bannað, tannlæknir, líkamsræktarstöð
Það er bannað að tala um gjafir! Það verður að segja hvað gjafirnar eru. Annars var ég búin að skrifa einstaklega skemmtilegt blogg um daginn og það kom ekki og ég man ekkert um hvað það var.
Ég fór til tannlæknis í gær og er með 5 holur! Sem er alveg út í hött því að ég tannbursta mig 2 á dag og nota tannþráð, stundum, greinilega ekki nógu oft. Hmmm. Svo er ég líka með viðkvæman góm og tannlæknirinn ráðlagði mér að kaupa sensodyne tannkrem sem ég gerði strax, á stundinni. Svo fór ég að hugsa, kannski er ég ekkert með holur! Kannski borgar sensodyne fyrirtækið tannlækninum (sem er privat) fyrir að segja öllum sjúklingunum sínum að kaupa sensodyne!! Hverjum er hægt að treysta í þessum spillta heimi? (sagt með titring í röddu)
Svo fór ég um daginn að prófa nýja líkamsræktarstöð sem er kominn fyrir neðan hverfisbúðina, foodman. Það var alveg gaman og ég er að hugsa um að kaupa mér kort (heilt ár, með aðgangi í sundlaug, sánu, tækjasal, ráðleggingar um hvernig er best að þjálfa, 1 mín að komast þangað gangandi = 18.000 ísl kr). Góður díll. Þannig að næst þegar við hittumst verð ég jafn grönn og Julia Roberts (my idol) og sterkari en þið öll tillsammans. Híhí

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home