þriðjudagur, september 14

Jæja þá er dána konan búin að hringja og þykir okkur ver og miður að þurfa að flytja burt úr vínviðsvaxna kotinu hennar Helgu Rósar þar sem lævirkjar syngja og rafvirkjar hringja.
Í gær fórum við í heimsókn til Maggýjar sem býr í frábæru húsi á frábærum stað. Í þessu húsi búa bara tónlistarmenn og eru engar reglur til um "musizieren" nema aukaregla sem segir að helst skuli maður alltaf vera að æfa sig. Allavega, í gær heyrðum við því kjaftað yfir limgerðið (skapahár á köllum?) að íbúðin á jarðhæðinni væri að losna í byrjun nóvember. Ég hringdi í leigusalann eldsnemma í morgun og hún ætlar að athuga málið, sagði að ég kæmi vel til greina!!! Það eru fleiri um átuna, til dæmis annar maður sem býr í sama húsi og vill fara frá konunni sinni en ekki of langt frá barninu. (þjóðverjar!) Það væri of gott til að vera satt ef maður fengi þettað, alveg mátulega stórt, 10 mín í skólann, 3 metrar til lofts og meira að segja BÚR! innaf eldhúsinu. Tóti segir mig storka örlögunum með því að æsa mig svona og gaspra um þetta en ég tek ekki þátt í svoleiðis vitleysu.
Nú skal haldið út að kaupa döner og maka honum framan í sig. Og bjór með!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home