Èg var ad skoda eina ótrúlegustu plötubúd sem ég hef nokkurntíma komid inn í. Hún er rétt fyrir nedan skólann og sérhæfir sig í notudum plötum. Heilt herbergi fullt af djassplötum í stafrófsröd (vínyl, per se), tetta er búd med endalausum tröngum göngum, sem leida til easy-deildar (sennilega um 50-60 Herb Alpert plötur og svo endalaust meir sem ég gat ekki skodad), sænskrar deildar, heimsdeildar, klassískrar deildar...og svo er náttúrulega risastór 78" deild med endalausum hillumetrum af Louis Armstrong, Glen Miller, sænskum jazzi og fleiru gódmeti. Já, og svo er bókadeild tarna, komplett med klámfengnu dagatali frá 1982, áritad af módelinu sjálfu. Bjútifúl! Og líka diskar, per se.

Èg er ekki heldur búinn ad minnast á heimstónlistarplötubúdina nidri í bæ. Hún er líka rosaleg. Indverskar lúdrasveitir rokka feitt!!

mánudagur, febrúar 12

Já, til hamingju med daginn, ó hahaha! Erfdir eru skrambi skemmtilegar, enda eru erfdavísar mannsins heldur færri en reiknad var med...ó hahaha. Èg held ad ég sé á fyrstu stigum kvefunar eda veiki, tví hugur minn mókir eins og undir fargi mikils hors í nefi. Tó er nef mitt hreint og óflekkad eins og María mey, módir Jesú Krists, eingetins frelsara vor. Kannski er ég bara treyttur eda eitthvad, en ég finn ad tad er eitthvad á leidinni. Eitthvad aalveg milljón.

Benedikt er nordan heida, en sjálfur er ég sunnan sjálfs míns. Minnumst tessara orda í framtídinni. Höldum framtídina hátídlega og bidjum ad hún fari kurteislega fram og án mikils bægslagangs. Djöfulsins bægsl eru tetta á tér drengur.

Brot úr bókinni "Eiríkur: Kvef á leidinni" eftir Merkil H. Lövenkrautz. ©2001 Rjúpa-Bókaforlag. Allur Réttur Àskilinn. Sponsorerad af kók. Lakkrís, anüone?

sunnudagur, febrúar 11

Ì gærkvöldi fékk ég hugmynd sem mun ad eilífu berast med straumi alheimssálarinnar ef hún verdur ad veruleika. Revía med Bigga og Àrna. Med studningi jazzpíanótríós (allir í jakkafötum) syngja teir hvurn slagarann á eftir ödrum med leikrænum tilburdum. Tetta getur einfaldlega ekki misheppnast. Tetta eru örlög teirra. Allar tessar litlu tilviljanir í lífi teirra sem breyttu og högudu stefnu teirra og mótun hafa midad ad tví einu ad gera tá Fullkomna til ad syngja í revíu. Tveir bestu vinir syngja saman lög um lífid og tilveruna. Hahaha. Ekki sjens ad tetta klikki, baybee. Myndi ykkur ekki langa til ad koma í Nordurkjallara og sjá tetta? Èg bara spyr.

Rádist verdur í framkvæmdir næstkomandi haust.

laugardagur, febrúar 10

mér datt bara í hug ad bæta vid fimmta blogginu í röd, svona til ad láta fólk fá samviskubit (og láta sjálfan mig líta prittí pathetikk út í leidinni, sem er svo annad mál)

I.
seinkun á mætingu annarra á æfingu gerir tad ad verkum ad ég hefdi getad eytt talsverdum tíma í ad úda braudmolum í munnhol og góm á hipp kaffihúsinu á Andra Langgatan. En tad hefdi hvort sem er verid örugglega leidinlegt, tad var allt of mikid af of hupp fólki tarna. Ì samrædum vid Jens um daginn var ég spurdur hvort ég teldi sjálfan mig vera "hip". Hvad segir madur vid tví? Nei? Ad sjálfsögdu ekki, madur segist vera ad minnsta kosti jafn hyp og andskotinn sjálfur (ef ekki ögn betur en svo). Audvitad er madur höpp! Ha! En audvitad rústadi ég hipleika mínum nokkrum mínútum sídar med tví ad bidja um "kaffe" á Oji (gasalega hep stadur). Ef ég hefdi verid sannarlega hüp hefdi ég tilgreint nákvæmlega hvurs slags kaffidrykk ég vildi. Tannig ad ég er ad öllum líkindum ekkert svo húpp lengur. Kannski bara smá.

