laugardagur, mars 31

Hó hó og heilun, tad er saturdey og ekkert er betra en ad æfa med swingbandi á laugardeyji. Heimasída klúbbsins er heptown.com og bendi ég á ad fara nedst á síduna og beina athygli sinni á reitinn Swing Right Now. Tar er ad finna Club Hepcat, Gbg tann 4/4. Ytid á tad og sjáid lysingu á swingbandinu. Vid heitum sko Wildcat Swingers. Sídan á ad koma vidtal vid söngvara okkar í Metro á midvikudaginn. Húlla jibbí, maskínur geta rúllad í tessari borg! If I can make it here I can make it anywhere, its up to yoo, jöötee, jöööteeeeee(boorrg)!

Tess má geta ad ég er hálfpartinn mótfallinn tessu bandi en tad er allt í lagi, ég verd horfinn innan skamms. Ekkert persónulegt, en ágreiningurinn á sér stad á fagurfrædilegu og hugmyndafrædilegu stigi. Takk. Ì kvöld er svo party hjá stillimyndarmanninum. Tá ætla ég ad drekka raudvín og fá hausverk. Ò, tetta líf!

fimmtudagur, mars 29

Ekki láta blekkja tig, Sverrir, Elísabet er ekkert annad en auglysingaherferd fyrir magaæfingatækid Elite Abs. Tú hefur verid valinn inn í dulinn hóp tilraunadyra sem verda fórnarlömb tessarar auglysingaherferdar. Ef ad er gád má sjá ad Elísabet er dulnefni og stafarugl á Elite Abs. Eigandi fyrirtækisins er Hafsteinn í Dairy Queen, en hann er einmitt einn sá skædasti í auglysinga-og kynningarherferdum hér á landi. Tessi hugmynd er upprunalega komin frá Japan. Innan skamms mælir tú tér grunlaus mót vid Elísabet og bydur henni í raudvínsdreitil og tapas heima hjá tér. Tegar tú sídan opnar dyrnar hid örlagaríka kvöld mun blasa vid tér madur á trítugsaldri í svörtum og neonbleikum Elite Abs tolfimigalla. Ef vel er gád má sjá ad hann er einnig styrktur af Jónatan Livingston Mávi, en tad er önnur saga. Tetta kvöld mun hann ítrekad halda tví fram ad hann heiti Elísabet, en sökum vel tjálfads sjónminnis tíns muntu sjá ad tetta er engin Elísabet, tetta er sjálfur Magnús Scheving. Hann rydst inn og dregur upp úr pússi sínu Elite Abs tækid (executive version). Tad fyrsta sem tú tekur eftir er hversu létt og medfærilegt tækid er. Tú ert einnig hrifinn af möttu, krómudu yfirbordinu, sem ljáir tækinu fágadan blæ. Magnús skellir tækinu á gólfid og hefur umsvifalaust æfingar. Sökum vel tjálfads sjónminnis tíns minnist tú ekki ad hafa séd neinn mann skemmta sér jafn vel vid magaæfingar, og tú getur ekki annad en gladst med Magnúsi yfir tessu einstaka tæki. Eftir nokkrar laufléttar æfingar getur tú ómögulega haft nokkud á móti manninum og bydur honum ad fá sér sæti og tiggja tetta lítilrædi sem á bodstólum er. Tremur klukkustundum og mörgum hláturrokum sídar hefur tú fest kaup á Elite Abs Executive Version og ert alsæll. Tremur mánudum og mörgum trælskemmtilegum magaæfingum sídar kviknar á litlu raudu ljósi í Elite Abs og hús titt springur í loft upp. Ekki láta plata tig, Sverrir...EKKI SVARA NÆSTA SÍMTALI!!

neinei. bara ad djóka.

Hahaha. Tarna platadi ég tig. Tetta var nefnilega ég allan tímann. Hahaha. Ertu ekki hissa? Èg gleypti stolna krít frá skólanum og hringdi sídan í tig frá Svítjód í gærnótt - algjör brella. Svei mér tá. Hahaha. Dísus djók Sverrir. Tú ert nú meiri vitleysingurinn.

miðvikudagur, mars 28

Bragi fær tvær stjörnur í samúdarskyni. Annars hef ég fundid upp nytt sprey, svokalladan samúda, sem hægt er ad úda á sig eftir törfum. Auk tess virkar údinn prydilega sem hársprey.

Gódan daginn sjálf. Tegar ég kom heim í gærkveldi um ellefuleytid ákvad ég ad setjast inn í eldhús og chilla á pakkanum med tebolla í hægri og samrædur í vinstri. Eitt leiddi af ödru og ádur en ég vissi var klukkan ordin hálf trjú og triggja tíma samrædur voru ad baki med hæstvirtum tátttakendum Anders og Köjsu í hámarki. Tetta er nokkud merkilegt. Tetta minnir jafnvel á badstofur fyrri alda tar sem fólk sagdi sögur langt fram á nótt. Einnig vard ég ad (sænskum) manni í nótt, tar sem ég gekkst undir manndómsvígslu á sænska vísu. Èg prófadi snus, og tad án tess ad æla. Tetta var mjög skrytid. Madur setti tetta undir vörina. Fyrst stingur tetta svolítid, sídan verdur tad heitt og sídan fær madur nikótínkikk. Ì stuttu máli svimadi mig bara og ég var máttfarinn í nokkrar mínútur. En nú er ég sem sagt ordinn Svíi.

