miðvikudagur, mars 16

Komin í frí!!!

...En tharf ad aefa mig massa mikid fyrir masterklass (meistaraklessu) sem ég kemst vonandi á thegar ég kem aftur út.
Níels er í Stuttgart og vid erum ad fara ad hitta hann og bródur hans núna í lönschj og safn. Hann sagdi mér frá veggjatítlunum!!! Thetta er rosalega leidinlegt madur!
Vissu eigendurnir af thessu?
Hér er sól og sumar og magnólíublómstur á naesta leiti. sjáumst eftir viku...
Ben: Varstu ad meina hvort ég vaeri ad gefa eitthvad í skyn, eda hvad varstu ad gefa í skyn med thessari athugasemd? HA?

mánudagur, mars 14

13.03.2005 DV

Þeir fyrirlíta þig Þeir fyrirlíta þig. Þeir vita, að þú verður búinn að
gleyma þessu eftir ár, löngu fyrir kosningar. Halldór Ásgrímsson og
spunakerlingarnar telja Framsókn eiga embætti fréttastjóra útvarps og
beri engin skylda til að finna hæfan flokksmann í það. Lakasti
frambjóðandinn sé alveg nógu góður í starfið.

Þeir fyrirlíta þig af því að þeir hafa reynslu fyrir því, að þú gleymir
öllu þeirra spillta framferði. Þeir vita, að þú ert þegar búinn að
gleyma því, að Björn Bjarnason skipaði lakasta frambjóðandann sem
hæstaréttardómara. Hvorki Björn né Sjálfstæðisflokkur hans líða neitt
fyrir þann gerning.

Ekkert þýðir fyrir þig að væla út af linnulausri misnotkun siðspilltra
á því stjórnvaldi, sem þeir fara með, af því að þú greiddir þeim
atkvæði á sínum tíma. Fréttir undanfarinna áratuga er endalaus saga
spillingar, þar sem fram úr skara aðgerðir flokka ríkisstjórnarinnar í
þágu gæludýra sinna.

Hornsteinn þessa kerfis eru helmingaskiptin, sem Framsókn fann upp og
snýst um. Raunar er Framsókn ekki lengur neinn stjórnmálaflokkur í
hefðbundnum skilningi, heldur eins konar vinnumiðlun fyrir félagsmenn
og þá, sem hún vill gera að félagsmönnum sínum, fyrirgreiðslustofnun
fyrir kvígildi.

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri hefur alltaf verið þægt verkfæri í
höndum ríkisstjórnarinnar, sem farið hefur með völd í landinu miklu
lengur en minni þitt rekur. Hann gerir bara það, sem meirihluti
útvarpsráðs segir honum að gera. Hann hefur alls ekkert stolt fyrir
hönd Ríkisútvarpsins.

Rekstrarsaga útvarpsstjóra er hin sorglegasta. Á valdaskeiði hans hefur
verið hrúgað upp fjölmennu kerfi yfirmanna á vegum
Sjálfstæðisflokksins. Taprekstur Ríkisútvarpsins byggist annars vegar á
þessum fjölda óþarfra kvígilda og á dýrum mistökum þessara kvígilda dag
eftir dag, ár eftir ár.

Þessi ríkisstjórn er svo sannfærð um takmarkalaust vald sitt, að hún
nennir ekki lengur að finna sæmilega hæf gæludýr til samanburðar við
fagfólk, sem er í boði. Hana munar ekkert um að sparka í þig, af því að
hún veit, að þú ert aumingi, sem munt skila þér í réttan dilk í
kosningum.

Gamla sagan endurtekur sig enn einu sinni. Reiðibylgja fer um
þjóðfélagið. Starfsmenn Ríkisútvarpsins eru siðferðilega niðurbrotnir.
Stjórnarandstaðan hamast á Alþingi. Þetta skiptir valdhafana engu máli,
af því að þeir þekkja þig, sem valdið veitir, hinn almenna kjósenda,
sem öllu gleymir.