II.
Ì Svítjód hefur ordid "hæ" mun minna verdgildi en á Ìslandi, og er tví tess vegna dreift um vídan völl, daginn út og inn og jafnvel án umhugsunar. Tetta er tví sannköllud paradís fyrir vafasaman "hæ"-sjúkling eins og mig. Èg get sagt hæ vid hvern sem ég vil. Tetta er mjög orkusparandi, tví í stad tess ad eyda orku í ad ignorera hálftekkta einstaklinga getur madur afgreitt tá med einu hræbillegu hæi og haldid sídan leidar sinnar (í sumum tilfellum getur madur jafnvel haldid leidar sinnar eins og ekkert sé). Èg mun halda förelesning og námskeid um tetta mál tegar ég kem heim til Reykjavíkur, og í framhaldi af tví stofna Hæskóla Ìslands (not to be konfjúsed with Hæskólinn í Reykjavík).

III.
Sænskur braudkostur er ómeti, smjörid er óætt og osturinn er eins og plast. Annars hef ég tad bara fínt.

AUDUR ER STÚDENT Í DAG! TIL HAMINGJU AUDUR MÍN! JÁ TAD ER EINS OG VID MANNINN MÆLT, NÚ ER HANN PABBI TINN STOLTUR AF TÉR!!

altso til hamingju med daginn...

Já, eins og milljón vard ég bara ekkert svo fullur í gær og vil ég takka hæstvirtum jómfursta von McDonald fyrir ad sjá mér fyrir bíólógískum ekki-fyllsku-fasa. Tetta var róleiki hinn mesti og bara ágætis kántrí. Band frá skólanum var fabúloso og einnig var sjálfspilandi píanóid (komplett med tímabilsafhjúpandi LCD skjá) afskaplega lekkert og treytandi (fimm laga lúppa dugir frekar skammt). Og nú eydi ég ekki frekari tíma med kompjúter í bili, og tekur vid tímabil íhugunar um hversu mikid Audur er ad skemmta sér í dag.

föstudagur, febrúar 9

Med vængjaslátti tímans tókst mér ad stroka út tad sem ég hafdi skrifad hér í dag. Òvartsins vitleysingur er ég. Vid skulum adeins taka okkur smá tíma í ad hugleida tad sem ég hef sagt. Hmm...látum okkur sjá...nei, tvílík óvænt og hressandi ánægja, ég taladi um nákvæmlega ekki neitt! Hahaha! Tótal nonsens farid út í vindinn. Tvílík hörmung. Mannkynid verdur aldrei samt again.

Tví næst ætlum vid ad minnast á kántryballid sem er í kvöld. Èg ætla ekki ad vera kúreki af tví ad ég er svo skolli spesjal (og sóa ekki peningum í svokallada "grímubúninga", sem eru rót alls ills og óvinir sannleikans). Lesendur Ofnsins (bádir trír) mega búast vid sullandi fylleríissögu á morgun. Tad er ad segja ef ég meika ad fara í skólann á morgun. Hver veit nema gledi-ausunartrílogían verdi fullkomnud í kveld? Ojojoj! Tad verdur nú eitthvad fródlegt! Bara blindfullur! HA!

Èg verd ad helga morgundaginn svalness og ötter hipleika, kannski med tví ad skoda tessa rosalegu hup plötubúd á andra langgatan. Sídan kaffi á Café Publik (mest hip nordan heljar) ad sötra latte eins og ég sé Borgafirira (tekktur spænskur landkönnudur sem dó óvænt vid ad spila lúdó med hænsnum).

í gær spiladi finnskur madur á víbrafón og fékk borgad fyrir tad. hann var hrædilega, hrædilega gódur. Ò mæ godd hvad tetta voru gódir tónleikar. Anders "bassaleikari" Jormin var líka ógedslegur. En tad er nú bara eins og gengur. Altso.

