miðvikudagur, ágúst 31

Sælir vinir nær og fjær. Þetta er Kristinn R. Ólafsson sem talar. Ég og Eloísa vorum að koma heim eftir vikulangt ferðalag um Ísland, fórum hinn svokallað hring, með allskyns útúrsnúningum. Þetta var hreint magnað og algjör óþarfi að fara til útlanda til að sjá eitthvað merkilegt. Ég keyrði 2400 km á 7 dögum, sem er persónulegt met.

Annars er lítið að gerast. Ég reyni að vinna í MA-ritgerð sem ég á að skila af mér eftir fáeina daga, en tími ekki að eyða tíma í það þar sem Eloísa fer eftir fáeina daga.

fimmtudagur, ágúst 25

rakst á thetta merkilega band--> http://www.rokk.is/default.asp?Flytjandi_ID=1794&sida=um_flytjanda

mánudagur, ágúst 22

Ó krakkar, þið eruð svo miklir krakkar, ha, æ krakkarnir mínir, krakkarassgötin mín, já já, jæja þá, krakkaspóarnir mínir, haldið áfram að standa ykkur eins og hetjur, já hetjur, þið eruð öll hetjur, heyriði það, kakkalakkdollurnar mínar, hetjur.

mánudagur, ágúst 15

Og svo vil ég þakka öllum fyrir mætingu og yndislega skemmtun í brúðkaupinu okkar Tóta, og fyrir frábærar gjafir. Við elskum ykkur!
Tilfinningarnar eru að bera mig ofurliði. Ekki aðeins það að giftast, hitta vini og fjölskyldu og vera að fara að aðskiljast, heldur er ég að uppgötva Beethoven eftir öll þessi ár. Þetta mun vera mikill tilfinningalegur seinþroski, flestir tengja við Tunglskinssónötuna þegar þeir eru 12 ára, en ég fyrst í gær. Ég held ég sé að breytast í manneskju. Píanóið flýtur í tárum.

Takk fyrir gott partí og djamm og djæja um helgina!


Fórum svo á kaffi menningu og það var stuð.

fimmtudagur, ágúst 11

Hæ!

Hæ! og takk enn og aftur Bragi fyrir afmæliskveðjuna. Vildi bara tilkynna að heimasíðan mín hefur verið opnuð áný

http://www.student.lu.se/~htx00eey/index1.htm

Ekkert fancy, bara smá af mér. Krútt...