sunnudagur, september 19

Frír fitnesssenter

Er komin með íbúð og má flytja inn 1. okt!!!
Fór í gær að skoða áðurgreint herbergi sem hljómaði svo vel en var ekki sannfærð. Fimm manns að kúldrast í pínulitlu ógeðslegu eldhúsi með tveimur stólum og engri þvottavél heldur þvo í baðkarinu. Ég vissi að ég myndi ekki meika það og þá sagði leigusalinn mér að á hæðinni fyrir ofan væri laus 2herbergja íbúð sem ég gæti fengið. Hún er hljóðeinangruð og nýmáluð með nýju gerviparketi og voða sæt. Reyndar þarf ég að hlaupa upp ca. 700 tröppur til að komast í hana og hún kostar 40.000 á mánuði en ég sleppi því þá bara að kaupa mér kort í líkamsrækt í staðinn og fæ mér smá vinnu. Allt til að eiga eigið eldhús með gaseldavél og borðkrók. Svo er ég bara 3 mínútur að labba í skólann og get fengið gesti einsog ég vil! Senst: Allir velkomnir í Schützenstraße 8 í kaffi gistingu og meððí.
Gott plan hjá þér Dagný, mér finnst nú ekki spurning að þú kemur auðvitað til hennar Guddu þinnar að ári liðnu, ha. Við saman á markaðnum, við saman í sólbaði í garðinum með risastóran hveitibjór...
Eiki, ætlarðu ekki að svara ímeilinu mínu?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home