Anders fékk sér kærustu um daginn (eins og ad drekka vatn). Ad vissu leyti er hann sami madur og ádur. Hann gengur enntá í svörtum fötum med pentagrammyndum á, er snodadur og stundar indónesískar bardagaítróttir. En skyndilega er hann hættur ad steikja sér pulsu eda hamborgara. Òjá. Anders er farinn ad baka, og tad med kærustunni. Tad er merkilegt. Hann er búinn ad kvengerast. Tau er jafnan ad finna í eldhúsinu med svuntur og smjördeig í hönd, bakandi litlar bollur eda pæ. Lokastiginu var nád tegar hann sagdi vid mig um daginn: "Eiki, langar tig ad koma med okkur á skauta í vikunni?". Djöfladyrkendur fara ekki á skauta. Ekki nema teir séu ad leyna einhverju. Hann liggur sennilega í andlegu bjarnarhydi og undirbyr einhverja hrædilega áætlun um ad deyda alla frumburdi í heimasveit sinni. En tangad til mun hann baka bollur og fara á skauta med bros á vör.

þriðjudagur, mars 27

1. Lögmál Benedikts, "tad sem ég snerti, tad hreyfist hægar" er eitt tad magnadasta sem ég veit um.

2. Ì morgun fann ég arabíska útvarpsstöd í græjunum. Hlustadi ég á fréttir og vedur. Manninum lá afskaplega hátt rómur. Ì lok fréttatímans sagdi hann eitthvad stutt og hnitmidad sem rímadi. Èg leyfi mér ad álykta ad tetta hafi verid arabíska leidin til ad segja "ekkert stress - aldrei bless - loch ness".

3. Ì sporvagninum voru um tad bil fjórir til fimm amerískir blökkumenn ad bösta rímur. Teim lá einnig hátt rómur. Sennilega af tví ad teir sátu aftast og vildu ganga úr skugga um ad fólkid sem sat fremst í vagninum gæti líka heyrt í teim. Ef eitt ord ætti ad standa upp úr hvad vardar tídni og fjölbreytta fraseringu, tá væri tad sennilega enska ordid "ass".

4. Tad er komid vor og fólk er ordid merkjanlega meira hipp en fyrir nokkrum vikum.

5. Og núú tarf ég ad fara í klippingu.

mánudagur, mars 26

Hérna.

Mér finnst svo gaman ad blogga ad ég vil gjarnan bæta vid einu slíku í vidbót.

Hefur einhver upplyst samtykki á Ìslandssíma sem gsm-fyrirtæki? Teir virka soldid kúl. Frítt talhólf er módir mín í tessu tilfelli. Einhver?

Heyrnatólin mín fengu óged á mér í dag og ákvádu ad gefa mér raflost. Mér brá. Tad er gott. Bless.

laugardagur, mars 24

Èg hef ödlast hæfileikann til ad skilja konur. Og tá meina ég ekki ad ég skilji sænsku, tví sænsku hef ég skilid í fleiri mánudi. Èg á vid ad ég fékk leiftrandi innsyn inn í kvenlægt sálarlíf nyinnflutts gangafélaga míns. Hún heitir Kajsa og hatar karlmenn. Hún tönnlast á tví ad menn séu svín. Gegnum samtöl vid vidfangsefnid hef ég komist ad tví ad hún á fósturfödur. Geri ég rád fyrir tví ad líffrædilegur fadir hennar sé í raun réttri svín og hafi yfirgefid fjölskylduna fyrir tuttugu og triggja ára gamlan ritara sinn. Ef grunur minn reynist réttur búa tau nú á nektarnylendu á Bali og fadirinn hefur aldrei samband. Hún hefur ordid fyrir vonbrigdum med födur sinn og yfirfærir reynslu sína af honum yfir á gervallt mannkyn. Ef til vill átti hún leidinlegan kærasta í fortídinni. Foreldrar hennar eru sósíaldemókratar og vinna sem pólitíkusar. Kajsa drekkur lífrænt ræktada mjólk og fer í gáfnafarslegt reipitog vid fólkid á ganginum. Kajsa er í læknisfrædi. Kajsa er ad leita ad födur sínum.

Med tessum einstaka hæfileika mínum til ad skilja konur mun ég túra um Tyskaland nú í ágúst og bjóda adstod mína hvar sem mín er törf. Umbodsskrifstofa mín er í Nürnberg, sími 064 48 49160 19. Hringdu núna! Einnig má bóka mig á heimasídu minni, www.thevaginalsympathiser.com.

föstudagur, mars 23

Ì morgun var masterclass med brasilískum trommara. Tad var mjög skemmtilegt. Hann var mikil tækni. En tad sem mér fannst skemmtilegast var tegar hann lysti tví tegar tónlistarfólkid frá hinum fátæka nordausturhluta Brasilíu kom sudur til ad spila fyrir fátæku námaverkamennina "to make them happy". Tetta var svo fallega sagt; med brosi, pírdum augum og erlendum hreim. Tetta var bara aukaatridi fyrir honum, sjálfsagt ad láta tetta fylgja med tótt tad segdi sig eiginlega sjálft. Svo einfalt: tónlistarfólkid ferdadist um og spiladi fyrir annad fólk til ad gera tad hamingjusamt. Kjarninn fangadur í einni setningu án tess ad pæla í tví. Bjútifúl.

fimmtudagur, mars 22

Gratínerad tarmasull med dilli og kristjánssósu.

miðvikudagur, mars 21

Ég lysi yfir vantrausti á sjálfan mig fyrir ad láta tennan vidbjód sleppa úr höndum mér.