Halldór Ásgrímsson fyrirlítur þig, enda áttu það skilið. Davíð Oddsson
fyrirlítur þig, enda áttu það skilið. Björn Bjarnason fyrirlítur þig,
enda áttu það skilið.

Jónas Kristjánsson

föstudagur, mars 11

14:30

Lendi 14:30

...

á ég að kaupa eitthvað í fríhöfninni?

fimmtudagur, mars 10

allir krakkar

Já. Ég var á tónleikum með hressu strákunum í Supersilent í nýja flotta Bimhuisinu áðan. Skyggni ágætt. Þeir þræða einhverja rosalega fína línu á milli osts og ástar. Fýlu og fílings. Þessir Norðmenn. Supersilent er svona hljómsveit með tveimur hljómborðsfikturum, trommara og trompetleikara og þeir impróvisera alla sína tónlist á staðnum. Ég á stundum í vandræðum með de norske sánd, sérstaklega þegar þeir tapa sér í fjúsjonlegum syntalínum eða træbal algleymi, en það er samt eins og manni renni blóðið til skyldunnar að líka vel við disse gutte. Þetta var tilraun til uppbyggilegrar tónlistarumfjöllunar á glögginu. Fylgist með í næsta þætti, en þá verður fjallað um frumraun Megasar sem slagverksleikara í nútímaslagverksflokknum Courgette Modernus á Jazz-folka-o bluesfestivalen í Færeyjum árið 1996, sem dró feitan dilk á eftir sér, eins og allir vita sem eitthvað hafa fylgst með ferli belgísku popprokksveitarinnar K's Choice (eftir að Vriets Heinmans hætti og Jaap Benkhuisinga tók við bassahlutverkinu).

Ebay

Gleymdi ad segja frá thví ad ég var ad kaupa mér Jean Paul Gaultier gallapils á ebay. Ekki segja Tóta, en ég held ad thad sé eftirlíking frá Kóreu aftvhí thad er smá gallad og án thvottamida. Einnig finnst mér Gaultiermerkid nokkud tßíbó og efnid ekki mjög beysid. Thad er samt flott og ég er MJÖG ÁNAEGD med thad.

Mamma var ad segja mér frá verdstrídi í Bónus og Krónunni! Thad er svo ótrúlegt hvad fólk getur ordid aest útaf einum mjólkurlítra en látid stjórnvöld vada yfir sig á skítugum skónum án thess ad aemta eda skraemta. Og hananú.
Átti ekki Tryggvsi afmaeli thann 4.? Er hann ekki med hér?
Hlakka svo til ad koma heim. Thad verdur thann. 22. Á ég ekki ad kaupa eitthvad í fríhöfninni? :)

miðvikudagur, mars 9

Hund verkaufen, selber bellen

Hvad er ad Thjódverjum? Hefur einhver rannsakad thad fyrir alvöru?

þriðjudagur, mars 8

Takk Gudrún Dalía mín!
Ég er búin ad vera án internets í thó nokkud langan tíma. Nú er ég á bókasafninu og sörfa eins og brjálaedingur.
Ég er ekki búin ad bóka mida heim en ég reikna med ad ég komi kringum 10 apríl. Fyrir thá sem ekki vita er ég sem sagt ad fara ad flytja heim til Íslands.
Annars óska ég öllum konum til hamingju med daginn og hvet til ad taka thátt í mótmaelagöngum gegn karlaveldinu.

mánudagur, mars 7

e

Elsku Dagný og Egill, ég skrifadi nú einhverja kvedju hér á bloggid um daginn en thad hefur ekki límst inn. Mínar innilegustu studningskvedjur. Thad verdur allt gott.
Hér hefur verid algjör gaddur, mínus 17 og hvad veit ég svei mér thá. Stuttgart er nú ólíkt fallegri ad sumarlagi, thad verdur ad segjast. Og paelidi í thví, thegar vid komum aftur út, thann 4.apríl verdur komid vor hér!!! Hér er Flott mynd af skólanum mínum