miðvikudagur, júlí 23

Afsakið. Ég virðist hafa verið fjórtán ára þegar ég skrifaði inn síðustu færslu. Þar steig ég niður í vitlausa gjótu, ellegar tíma-"warp"-svæði, sem gjörði mér kleift að grípa niður í hugarástand mitt miðsumars árið 1994. Þessi leiði misskilningur hefur nú verið leiðréttur og eru allir þeir er telja sig hafa orðið fyrir sálrænu tjóni af þessum sökum beðnir afsökunar, aukinheldur sem þeim býðst ókeypis ný-afþýdd kransakaka úr fermingarveislu minni frá árinu 1994. Og miða á fullveldishátíðarballið á Tunglinu.

þriðjudagur, júlí 1

Hæ aldeilis. Soldið ólöglegt að blogga núna, en ég geri það samt. Aðeins til að skvetta smá useless infómeisjon á netið svona. Ég hlakka rosa mikið til að keyra Vestfirðina og fara á þjólagahádíð! Szjæd...held líka að það verði þokkeisjon margir hressir á svæðinu! Vahú. Lagt af stað á morgun, blessó. (vó...þetta var tilgangslaust blogg!)