miðvikudagur, júní 30

Hér er ordid rakt og yndislegt, búin ad aefa mig í fimm tíma í dag, thad met vetrarins held ég bara. Ó hvad tónlistin er nú yndisleg!!! Vid Tóti skundum nú út á i-pünktle ad borda schnitzel og horfa á fótbolta. Inntökuprófid mitt er á mánudaginn, vid verdum 250 talsins. Allir ad pressa thumlana fyrir mig! 9. Júlí mun ég svo fagna heimferd í hallargardi efri med kjöt og bjór marathoni vid grillid. Ahhhhhh. Besta hvatning í heimi er ad hugsa um bjórinn sem madur faer eftir erfidid.
Sumarsjússkvedjur frá píanósnillingnum GD

mánudagur, júní 21

Beid 11/2 klst eftir mida á Turandot sem ég fórnadi fyrir hann Tóta minn thví ég er svo gód kona. Fór sjálf á Tróju í stadinn, hélt ad Brad Pitt yrdi allavega saetur, en thad var nú meiri ógedslega lélega myndin! Thetta var einsog einhver hommaklámmynd, Brjánn fraendi var olíuborinn og hálfnakinn allan tímann, Helena fagra ljót og algjör aumingi einsog allar hinar konurnar í myndinni, bardagaatridin tölvugerd og bodskapurinn sá ad mestu hetjur heimsins séu their sem hlýda skipunum ad ofan og berjast í strídi. Styrkt af ríkisstjórn USA ábyggilega. Oj Oj Oj.

sunnudagur, júní 20

Tek thetta med EM til baka, húrra fyrir Tékklandi, frábaer leikur, na!
Brúdkaup Figarós var ógedslega skemmtilegt, sérstaklega Figaro sem leit út einsog Soprano gaurinn og söng einsog engill. Aetla ad reyna ad fá mida á Turantot, en thad er sídasta sýning í kvöld. Á naestunni kemur svo Tokyo ballettinn í heimsókn med rosaprógramm; Eldfuglinn og Vorblótid!!!
Fór of geyst af stad med puttann, er ordid illt í honum aftur og komin í smá thunglyndi og vonleysi med inntökuprófin og tónleika framundan. Dró til baka mest allan thátt minn í Rhythmiksýningunni, er nú adeins í thremur atridum, vísum vatnsendarósu med tóta og maggíu og tveimur hreyfiatridum. Getur einhver skilad innilegum hamingjuóskum til Önnu fyrir mig? En hvad hún er nú dugleg stúlka. Aetlar hún ekki í marathonid líka?
Jaeja best ad fara á bekkinn ad bída eftir aefingaherbergi. Skrifid nú á ofninn í góda vedrinu, ég sakna ykkar svo mikid!

föstudagur, júní 18

Hvenaer koma thessar poppstjörnur endanlega heim eiginlega? Er madur ekkert ad fara ad hittast á naestunni? Oh mig vantar 4 sent uppá ad geta keypt mér kaffi í vélinni, thori ekki ad bidja neinn um lán. Brullaup Figarós óperunni í kvöld og madur er ad paela í ad skella sér. Finnst ykkur ekki EM soldid slöpp hingad til? Mér finnst ég barasta alltaf vera ad horfa á einhvern FH-Breidablik leik!

fimmtudagur, júní 17

Kóresk stúlka sem ég kannast lítilsháttar vid var med tónleika í gaer. Hitti hana í gaermorgun og sagdist myndu koma ad hlusta á hana, en um kvöldid var ég ad aefa mig og gekk eitthvad svo vel ad ég ákvad ad fara ekki. Thegar ég var búin ad aefa mig fór ég fyrir utan tónleikana til ad hitta vinkonu mína sem fór ad hlusta, aetladi ad fá hana med mér á barinn ad horfa á fótboltann.
Fólkid streymdi út úr tónleikasalnum, thar á medal kóreska stelpan og ég óskadi henni vandraedalega til hamingju med tónleikana. Ég var nú ekkert ad segja henni ad ég hefdi ekki komid, fannst thad svosem ekkert mikid mál. Allavega. Nú kemur rosalega ríkmannlegur madur advífandi og tilkynnir ad hann vilji endilega bjóda okkur vinkonum hennar Tee Yun á restaurant ad thiggja mat og drykk. Thetta var thá studningsmadur hennar, forríkur hjartaskurdlaeknir med rosafína perlukonu med sér. Til ad saera hann og Tee Yun ekki ákvad ég ad koma med. Allir veitingastadir í nágrenninu voru fullir af fótbolta thannig ad hann krafdist thess ad bjóda okkur heim til sín thar sem vid gaetum bordad og drukkid, spilad á píanó eda farid í sundlaugina hans sem vaeri med öldufítus. Vid slógum til og keyrdum í brjáludum Bens í rosalega villu umkringda kirsuberjatrjám og rósum. Af svölunum sá madur yfir alla borgina og hann sagdi okkur ad hann aetti líka húsid vid hlidina thar sem dóttir hans byggi. Svo var opnad kampavín og eldadur dýrindismatur og var kvöldid yndislegt í alla stadi, stúlkurnar spiludu á fílabeinsbösendorferinn og hjartaskurdlaeknirinn fraeddi okkur á thví ad ef allar aedar líkamans yrdu bundnar aftaní hverja adra myndi thad naestum ná til tunglsins. Ad lokum keyrdi hann okkur allar heim(á ödrum bens)og vid töludum um hvad thetta hefdi nú verid dásamlegt kvöld. Ég var naestsídust í rödinni og thegar ég steig útúr bílnum thakkadi ég kaerlega fyrir mig og kvaddi. Thá kalladi Tee Yun á eftir mér: ,,Og Gudrún, thakka thér kaerlega fyrir ad koma ad hlusta á mig á tónleikunum, thad gladdi mig einstaklega mikid og var mér mjög mikils virdi!"