Èg á bara ekki ord yfir tví hvad dagarnir lída hratt um tessar mundir. Inn, út og sídan svefnpása á milli daga. Tetta er ordid allrosalegt. Kebabilúlla.

án nokkurrar ástædu mun ég nú semja verkfrædiljód:

verkfrædi, tú ógleymanlega tóm
hver skóptadi tig?
ertu kannski strikid
milli eks og uffsilon?

tetta litla strik?

dulitla prik?

VID KUNNUM EYRJÍKI TAKKIRFYRIR TETTA DULITLA PRIK. TAKK EIRÍKYR. kebab fyrir mig.

þriðjudagur, mars 20

Nei, of augljóst. Hvad med Salatbudda, og tad med nordlenskum framburdi. Jafnvel senapsgeymsla.

Vardandi Shooting Blanks, tá skal tad kunngjört ad Hreimur er gódvinur minn frá tví úr æsku og ég veit ad hann mun gera sitt besta. Sama tótt einhverjir fúlir poppskríbentar kunni ad ómeta tad sem teir gera. En ég stend vid tad, Hreimur og félagar eru ágætis strákar. Hann er meir ad segja gódvinur minn úr Ìsaksskóla hann Hreimur. Mig minnir ad vid höfum bakad saman súrdeigsbollur í matreidslu...tad hefur verid sennilega um svona '87...Stebbi náttúrulega kemur alltaf til ad verda rosalegur áhrifavaldur á tad sem Hreimur gerir, hann er náttúrulega grasrótin. Tad er tad sem ég segi sko...

En nafnid...Shooting Blanks? Ætla teir ad vera med vitundarvakningu um getuleysi samhlida poppstjörnuferlinum? Komm on, tetta nafn gerir ekkert annad en ad benda á getuleysi (úps) teirra. Af hverju ekki ad heita Flash Accent and his Impotent Popsicles í stadinn? Annars er Hreimur gódvinur minn frá tví úr Melaskóla.

mánudagur, mars 19

Tvílík tiltrif syndi ég í dag tegar ég hreinsadi ískáp minn af innanmeinum og fornum pestum. Tetta var ótrúlegt. Mér lídur eins og ég hafi ekki adeins hreinsad ískáp, heldur einnig sál mína í leidinni. Kannski tetta sé efni í skáldsögu? Jafnvel fimm binda metsöludjók?

Sídan vil ég fagna ákaflega teim einstaklingum er birtu persónu sína í bréfalúgu minni í morgun. Djöfull var gaman ad fá tvö bréf í einu! Tjekk it át sko. Sverrir og Gudrún Dalía fá femm stjörnur fyrir sjálf sig í dag. Ì gær fengu Benni og Bragi sitthvora stjörnuna fyrir símtal um lífid og ad lokum fékk Audur Jöfursdóttir stjörnu fyrir blogg sitt í gær. Hún er skondin píka. Èg mun halda áfram ad gefa vinum mínum stjörnur fyrir athæfi sitt í framtídinni. Tannig geta tau verid viss um ad einhver fylgist med teim og lætur sér annt um líf teirra. Ì lok hvers árs mun sídan birt uppgjör tímabilsins í Lögbirtingabladinu og kemur tar væntanlega í ljós hver er besta manneskja hvers tímabils. Tid skiljid ekki ad lífid er einskis vert án frammistödumats og samanburdar. En tetta er heilagur sannleikur, rétt eins og nidursodnar ferskjur í krukku eru sannleikurinn í sinni hreinustu mynd.

sunnudagur, mars 18

...já, tad er rétt...Bragi er horfinn til Borneó (eda Bordeux, ég man aldrei hvort tad var...jæja, allavega) og ég hef verid ad blogga í hans nafni undanfarna trjá mánudi. Èg held hann sé búinn ad opna sólbadsstofu tarna úti. Og verslanamidstöd fyrir ólögleg vopn og saltadar rækjur. Eda eitthvad. Jæja, ég bara...hérna vid sjáumst.

Èg vil færa fram takklæti og velgjörd til fulla fólksins sem hringdi í mig á föstudagssnemmkveldi. Tad var gott. Tad minnti mig á hvad ég hef sjálfur gert ótrúlega lítid af tví ad krassa kynningarparty med ókeypis kampavíni og veseni. Òójá...djöfull verdur tad gert af krafti tegar heim er komid. Tessi mögnudu síddegi sem renna saman vid kvöld og sídan er komin nótt...já, nóttin ó nóttin. Hvenær bídur tú mín til gefja? Hver skildi sídustu setningu? Mætti ég panta íslenskufræding...hmmm, ég veit Bjarni Bjen! Hvar er sá drengur? Hvurn andskotann vill hann upp á dekk. Og djöfullinn.

