sunnudagur, september 12

Iss ég vorkenni þér ekki baun góði minn. Þú ert þó kominn með íbúð. Er á leiðinni í leiðangur að hengja upp íbúðarauglýsingar á ljósastaura um gjörvalla borg. Það skilaði ekki einu einasta símtali í fyrra, en núna gerði ég þær á tölvu, þannig að þær eru mjög traustvekjandi, sannfærandi og umfram allt unaðslegar. Gleymdi að segja frá því í gær að það skeit dúfa á hausinn á mér. Kona sem sá þetta samgladdist mér innilega því þetta boðar víst mikla gæfu. Ég þarf því ekki að hafa neinar áhyggjur!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home