Sigurdur Flosason, trompetleikari, er ad koma til Jöte á næstunni. Hann mun koma í skólann og prata um FÌH. Tad verdur gaman ad heyra. Hvad er tetta FÌH annars? Einhvers konar krydd? Fjórda kryddid, per se?

Òvænta ord dagsins er: Sterkur brjóstsykur.

Takk fyrir tíma ydar og umberandi lyndi.

Setningar eins og tessi birtast óumbedid í huga mínum. Èg hlyt ad vera skáld.

fimmtudagur, febrúar 8

Ì nafni sannleikans tilkynni ég ad ég hef verid ad ræda ofsalega afstrakta hluti vid kumpána minn Jens (stórsigur í tungumálakunnáttu), og höfum vid spurt sjálfa okkur afhverju vid séum í tónlistarskóla, afhverju vid verdum ad gjöra mjúsik á trompet/saxafón, og sídan hvort jazz hafi dáid drottni sínum árid 1970/1953, og sídan lifad áfram sem artifísjöl mjúsikk sem tekur takmarkad mid af veruleika nútíma hvers tíma; tjódgardur á atómöld (æl?). Ad sjálfsögdu komumst vid ekki ad nidurstödu af tví ad vid vitum ekki hvort ad rétt sé rangt eda rangt sé rétt. Enn sídur vitum vid hvad jazz er, sem gerir okkur of course erfitt fyrir ad ræda hlutinn in the first pleis. Tar med er nidurstada málsins ófáanleg, og vid getum allir dáid núna. Tad er leidinlegt ad vera ekki gáfadur og umla bara já eda eitthvad á eftir einhverri magntrunginni spurningu. Èg hata í raun og veru ad madur getur aldrei komist ad nidurstödu med svona hluti, tví madur fær aldrei svar vid tessum spurningum. Vill einhver kenna mér rökfrædi?

Howlin' Wolf er magnadur gaur. Èg giska á ad Benedikt Herlingur fíli tann gaur, hann er med gedveika rödd og syngur um ad hann átti einu sinni monní læk a milljoner (been lying to my mama). Hann var bóndi árid 1928 (18 ára gamall), en lærdi svo á gítar og munnherpil og vard óvart tónlistarmadur. Já, hann hafdi sko bljúsinn inní sér. Auk tess er alternative country bara old news, allir vita ad öndergránd blús er tokkalega næsta trendid...

Tónheyrnartími morgunsins skartadi sínu fegursta med heimagerdum skjáauglysingariffum (kennarinn er fjúsjonhaus og samdi námsefnid...úff) sem vid skrifudum nidur af alúd. Einnig tók ég mynd af baksídu bekkjarins, svona til ad minna fólk á skammveru mína í Gautaborg.

tetta er nú meira ruglid, haa! Ekki meira svona bara takk fyrir!

miðvikudagur, febrúar 7

Nei, Bragi, tetta var ædisleg teiknimyndasaga. Endilega meira svona. MMm, en gaman! Múús!

Hmm...talandi um vefhönnun...nennirdu ekki ad gera eitthvad vid ofn Sannlaukans? Bara hvad sem er? Skipta um lit eda eitthvad...mér er alveg sama...baraa sonaa...eikkvaaa....eedaaaaaa haaaaaaaaaaa

Èg get ekki sagt annad en ad Tetta er málid, strákar. Haa! Svona dæmi sko...ha!

Eftirfarandi ummæli/spurningar/fromagé le cûnt eru beind/ar/t/unt ad Benedikti Hurmenssyni og eiga gjörsamlega ekkert erindi á vefsídu tessa. Tetta er tad sem mér vill.

Benni: Hvar er urt sú er dafnar í ristli tínum? Hana hef ég ekki séd lengi, og undrar mig hvernig á hana er borid saft tessa dagana. Er tetta manúalt eda formalt?