(Rökfrædilegt samhengi tessa bloggs verdur rætt á tingi í Norræna Húsinu tann 7. apríl næstkomandi undir stjórn Hannesar Hafstein og Egils Helgasonar)

laugardagur, mars 17

Halló palló kripplingar! Ég er á leiðinni í IKEA í Malmö. HMM ikE-A eins og það er borð fram á sænsku.

föstudagur, mars 16

Saelir og blessadir!
Eg sit nuna i tölvunarsal i stjornmalafraedistofnuninni i Lundi. Er ad vinna ad verkefi med hop um RPR en thad er ihaldsflokkurinn i Frakklandi. Frakkar eru ekki eins og eg helt ad their vaeru: eld-raudir ronar med baguette undir hendinni. Heldur eru their bara einhverjir kúkar sem trúa á sterkt Frakkland sem er aetlad ad stjórna heiminum. Eflaust er nu samt mikil fjölbreytni thar eins og annarstadar en flokkurinn er sterkur og hefur oftar en ekki verid i meirihluta i "assamble national" (thinginu). Chirac er leidtogi flokksins en hann er forseti nuna. Forseti Frakklands hefur völd en samt ekki. Meiri völd en Olafur Ragnar en minni völd en Saddam Hússein eda Fidel Castro. Völd forseta frakklands maelast eiginlega i thvi ad hann getur byggt mergjadar byggingar hvar sem er, hvenar sem er an thess ad spyrja neinn. Mitterand let t.d. byggja Bokasafn sem kostadi 50000000000........endalaust KR. og pyramidan fyrir framan Luvre.(held eg). Annars er astandid a haegri vaengnum frekar slaemt nuna i Frakklandi. Flokkur Chiracs sem situr nuna i minnihluta er i vandamálum. Thad naest engin samstada vid UDF sem er flokkasamband annara haegri flokka a thinginu. Adal vandamálid thar eru evrópumálin og akvördun Chiracs um ad hafa evrópu-andstaedinginn Philippe Séguin fremst á sameiginlegum frambodslista flokkana i evrópusambandid, tha slitnadi uppúr umraedum um frekari samstarf og allt er i Lausu lofti. Front National (fasistaflokkur Le Pen´s) gerir hlutina verri med thvi ad tina atkvaedi fra RPR. Vidbrögd RPR´s vid thvi er ad boda samskonar stefnu og fasistaflokkurinn gerir i innflytjenda -og öryggismálum, sem er erfitt ad gera ef madur vill halda virdingu sinnu hjá skynsama íhaldinu og frjálshyggjusinnum. Thetta situr Flokkin i klemmu sem hann verdur ad leysa fyrir thingkosningar á naesta ári 2002. (TT)

P.S. Hvad er thetta Benni Ertu ad koma til Lundar med Viggâ? Hmm skrifadu meira ég tchekka á thvi í kvöld.

Ef madur gerir rád fyrir tví ad ég hafi fengid 5.600 krónur fyrir sjö sekúndna vinnu hefdi ég tar med fengid tæpar trjár milljónir króna á klukkustund. Tar med er ég kominn í tímakaupsflokk med ekki ómerkari mönnum en Eric Clapton og Paul McCartney. Takk kjærlega fyrir og nú ætla ég ad reyna ad kaupa mér byxi handa sjálfum mér. Sídan verd ég virkilega ad fara í klippingu. Ef tróunin heldur óbreytt áfram tá verd ég kominn med vængi eftir skamma stund. Jafnvel vænghaf á vid tignarlegan flamengóa. Tad væri nú ekki ónytt.

Èg var ad enda vid ad gera skrytinn hlut. Tetta fólst adallega í tví ad spila fanfare í sjö sekúndur á medan fulltrúar Byggdaráds Mölndals tóku skóflustungu ad nyjum Hlemmi. Mölndal er Kópavogur Gautaborgar. Gautaborg er Kópavogur Svítjódar. Svítjód er Kópavogur Nordurlandanna. Allt tetta á sér stad á medan Kópavogur er Kópavogur sjálfs síns. Nei allavega, tá var tetta sem sagt samkoma um trjátíu manns (med áherslu á Manns, tví tetta voru flest allt midaldra fúlir verkfrædingar) ásamt fulltrúum medíunnar. Jättekul. Sídan í sporvagninum á leidinni aftur í skólann sá ég fleiri Àrmúla og Sídumúla en ég kærdi mig um ad sjá. Èg er búinn ad fatta ad ég by á gedveikt gódum stad í bænum. Tad er ekki ljótar byggingar ad finna á leidinni í centrum. Jejeje. Òkei kannski svona byrja tær ad verda ófrídari svona sídasta hálfa kílómetrann, en what the hey...

Hvernig var á Mogwai? Og hvernig gengu tessir tónleikar Benna á Sirkus?

ps. ég fékk 600 kall sænskar fyrir spelid. Tad gjöra um tad bil fimm túsund og sex hundrud kránur íslenskar. Who's da maaan?

miðvikudagur, mars 14

Èg rakst á enn eina plötubúdina í gær. Ì tetta skiptid var tad sérstök latin-plötubúd sem sérhæfdi sig í latin tónlist (takk). Tetta var samt eiginlega ekkert kúl, tetta voru bara mest einhverjar óáhugaverdar Latin compilation Hits safnplötur frá 1992 og svoleidis rusl. En tegar ég ætladi ad fara út aftur kalladi eigandinn á mig, sem tangad til hafdi fiktad í bókhaldinu sínu á fartölvuna sína. Hann stökk til búdarbordsins, nádi í flyer og rétt mér hann. "Miss Latina 2001" tann 27. apríl. Latino fegurdarsamkeppni í Gautaborg. Jess! Lengi lifi menningarkokkteilsósa Evrópu!* Og sídan var tad eitt í vidbót sem synir dugnad og festu Svía: Um daginn var opnud stærsta Vero Moda búd í heimi í Gautaborg. Einmitt tad sem vid turftum. Takk.

*ekki má svo skilja ad ég sé fylgjandi fegurdarsamkeppnum per se, heldur var tetta fremur ódur til racial diversity Gautaborgar. Og sídan er ég alveg ad fara ad skipta algjörlega yfir í ensku á næstunni. Takk.

mánudagur, mars 12

Afsakid dónaskapinn, en tad er víst búid ad aflysa fyrirhugadri spilamennsku í Lundi sem ég minntist á hérna í dag. Tannig ad ég verd á æfingum tá helgi í stadinn. Afskaplega detikerad band tetta swingband. Æfir bara í stadinn fyrir ad spila. Tad er nú aldeilis. Tad var tá ekki fleira í bili...

