föstudagur, maí 31

Hó, þið umurðlega flólkk!! Haj hæj hahhahaææ

Sit ér á menningarbókasafninu í Grófarhúsi með S.V Bollason. Við höfum gengist menningunni á hönd, ellegar gengið á hönd menningarinnar, altso trampað á baugfingri brúðar Konstantínópel. Erum búnir að kíkja á Kjarvalsstaði (ath. ekki tengt verslunarkeðjunni Kjarval, sem kemur sterk inn á Suðurlandsundirlendinu) á ljósmyndasýningu Mary Ellen Mark og svo kíktum við á Listasafn Reykjavíkur. Menning í matinn. Aha.

Jæja, kveðjur til útlandanna. Við sendum að sjálfsögðu ofsalega þungt big-up til Senegal að vanda. Bloss.

sunnudagur, maí 26

"Ungt fólk sækist ekki eftir því að búa í hálfdauðum svefnbælum einhvers staðar í upphlíðum borgarlandsins." - Sigurður Ólafsson: ritstjórn pólítík.is

Ég veit ekki hvort mér eigi að líða ílla yfir því að ég sé Árbæingur eða hvort ég ætti bara að sætta mig við það að ég sé lúði.

fimmtudagur, maí 23

Ég vildi bara benda á eina bjúútifúl heimasíðu sem heitir www.mariaksteinsson.com. Afar fjölhæf stúlka þar á ferð. Hér á eftir fer eitt ljóð eftir hana (birt án leyfis höfundar):


Silfurlitaður kristalsalur einmanaleikans

Ég stend alein
Á köldu dansgólfinu
Í silfurlituðum kristalsal einmanaleikans
Þögn gærdagsins
Bergmálar í eyrum mínum
Og tár morgundagsins
Renna niður vanga minn
Á meðan ég bíð
Eftir að einhver komi
Og bjóði mér uppí dans.

Á síðunni má einnig finna fjölda málverka eftir hana, svo og myndir frá Ungfrú Reykjavík '97. Njótið vel.

miðvikudagur, maí 22

Það er einnig gott veður hér eða 25 gráður í dag. Annars allt gott að frétta við vorum að bóka miða 8 júní og komum kringum kl.16:00 . Erum að fara að sjá Star Wars ep2. sjáumst

mánudagur, maí 13

Auður ! Því miður er þetta blogg svolítið þannig að enginn les eða kommenterar á það sem hinir skrifa. Ég geri það samt alltaf og segi því hér með að Toby er magnaður. Mér finnst hins vegar Spæderman ekkert sérstök en ég dánlódaði henni hérna heima á netinu og það voru ekkert sérstök gæði.
Það er búið að vera frábært veður hérna í svona viku og ég nenni ekki rassgat að læra. Ég tek alltaf með mér bækurnar út og þykist vera að lesa en get það eiginlega ekki út af sólinni og leti.
Ég er ekki enn búin að fá vinnu heima og fæ líklega enga vegna þess að ég er ekki með lögheimili í Reykjavík. Ég fæ allavega ekki vinnu hjá borginni. Við komum samt heim kringum 8 júní.Jibbí!!

laugardagur, maí 11

Sælt veri netið. Ég var að skrifa mumma bréf, að hætti Benedikts Herma Hermafro. mummi á sér enga hástafi, aðeins lágstafi. Þó á hann tvo sérhljóða sem hann getur verið afar stoltur af. U og i hafa nú aldrei þótt neinir aukvisar í þessum litríka hópi sem við köllum "stafrófið". Ég er að fara til god-damn Amsterdam í fyrramálið. Ég held að það verði alveg mergjuð sjúkheit. Hlakka fockt öpp til. Alveg sell jor grandmother mikið til. Alveg maxi þokkimum.

föstudagur, maí 10

Allir að koma á VAGINA VELOCE tónleika í Skipholti á morgun kl. 14. Plííííííííís, þeir verða bara hálftími...

mánudagur, maí 6

Hej Auður velkomin! Hvað er að frétta af þér dúllan mín?

sunnudagur, maí 5

Það eru allir eitthvað svo hressir !