En tó: Tú ert sumsé búinn ad vera atvinnuleysi í tvær vikur og hefur blog-gad á næturnar eins og madur sem fær peninga fyrir tad. Hvert er planid? Hvar liggur framtídin? Geymir tú kúk tinn í formalíni til söluauka? What's up?

Èg sakna Tingvalla ad sumri til. Samt hafid tid ástædu til tess sama, tví allir söknum vid jú sumarsins. Og tá skiptir ekki Jón eda Pál hvort madur sé erlendis eda ekki, tví veturinn skapar fjarlægdina, ekki útlandid.

þriðjudagur, febrúar 6

Èg er lysandi stirni; sannkallad ljósmenni. Teir sem vilja hafa samband vid mig sendi mér vinsamlegast tölvupóst á eirikurorri@eirikurorri@eirikurorri. Takk. Fimm teskeidar Gullinbrú, ef ydur væri saman. Tökk fyrir. Ad ödru jöfnu vill heimur tískunnar benda á ad staying in is the new going out (hló?). Takk fyrir kærlega, endilega haldid ydur saman. Og endilega notfærid ykkur almannafærissamgöngur, tær eru svo dejlig. Fyrir utan allt tetta vil ég bara tjá ykkur ad ég er farinn ad treytast, altso dagurinn er farinn ad treyta á mér medvitundina. Eda svoleidis. Tannig ad bara góda nótt, eda tá gódan dag. Taki tad til sín sem eiga. Ùff...

Hugsanatengsl mín og önnur óskyld fyrirbæri leiddu hugann ad tví hversu gjörsamlega off tad var tegar ég ældi á teppid fyrir margt löngu. Vil ég taka fram ad ég minnist tessa atburdar adeins med ljúfsárri nostalgíu, og enn fremur tek ég fram ad engin biturd eda blygdun skyggir á atburd tennan. En tetta verdur meir og meir off eftir tví sem ég pæli í tessu...sem er náttúrulega bara skemmtilegt, ég sem Ìslendingur er stoltur af tví ad hafa verid fulltrúi tjódar minnar á tessari heilögu og frómu stund glediausunar í leigdum sal. Fulltrúi hins óheflada og grófa í velferdarríkinu Sví "ursäkta mig" tjód. Já, svona getur verid gott ad gubba í vörmu skauti tjódernis síns. Tad er í raun og veru hlutverk mitt sem Íslendings ad gubba ödru hverju á teim stundum sem hreinlega krefjast gubbunar. Tetta er sennilega bara genetískt...persónuleiki minn er nú feginsamlega kúpladur frá tédri stund gubbunar, og er tetta hreinlega edli mitt ad verki. Ad fordæma athæfid er ad fordæma tjód mína. Og slíkt er ótæk hegdun.

...snjótungt í dag, rjúpan farin ad norpa. Skyggni ágætt. Saurburdur nokkud stirdur...annars allt í sama farvegi...bölvud mjödmin...

Talandi um ræpu, tá held ég ad tessi bloggræpa sem gusadi sér á skjáinn minn nú í tessu sé ein ánægjulegasta ræpa sem ég hef ordid vitni ad. Hringvödvinn sem var fyrr herptur fyrir ordræna tarma bloggfélaga hefur nú loksins slakad á spennu sinni og lætur nú saurinn flæda um barma sína eins og aldrei fyrr. Já, ef ég mætti ráda tá yrdi hringvödvi tessi aldrei herptur, heldur ad eilífu slakur og bjódandi vefrynum á ordheppinn feces sinn. Èg gæti haldid áfram í sex kukkustundir ad líkja saman blogghömluleysi vid saurlosun, en tví midur bydur tími alheimsins ekki upp á tad. Èg tarf ad drulla (afsakid) mér í tíma.

mánudagur, febrúar 5

Eftirfarandi er lysing mín á deginum í dag, ef einhver skyldi hafa áhuga á tví ad vita hvernig venjulegur dagur er hjá mér. Èg mun tileinka mér afar turran og leidinlegan stíl. Èg mun einnig vara vid tessum turra og leidinlega stíl í einni setningu í innganginum (altso undangenginni setningu), tannig ad You Have Been Warned.