Hmm...skítt med bílasprengjur, nú verd ég hræddur vid bréfasprengjur frá Afganistan...

Ìbúar jardarinnar vilja tjá takklæti sitt til Talebana fyrir ad sprengja mörg hundrud ára gömul risabúddalíkneski í tætlur í sveitum Afganistan. Hálfvitar.

Var madur ad nafni Benedikt ad halda tónleika á Sirkus? Hvad á tad ad tyda ad vera greifinn af pulsa án tess ad láta mig vita?

Annars hef ég umræduefni hérna til sölu. Svo er mál med vexti ad tad virdast vera til ákvednar gerdir af konum hérna í Svítjód og finnast tær jafnvel út um allan heim (hvad veit ég? hver er ég?). En tessar konur eiga tad sameiginlegt ad vera allar fíngerdar, med dautt músarlitt hár, menningarleg föt á mælikvarda níunda áratugarins og eru allar med ofnæmi. Tær finnast jafnan á tónleikum med kammertónlist tuttugustu aldarinnar, á bókasöfnum (gjarnan sem bókasafnsverdir) og á menningarstofnunum lífsins. Tær eru oftar en ekki fremur óadladandi og hafa gjarnan fremur vidkvæma húd, sem endurspeglast í óumbednum exemsflekkjum í andliti. Tær hafa dulid eda ódulid yndi af hannyrdum og klæda barn sitt í sægrænar og bleikar prjónapeysur (samkvæmt uppskrift úr Burda). Annars veit ég ekki...ég var allavega á svona kammertónleikum í gær og tar sá ég tvær ef ekki trjár svona konur. Og allar konurnar á bókasafninu í skólanum eru svona. Hvad er tetta mál? Generation Exem?

Vid tetta má bæta ad sjálfur er ég fullkominn og hafinn yfir gagnryni annarra.

Egill und Dagny: Èg er ad koma til Lundss(ar) 23. mars ad spila med swingbandinu Gbg Wildcat Swingers. Hvurnin væri ad hittast tá og sletta úr klaufunum eins og hamingjan sjálf? Èg held ad ég sé jafnvel líka ad spila tar 24. marz, og tá med dulitlu jazzbandi. Chica chica hwá!

Samkvæmt lögmálum um tjáningu vandamáls á alnetinu ætti Sverrir Bollason nú ad vera laus vid bílasprengjufælni sína. Gvusélov.

sunnudagur, mars 11

I am the king of pulsa.

Èg get gladur sagt ad med tví ad tjá mig um bílasprengjufóbíu mína á alnetinu hefur mér tekist ad yfirvinna hana. Nú get ég gengid um götur med stæl og án hrædslu vid skyndilegan dauda af völdum bílasprengja.

Einnig sat ég á öldurhúsi í gær, bragdadi absynthe og hlustadi á leidinlegan jazz. Tad var alveg hreint ágætis skemmtan. Tegar út var farid blasti vid bidröd inn á stadinn, pulsusali vid hlidina og rjómahvítur Jagúar med plötuspilara í skottinu tengdar vid risastóran 80's gettóblaster sem stód á bordi vid hlid bílsins. Èg merkti tad ad ég er ad verda gamall um leid og ég sagdi "já, tetta er nú kannski ekki svo ergonómískt setup hjá honum, hann tarf ad vera svo boginn í baki tegar hann spilar". Gud hjálpi mér hédan í frá.

laugardagur, mars 10

Òóó ég tarf ad vidurkenna nokkud, og tad er ad ég er ad jafnadi reidubúinn tví ad bíllinn sem ég labba framhjá hverju sinni innihaldi bílasprengju á vegum IRA og muni ad sjálfsögdu springa í sídu mína eins og prayer. En ég er stoltur af tví. Tetta er samt eiginlega bara bundid vid eina götu fyrir nedan skólann í Gautaborg. Hún er einhvern veginn svo bílasprengjuleg. Ò já, og George Bush ætlar ad koma til Gautaborgar á næstunni á EU rádstefnu. Hvad geri ég tá? Fel mig undir rúminu í trjá daga?

Einnig fór ég á tónleika med Marilyn Mazur and her band í gærkvöldi. Tetta var slagverksband med fjórum slagverkskonum og einni söngkonu. Klædnadur: Afrísk sjöl og heimstónlistarwear frá 1987-90. Einhverra hluta vegna vard tetta band ad kvenréttindatilkynningu, tó svo ad tær hafi ekki sagt neitt um neitt tví tengt. Tær urdu bara svona óafvitandi statement án tess ad hafa nokkud til tess unnid. Tjáning systralags eins og aldrei fyrr. Tær voru líka allar svo gladar á svidinu. Ein var meir ad segja svo glöd ad hún vard ad tákngervingi post-menopausal success á adeins fimm mínútunum og hélt tví sídan áfram tad sem eftir lifdi kvölds. Hún var meiradsegja glöd eftir tónleikana tegar hún var ad róta. Já, tvílík kona. Tess ber ad geta ad tetta voru frábærir tónleikar. Og nú er ég farinn (nú er ég faarinn) Nú er ég faarinn og búinn ad vera, spennandi torp, ekkert hægt ad geraa, NÚ ER ÉG FAARINN (sjúbb, sjúbb, sjehei)