þriðjudagur, júní 15

Sorrí hvad thetta er einhaeft umraeduefni, en ég get adeins spilad med puttanum!!!
Fór á tónleika med Kissin í gaer, thad var fremur rosalegt. Hann tók FIMM aukalög og fólk, adallega ungar konur, komu alltaf naer og naer svidinu og aeptu og spangóludu af aukalagagreddu og addáun á snillingnum med klassíska afróid. Hann er alveg stórkostlegur píanóleikari, en thyrfti kannski ad fara í tvo thrjá rhythmiktíma if you ask me. Eda fara eitt ár og búa medal innfaeddra í Afríku. Finnst ykkur ekki hraedileg tilhugsun ad vera undrabarn og gera svo ekkert nema halda tónleika frá thví madur er 10 ára. Hann er 33ára í dag. Hvad aetli hann geri eftir tónleika?
Adal fidlusnillingurinn núna sem ég man ekki nafnid á í augnablikinu aetlar brádum ad haetta ad spila og byrja naesta kafla í lífi sínu thar sem hann aetlar ad keyra um Bandaríkin á mótorhjóli og skrifa barnabaekur.

föstudagur, júní 11

mölva hvad?
Djeggjad vedur sídustu daga. IceT á svölunum og Tóti getur ekki talad thví thá lídur yfir hann af hita. Get enn ekkert spilad med haegri hendi en hef ákvedid ad líta á thetta sem fall í lukkupottinn thví nú aefi ég vinstri alveg á fullu og ekki veitir af! Fer í naestu viku ad hitta einhvern osteopatha sem Dorothée rhythmikkennari maelti med. Hver veit nema hann geti laeknad mig med hugarorku eda nálastungu eda hvad thad nú er sem osteopathar gera.
Hei sídan er bannad ad haetta ad skrifa á bloggid, thad eru EKKI ALLIR komnir heim!!!

mánudagur, júní 7

Frábaer tímasetning!

Braut á mér haegri vísifingur í gaer og get ekki spilad! fékk mitt fyrsta gips í gaer sem nádi uppá olnboga, en bad um ad tad yrdi tekid af í dag, thví annars ryrna á mér vödarnir. Nú er bara ad koma sér í form fyrir inntökuprófid 5. Júlí. Ähhm....
Takk bragi, fyrir yndislegar myndir af yndislegu fólki í yndislegri náttúru!!!

föstudagur, júní 4

Húrra fyrir óla grís, óla grís, óla grís, já húrra fyrir óla grís, ÓLA GRÌS!

fimmtudagur, júní 3

Búin ad vera lasin, en maett aftur öflugri en nokkrusinni fyrr...ad hanga á netinu í stad thess ad aefa mig. Ég er mjög forvitin ad vita í hverju ég hafdi alltaf rétt fyrir mér (thad var ekkert á linknum), ekki thad ad ég hafi ekki vitad thad samt!
Kem ekki heim fyrren seinnipart júlí bö mö flö ömurlegt. Sakna ykkar svo rosalega mikid ad ég er alltaf lasin bara. Velkominn, Pétur og góda ferd heim allir!

Ojojojojoj!

Nuna er madur bara hress a thvi i Skandinaviulandi og thad get eg nu sagt ykkur ad skandinavia er bara helviti finn baer. I gaer sneri eg aftur til Gautaborgar i einn dag og fyllti thann dag upp af afengi svo nu er eg thunnur eins og nal. Nadi ad hitta nokkra gamla kunningja og endurskoda baeinn og livet. Thad er sidan heldur betur farid ad styttast i ad mann komi heim til sin i Hellulandid og hitti alla a ny. Eg fekk straum i hjartad og engdist um af saknadarfrenzy thegar eg sa thessar myndir er Bragi tok og a netinu birti, og nu er eg votur eins og myri. Thad er buid ad vera mycket stud a thessum tur, og ekki minnst fyrir thad ad hafa getad hitt svo marga veni og kunningja sem eru alltaf ad dandalast i utlondum eins og haensn. I kveld verdur thad Dagny nokkur Skuladottir sem aetlar ad vappa inn i salinn og taka nokkur spor on the dansflor. Aha, og nu verd eg ad stokkva. Eg byst vid ad koma heim a manudaginn 7. juni, thad er naesta manudag. Wahu!