Já, vidburdaríkur dagur í dag. Fyrst rennsli med samspili kl.10:30, gekk frábærlega (bandid hefur aldrei sándad eins vel). Sídan tónleikar í hádeginu (12:15). Gekk frekar brösulega og ég var ekki alveg sáttur. Fólk var samt ánægt med tetta, tannig ad brösuleikinn gæti alveg eins verid falinn í hugarfari mínu á tónleikunum sjálfum. Altso ég veit hvernig ég skynjadi tónleikana, en ræd engu um hvernig adrir skynja tá. En fólk virtist vera bara mjög ánægt (einn sagdi meirasejja "vá!" vid mig...noh...bara svona...), tannig ad tetta gekk áreidanlega vel. Kl. 13:00 var sídan tími í stjórnun (hvernig madur á ad dansa ástrídufullan freestyledans fyrir framan bigband til ad fá fólk í gang) og sídan tridja skipti dagsins tegar samspilid hittist. Ad tessu sinni var tad vikuleg æfing samspilsins (15:00). Tad var fínt, tad er loksins ad koma hópkennd í tetta samspil eftir fimm mánada tilvist. Sídan var ég í pásu í 1,5 klst. og fór á bókasafnid og tók ad láni bók med trompetetydum eftir Bozza, sem er gaur sem var uppi í kringum 1920-30, ad mér skilst. Tad verdur spennandi ad sjá hvernig tetta er, af tví ad ég hef verid ad spá í einhverju svona til ad blanda inn í tónleika. Eda gera eitthvad vid. Eda eitthvad. Allavega tékka á tessu. Sídan var fyrsta æfing freeform samspilsins klukkan 18:15. Tad var rosalega gaman, kennarinn er gamall afalegur kall sem veit ógedslega mikid um tónlist. Hann er jafnframt mikill krakki í sér, sem gerir hann samstundis rosalegan gaur. Hann er líka gamall vinur hans Edwards Fredriksens. Vid spiludum sumsé frítt impróviserada tónlist og töludum sídan um tónlistina inn á milli. Tad var gaman. Tetta verdur skemmtilegt samspil. Tad er ekki svo oft sem madur spilar svona algjörlega frítt, og tad er verdmætt ad fá ad kynnast tví og jafnframt fá ad tala um tad vid gamlan magnadan kall. Og nú er klukkan 20:27 og ég ætla ad fara heim ad fá mér eitthvad ad borda og sídan chilla bara á pakkanum tad sem eftir lifir kvelds. Tad sem er kannski óvenjulegt vid tennan dag er ad ég fékk engan eiginlegan tíma til ad æfa mig sjálfur. En tad getur verid gott af og til ad sleppa tví, svona til ad fordast mónótón lifestyle. Checkit!

Èg verd víst ad bæta tví vid ad ymsum lífedlisfrædilegum fyrirbærum hefur verid sleppt úr tessari frásögn, svo sem tvaglosun, næringarinntaka og ljóstillífun sjálfs míns. Gjörid svo vel ad afsaka mig.

sunnudagur, febrúar 4

Já, tad er eins og vid manninn mælt. Myrkrid er í kringum okkur. En tad get ég sagt ykkur ad um daginn var eldri madur í sporvagninum sem hafdi tann ósid ad tala smolltolk vid his fellow commuters. Hann var jartein. Hann sagdi ad tad væri ótrúlega kalt, en brádum kæmi febrúar og sídan mars, og tá kæmi nú vorid. Sídan lauk hann smoltokinu med tví ad segja "já, kæru vinir, tad eru betri tímar framundan". Sídan vatt hann sér út úr sporvagninum eins og Gud almáttugur. Og ég var náttúrulega stórhrifinn af frammistödu tessa manns. Hann hafdi gert sjálfan sig ad völvu og jartein. Betri tímar framundan. Já, tad skal ég segja ykkur ad tetta gæti nú ekki gerst í Stokkhólmi, tar sem munnleg samskipti á almannafæri lykta af yldu og saur.