Ekki allir vita tad ad Sálin hans Jóns míns var stofnud á sínum tíma sem soul og fönk band. En tad er önnur saga.

föstudagur, mars 9

Sælir strák-fjandar. Hvernig er lífið? Ég var að borða kebabpítsu með hvítlaukssósu. Hmm... einstaklega gott. Ég var að spá Sverrir, því ég skildi ekki alveg þetta sem þú varst að segja í sambandi við hitt í Köben. Gerir þú þér grein fyrir alvarinu í því sem þú varst að segja. Nei! Ég hélt ekki. Andskotinn! hvað eru Góa og útmánuðir. Er góa ekki í febrúar eða eitthvað. Gömlu íslensku heitin eru ekki mín sterkasta hlið. (ekki stafsetning heldur) Jájá. Útskýrðu þetta betur í næsta Bloggi. Hmm annars er ekkert mikið í fréttum. Annað en að þekking er bæði forsenda fyrir lýðræði og höfuð andstæðingur þess.

High fly, bæ

Tetta er alveg rétt Sverrir, tad er of mikil velmegun í Svítjód, tad tarf ad skapa smá kreppu hérna og jafnvel banna einn eda annan hingad-til-sjálfsagdan hlut. Til dæmis mætti afturkalla kosningarétt kvenna eda jafnvel hefja kalda strídid á nyjan leik. Jafnvel myrda eins og einn Palme til vidbótar, hver veit? Annars er verid ad syna leikrit hér um slódir sem heitir "Palme er myrtur fyrir hlé" og gefur tad til kynna ad Palme er ordinn gósentíd fyrir mormóna um allan heim. Svo hefi ég líka lesid ad Palmelidinu berast ad jafnadi fimm vísbendingar um mordid í hverri viku. Vá. Sídan langar mig líka rosalega í Palmepilot. Annars var ég ad spá hvort vid ættum ekki ad hittast allir á Seydisfirdi rétt fyrir næstu vertíd?

Gertrud

Undanfarna daga hef ég legid undir ásökunum og fordómum frá sambúendum mínum á Kjellmansgötunni. Ì fyrsta stad á ég víst ekki ad geta hlustad á tónlist eins og annad fólk tví ég er svo upptekinn vid ad analísera tad sem ég heyri ad ég get bara einfaldlega ekki notid tónlistar. Ì annan stad hef ég tad svo ógedslega létt ad vera ad læra tónlist tví ég er med svo miklu færri tíma í töflu og geri bara tad sem ég vil eda bara eitthvad út í loftid. Ì tridja stad hef ég adeins gaman ad tónlist ef hún er flókin. Tví flóknari tónlist og tví erfidara tad er fyrir fólk ad "skilja" hana, tví betur lídur mér med sjálfan mig af tví ad Èg by yfir kunnáttunni til ad skilja hana og meta ad verdleikum. AAAAAAAAAAAAAAHH! Og tad versta var ad tónlistin sem ég var med í græjunum í eldhúsinu at the time of the latter incident var Mack The Knife med Ray Brown og félögum, nokkud sem ég hugsa gjörsamlega ekkert út í sem flókna og erfida tónlist. Tad er tad sídasta sem mér dytti í hug ad kalla tá tónlist. Tetta er bara skemmtilegt lag spilad af skemmtilegum gaurum...og sídan fær madur svona drullu í andlitid.

Tad er líka fyndid ad fá svona framan í sig af tví ad manni hefur aldrei dottid í hug ad hugsa svona um sjálfan sig. Ad madur sé einhver tónlistarlegur elítisti sem fær kikk út úr tví ad hlusta á ædislega flókna tónlist. Og sídan veit madur ekki hvernig á ad bregdast vid tessu af tví ad madur hefur ekkert pælt í tessu. Já, hver er ég? Hvad er lífid? Èg lít bara svo á ad ég hef gaman af tónlist sem sándi fyrst og fremst, og sídan geta adrir hlutir komid inní sem auka á eda draga úr gildi hennar, til dæmis ef einhver er John Coltrane clone númer 1.473 eda spilar bara sömu hlutina aftur og aftur, eda tá ef ad einhver er med ógedslega gott TÆM (eh, Benni?) eda er í einlægum transi tegar hann spilar. Eda hvad sem er. Ég held sumsé ad ég hafi gaman af tónlist á sama hátt og hver annar. Am I right? Eda er ég bara ad bulla?

Annars eru sambylisgangaeldhúsdeilandifélagar mínir vænsta fólk.

Sídan er líka fólk sem mætir verri fordómum er tetta. Til dæmis voru tveir gaurar í sporvagninum ádan ad flauta og kalla á hverja einustu stelpu sem kom inn í vagninn med ljóst hár. Og allar voru tær bálreidar tegar tær stigu loksins út úr vagninum. Hálfvitar.

fimmtudagur, mars 8

Svíar eru ofbóðslega miklir keppnismenn. Það er nánast óþolandi. Það er varla hægt að fara í olsen olsen við þá án þess að þeir verða ógeðslega pirraðir yfir því að tapa eða sturlast úr gleði þegar þeir vinna........ Og það er mjög pirrandi að tapa á móti Svía. Hann byrjar að útskýra það hversvegna hann vann en ekki þú. Hann segir þér að þú sért í rauninni mjög góður og að þú hafir bara verið óheppin. Um dagin fórum við Dagný í saklaust Bakkamón spil á kaffihúsi við Pontus og Johan. Þeir einbeittu sér svo mikið að spilinu að hvorki var hægt að tala við þá um dagsins önn né líðandi stund. Svo unnu þeir og fóru að hlæja. Ég og Dagný urðum frekar gáttuð á þessu öllu saman en hlógum samt með. Þegar við svo stóðum upp til að fara, sögðu þeir að við ættum ekki að vera sár yfir að hafa tapað. Þeir sögðust hafa haft heppnina með sér og enda væri þetta í fyrsta skiptið sem við höfðum spilað bakkamón. Fyrr má nú keppnisandi kallast.

