föstudagur, júlí 21

Svo þetta eru örlög bloggsins? hvar verður það sett í söguna? stutt swing, fjör sem afkomendur okkur munu hlæja að? "Ha ... bara texti!? Afi, hvað voruð þið að pæla?!"

Já, fólkið er flúið. Í stanslausri leit að uppfyllingu, svörum við óuppfylltum þrám. fólkið er flúið eins og rottur sökkvandi dall. enginn hér lengur, tómlegt um að lítast. ég sé engan, eyðilandið. hlustiði, þið þarna hinummegin, á myspacesíðum þessa heims, heyrið öskur mitt í auðninni, tómri eyðimörkinni. þið munuð ekki svala óhamingjunni þar.

The Mushroom Prophet

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home