Ì nótt dreymdi mig ad ég væri annar lögreglumadur af tveimur ad elta tvo tjófa á götum úti. Tetta var reyndar í Stóragerdinu. Annar tjófurinn var Òttar Martin Nordfjörd. Mér tókst ad elta hann uppi vid Esso bensínstödina. À medan ég hafdi hann í greip minni og hann var ad reyna sleppa úr henni áttum vid í samrædum um hvad tetta væri nú ótrúlega steikt adstada. Èg meina hérna er vinur minn Òttar og ég er bara starfs míns vegna ad taka hann fastan. Tetta var svona samviskuspurning. Vid vorum alveg sammála um ad tetta væri nú alveg steikt.

Benedikt: Til hamingju med afmælid. Tú ert prydisdrengur. Kauptu tér nú karamellur eda slikkerí fyrir hundrad kall og ég skal svo láta tig fá hundrad kall í stadinn tegar ég kem heim. Èg skal splæsa á tig dönskum brjóssigg elsgu beibígaurinn minn. Svona, hlauptu nú af stad.

föstudagur, febrúar 2

Öll kætumst vid í teirri vitneskju ad Tjódarbókhladan skrásetur sem mest tad má af íslensku efni á vefnum, rétt eins og hún sankar ad sér dagblödum og tímaritum. Tess vegna kætumst vid yfir tví ad kannski, og já bara kannski, hefur Ofn Sannleikans stad á hördum diskum ríkisins. Hehe! Og Sverrir, tú getur aldrei ordid forseti Ìslands af tví ad tú reistir Hjálmari Blöndal nídstöng á vefnum. Tess vegna skulum vid öll nota tennan föstudag til tess ad gledjast yfir frelsinu sem Sverrir hefur fengid, tví öll vitum vid ad höft tyda frelsi ef höfud er lagt í bleyti og börnin med. Sverrir, mér tykir leitt med uppsögnina. En nú geturdu allavega farid á allskostar ófalsad "ég var ad missa vinnuna mína í dag" fyllerí í kvöld. Skál! Hvada ástæda er betri til ad drekkja sér í sorgum en ad vera sagt upp? Can you dig it? Líf titt var ad ödlast adra og dypri vídd í dag! Tú byrd yfir reynslu sem er rómud í Dilbert teiknimyndum og breskum samtímabókmenntum. Tú ert hetja, Sverrir! Go Get'em!

fimmtudagur, febrúar 1

Ég veit ad tetta er ekki tad frumlegasta sem madur getur sagt, en hvad er eiginlega ad gerast med le Blog? Er enginn sem nennir ad skrifa? Èg fæ varla tölvupóst lengur frá neinum nema fjölskyldunni. Hvar er Benedikt? Audur? Sverrir? Bjarni Ben? Og hvar er Bragi? Tyndur í óbyggdum? Annars hef ég á tilfinningunni ad enginn lesi tetta nema Bragi...tetta er kannski bara fjútæl.

À morgnana fer ég í skólann med sporvagni númer fjögur. Hann stoppar vid Berzeliigatan. Tar fer ég út. Næsta stoppistöd tar á eftir er Korsvägen. Jæja, í morgun var saklaus vegfarandi myrtur med exi vid Korsvägen. Sæll. Tetta er sjúkt. Gaurinn var bara ad bída eftir strætó á fimmtudagsmorgni tegar einhver brjáladur madur kemur og myrdir hann med exi? SJÚKT. Tetta er eitthvad sem er ekki hægt. Madur les af og til um mord í borginni, en tau gerast öll einhvers stadar í úthverfunum og um midja nótt. En tetta er gjörsamlega sikk. Svo er líka skemmst ad minnast skotárásarinnar vid veitingastadinn rétt hjá skólanum sídasta haust. Tetta er ótrúlegt. Tetta er eitthvad sem madur á ekkert ad gera rád fyrir tegar madur fer út á daginn. Ad einhver rádist á mann med exi og myrdi mann. Eda ad madur eigi á hættu ad lenda í skotárás í midbænum á föstudagskvöldi.

Èg var á masterklassi í dag med píanistanum Jim Beard. Hann er svona hálfgerdur fusion gaur. Tad var ágætt. Jæja, ég hlakka til ad heyra í ykkur...einhverntíma...