Sæl og blessud öll sömul. Og velkomin í tetta kaffisamsæti lífsins. Èg er alveg hreint. Ein spurning: Er ósmekklegt ad skyra lagid sitt Òbodin Bossa? Tótt ad tad sé Bossa Nova lag? Er ég kominn á hættulegar slódir hérna? À sænsku heitir tad Objuden Bossa. Èg veit hreinlega ekki hvar ég stend lengur, tetta sænska semihippaandrúmsloft er ad bjaga hipskynid mitt. Nafnid kom til af tví ad ég ætladi alls ekkert ad semja bossa nova lag tegar ég settist nidur til ad semja. Hvad á ég ad gera?

II. Hvad á madur ad gera tegar madur semur bossa nova lagid sitt med tad í huga ad Jim Black spili á trommur? Og enginn tekkir Jim Black í skólanum? Jú, madur tekur trommara ad nafni Petter og lætur hann spila í stadinn. Prestó. Pestó. Allt komid í lag aftur. Petter er med ótrúlega flott sánd á sjálfum sér. I just can't resists his groovy vibes. Petter kaupir einslítersmjólkurfernur og drekkur tær med hádegismatnum.

III. Ì raun og veru hef ég engan tridja stad hérna, en ég læt hann nú samt fylgja med for the sake of trinity. BLSS!

IV. Jù annars, ég er í hálfgerdu fríi næstu trjár vikurnar, tad er engin stundaskrá. Jibbí!

Um hvern var skrifað í blöðinn þegar hann fæddist? Hver á heima í húsi á litlum punkti sem sést ekki svo greinilega á milli stórra hringja á einhverskonar korti? Hver er skáldlegur? Guðmann eða Hermann?

Jæja krakkarar! Hér er ég. Egill. Skrifandi eins og aldrei áður. Ég er í fríi. Ég held að skólagangan mín í þessu landi hafi í rauninni bara verið eitt langt frí. Samt ekki þannig frí að ég hafi getað farið til suður evrópu eitthvað að chilla. Nei, meira svona eins og upplestrarfri en það eru einmitt verstu fríin. Maður er einhvernveginn frjáls en samt ekki. Maður getur alveg sofið út en er svo með samviskubit yfir því að hafa ekki vaknað fyrr til að læra. Trikkið er að hafa ekki áhyggjur. Segja bara við sjálfan sig: Þetta reddast! Allt saman! Ég horfði á hinn svokallaða kynþáttahatara í silfri Egils á strik punktur is í gær. Hvað var maðurinn að pæla. Þetta var eins og að horfa á menntaskólanema á náttúrufræðibraut vera að rífast við Albert Einstein um réttmæti afstæðiskenningarinnar. Hann sagði ekkert að viti. Hann gat ekki einu sinni látið vitleysuna hljóma vel. Melanín. Nú er verið að spila nýja Manic Street lagið í sjónkanum. Ef Manics og U2 sameinast væri örugglega hægt að koma á heimsfriði.

miðvikudagur, mars 7

t a d e r n ú a l d e i l is.

þriðjudagur, mars 6

Já, pallbord tilgangsleysisins skal tad vera. Èg nádi ekki alveg ad skilja tetta sídasta blogg til hlítar, en tad virtist snúast í kringum atburdi sem ég ei vissi af fyrr en nú. Voru semsagt Audur og Gunni med syninguna núna um helgina? Og er hún svo búin? Hverjir voru med werk á syningunni? Var tetta kúl? Mummi? Bragi? Hvernig var thö mjúsesik, Ben? Ì sambandi vid útgáfu, tá dettur mér helst í hug Smekkleysa og Tilraunaeldhúsid. Sídan mæli ég líka med tví ad tú bodir Jón Òlafsson á fund og lætur Bigga vera umbodsmanninn tinn. Tid gætud jafnvel brostid út í saung ef svo bæri undir.

Ì Svítjód eru til menn sem heita Urban. Teir eru víst alveg nákvæmlega eins og venjulegt fólk. Nema hvad ad teir halda sig gjarnan í téttbyliskjörnum Svítjódar og er meinilla vid allt sem heitir dreifbyli (tótt teir vidurkenni tilvistarrétt tess og mikilvægi fyrir hagkerfid). Einnig ku vera til smávaxnari typur af Urban, og heita teir gjarnan Sub-urban. Teir eru plötuútgáfa.

mánudagur, mars 5

Ì gærkveldi var ég treyttur og lúinn og var ad pæla í ad fara ekki á tónleika kveldsins. En nei, eitthvad sagdi mér ad hreyfa my gump down to Nefertiti og tad var sko aldeilis skemmtilegt. Tad var band frá Brasilíu og Bretlandi (betra ef tad studlar) sem kallast Da Lata. Èg hélt reyndar alla mína tíd ad tad héti La Data, en tad er misskilningur og jafnvel sönnun fyrir tví ad ég sé bleslindur. Allavega, bandid var mjög skemmtilegt, einhvers konar blanda af Sergio Mendez & Brazil '66, Cardigans, Spilverki Tjódanna, Eurovision og 70's Miles. Rosalega gaman. Sérstaklega fannst mér gaman ad horfa á breska trommarann, sem var einnig ljótasti madurinn í bandinu. En hann var ofsalega good. Sídan var líka slagverksleikarinn skemmtilegur og minnti mann á ad tad er ekki til einskis ad spila á tríhorn. Ònei. Sídan sá ég líka eftir tónleikana ad á plagatinu stódu frasar frá virtum tónlistartímaritum eins og DJ og Muzik. Tá var ég sko alveg fullvissadur um ad tetta hefdi í raun og veru verid kúl.

Einnig hef ég veitt tví athygli ad tad er aftur ordid kúl ad nota ekki punkt til ad ljúka setningum. Sjáidi bara Wallpaper

Sídan voru Undirtónar Svítjódar ad koma út, Nöjesguiden. Tar stendur dót um plötur sem ég vil kaupa en get tó eigi keypt af tví ad tad kostar peninga ad kaupa plötur. Èg er samt ad íhuga ad fara med Mithpeningana í heimsdótaplötubúdina og kaupa indverska, brasilíska, búlgarska og einhverska tónlist. Tad gæti ordid skemmtilegt, ójá. Jæja, verid blessud og líka sæl og skrifidi something, yo!

sunnudagur, mars 4

Yahá, ég var ad djamma med tremur Svíum í æfingamidstöd jazztónlistarmanna í Gautaborg, Bunkern. Tad er snidugt dæmi, tetta var algjör félagsmidstöd med tuttugu-trjátíu æfingaherbergjum. Alveg snidugt. Tad var líka gaman ad spila, vid djömmudum frá tólf til fjegur og var hvergi slegid af í djassinum. Já, fimm stjörnur. Hahahaha. Af hverju getur ekki verid svona á Ìslandi? FÌH leigir húsnædi einhversstadar í Brautarholtinu (t.d.) med fullt af herbergjum í. Brilljans og gatasigti. Tveir Svíanna höfdu verid skiptinemar á ìslandi ´96 og tekktu Hilmar og Sigga Flósa ásamt rjóma nemenda tess tíma. Tad var nú gaman! Dædædædæ. Ùpsajájá. Hla hla hla hladbord. SVAANGUUR!! (domino's pizza)

ég er kannski búinn ad segja tetta ádur, en sænsk pizza er vidbjódur á fati. Tunn, sölt og undarlega áleggjud. Gjarna med eggjum og kebabi. Øj Øj.

laugardagur, mars 3

Gódan daginn. Velkomst. Tack. Já, blogger er smitberi og ég hef smitad tig Benedictus. Tú ert hinn smitadi. Tad er sólríkt í borginni í dag og tess vegna keypti ég mér appelsínudjús, banan, jógúrt og grovbulle til ad eta milli æfinga í dag. Eda tad sem eftir lifir dags. Tad er samt snjór úti. And I'm still coughing. En tad bar til um tessar mundir ad ég óska tess ad eiga böns af monny til ad geta keypt böns af skífum handa shjálfum mér. Yea yea. Einnig bendir allt til tess ad Steinar hafi rukkad sjálfa Reykjavík fyrir Mith dæmid um jólin. Gott gott. Vid skulum adeins íhuga hversu gott vid eigum ad geta tjád okkur skriflega.

...

já...

tetta er nú aldeilis

föstudagur, mars 2

Bragi, tú sagdir mér aldrei ad tú hefdir verid í OK! Og ekki vissi ég ad tid hefdud breytt sjónvarpsherberginu! Jii! En munur! Haa!

Ord dagsins er Sverrir Bollason, tví hann sendi mér afskaplegt bréf skrifad á Ordning&Reda pappír. Einnig hef ég stofnad til ástarsambands med Irene úr raunveruleikasápunni Radio. Hún er mögnud.

Sverrir, ég hef lausn á vanda tínum og jafnvel fleiri en eina:

1. Fardu í ungnautapólitík. Tannig getur tú verid á kaffihúsi í jakkafötum med palmpilot og samt verid med markmid.
2. Fardu í vidskiptafrædi. Tannig getur tú verid á kaffihúsi í jakkafötum med palmpilot og samt verid í vinnunni! Hey! (tekur gildi eftir triggja ára undirbúningstímabil)
3. Fardu í vidskiptafrædi OG ungnautapólitík. Tannig sleppurdu vid undirbúningstímann og getur strax byrjad med jakkafötin og palminn án tess ad vera landeyda.

Ath. Tessar tillögur eru afar illa grundadar og fullar af rökvillum. Tær ber ekki ad taka alvarlega á nokkurn hátt og eru adeins til dægradvalar.

fimmtudagur, mars 1

hér med tilkynnist ad tilkynnt verdur nú ad Eiríkur Orri Òlafsson er tilkynntur heilbrigdur á ny eftir nokkurra daga veikindi og ömurd. Já, tad er rétt, ég er búinn ad vera med kvef og hálsbólgu og óged og hef ekki getad spilad á tromet sídan á laugardaginn, og er tad jafn ömurleg tilfinning og tad er gaman ad geta spilad aftur. Já hahaha! Èg sny aftur í formi lifnipillu handa blogginu og trysti sjálfum mér í munnhol tess, skolast nidur í maga med vatni og leysist upp í luxus æterna, lífpower alheimsins og triggja mánada ókeypis áskrift ad Vikunni. Gúdd bless jüü all and hev a næz dey.