fimmtudagur, mars 28

!aolutevret

miðvikudagur, mars 27

Borðum páskana!

Ég vil ekki hafa það að fólk sé að dissa þau lönd sem ég hyggst eyða næstu fjórum árunum í Guðmundur. Á sama stað fást til sölu nýleg strútsegg og landspilda á Austfjörðum með afar hentugri holu sem rúmar ca. einn haus. Salernisaðstaða í nágrenninu.

Guðmundur var kjarnyrtur maður og fékk meitlaður stíll hans að njóta sín á vef allrar veraldar.

mánudagur, mars 25

Er á fullu að gera umsókn fyrir Amsterdam. Þetta tekur alveg góðan tíma þetta stöf. Að lokum vil ég minnast á að það er alveg rosalegt páskaveður outdoors núna. Takk fyrir og góðan dag.

fimmtudagur, mars 21

Sælt veri fólkið, eg kynni sjálfa mig til leiks hér í dag, en eg ku kölluð Kusa Poulsen. Á dagskrá er gamanmál og svo mun sjálfur Tristan sporðasleikir stórna nokkrum orðaleikjum. En ég held að nú sé okkur barassta ekkert að vandbúnaði, né landbúnaði, og hefjum skemmtunina með kviðlingi eftir sjálfa mig.

halló halló hló hló
mér er um og ó ó
þrykktu mér í þjó þjó
Halldórs sagði Bó Bó
Brodwayi á show show

Múúúúúhahahaahaaaa!!!!

miðvikudagur, mars 20

Til hamingju Eiki minn! En gaman að þú sért að flytja svona rétt hinu megin við brúna.
Það er að koma vor. Blómin að spretta og allt og lífið gengur sinn vana gang. Ég er að fá próf á morgun og hef ekki lesið staf í neinu. En það á örugglega eftir að ganga súper vel. Getur einhver reddað mér sniðugri og skemmtilegri vinnu í sumar?? Ég get byrjað 8, júní og hef meðmæli úr Pennanum og Hotell Ideon og get allt. Það væri gott ef að einhver tæki þetta alvarlega.

þriðjudagur, mars 19

Aha, jú, aha, jájá...aha...vissulega er maður kominn inn í þennan skóla. Aha, jújú...aha...þá er bara að efla smekk sinn fyrir majonesi og fleski og þá er manni ekkert til fyrirstöðu að fara að grilla í Dönunum...

Ætlaði að fara út að fagna í gærkvöldi en náði þó ekki nema upp í einn bjór, en þá var hljómsveitin Rúnk búin að kveðja og farin á æfingu og DJ Svezzo farið að klæja í algebruna á ný. Góða fagnaðarerindið það. En í dag fór ég hins vegar í hádeginu og fékk mér Vegamót með Braga og var ekki frá því að bíllinn svifi dulítið léttar yfir götu en áður fyrr og hugsanlega skein sólin aðeins skærar fyrir unga sál sem gladdist yfir því að nokkrir Danir vilji fá hana í heimsókn for a few years. Aha. Yea. Aha. Jeeeaaauuuu.

Annars átti Erpur setningu dagsins: "ég blanda mitt gin í píkudjús"

mánudagur, mars 18

Mummi Muncar úti, málar á nafla sinn...vinsamlegast botnið þetta, þ.e.a.s. ef þið botnið í þessu. Áðan þegar ég var að reyna að slaka á stökk Mummi upp í huga mér einsog flow af skinni og ég fór að hugsa hvernig þú hefur það eiginlega væni minn. Endilega fréttir takk. Og líka af Dagnýju + Agli. Nú er ég að fara að spila á tónleikum. bæ bye by buy bigh bi bai

Til HAAAAAAAAAAAAMIIIIIIIIIIIIIIIINGJUUUUUUUUUUUUUU!!!!!! EOÓ er enginn hryllingur heldur algjör snillingur og í huga mér stendur hann á öðrum fæti uppá háum sívalaturni og spólar á tánni hring eftir hring. Já, gott fólk, vinur okkar er kominn inn í kóngsins konservatórískt konditórí og hvet ég alla til að hylla komrad Eirík við fyrsta tækifæri!

sunnudagur, mars 17

Í gær var st. Patrick's day, ef þið vissuð það ekki, föðurlandssvikarar...er annars kannski bannað að fíla Írland eftir Keltakastið í MH? Allavega drakk ég alltof alltof alltof mikinn Guinness og hefur sú úttekt úr gleðibankanum aldeilis skilað sér í vöxtum og vaxtavöxtum og ávaxtavöxtum með hryllilegri líðan í dag...þó bætti aðeins úr hinni löngu töpuðu skák að ég frelsaðist í eftirmiðdaginn, sirka fimm, og varð mér þá að orði: "ahhh" en ég fékk einmitt fullnægingu á stundinni sem ég frelsaðist.

miðvikudagur, mars 13

Flóðreyksmoli dagsins: Tim Berne, saxafónleikari og rauðvínslegið konfekt-tónskáld var staddur á körfuboltaæfingu, tvítugur að aldri. Hann var að hlúa að íþróttameiðslum þegar kunningi hans kom til hans með saxafón. Hann blés nokkra tóna fyrir Tim og bauð honum að kaupa hann. Tim leist vel á sándið í helvítis apparatinu, og ákvað að kaupa hann, djöfulsins dýrið á honum. Hann hafði aldrei lagt stund á tónlist áður, en upp frá þessu var ævi hans ráðin. Og hann er líka geðveikur gaur í dag. Ussususs. Ég hef það fyrir víst að hann lesi nótur eins og nobody's business og svo segir sagan að hann smíði tón eins og ljósmóðir drottins.

Það er samt soldið heví að hann hafi bara rekist á saxafón fyrir tilviljun og ákveðið að kaupa hann í einhverju bríaríi og verða svo eins magnaður og raun ber vitni. Þetta var þjóðmeiksdagsins. Góðar stundir.

Orðasamband dagsins: Tryllt gómreið, maður.

þriðjudagur, mars 12

Áðan hringdi Árni í mig, ótrúlega gaman. Hann var bara hress með sig og við hlógum mikið saman.
Ég var að yrkja næstum aldýra flensuvísu:

Flensan margan flatan leggur,
fyrirmenn og róna.
Sárt í arga satan heggur,
Sigurði og Jóna.

Helga Lára, frænka Ástríðar er í Háskólakórnum, sem og Heba sem var í MH og Gunnhildur sem var í MH, altso Gunnhildur rauðhærða, vinkona Öddu, sem skrifaði stjörnuspá í afmælisrit Beneventum. Móðir hennar getur rakið ættir sínar til Böðólfs og Böðmóðs sem í sameiningu námu land á Tjörnesi fyrir 1000 árum. Það getur Gunnhildur hinsvegar ekki, því hana langar ekki að standa í því. Og fyrst maður getur allt ef mann langar það nógu mikið, þá gæti verið að maður geti ekkert langi mann það nógu lítið. Með hverju orði verður rökleysa yfirritaðrar ljósari svo hér. verður punkturinn settur
Svarar þetta EKKISENS spurningunni?
PS. Mamma er ekki enn búin að opna pappakassann með nýju G4 ofurtölvunni, hvað þá hinn kassann með skannanum. Hér í tölvuherberginu verður senn orðið of fínt fyrir tölvuna.
PPS. Eg hef flensu ætla mér að hafa dauðann í flimtingum með því að grínast með það að ég muni sennilega látast af völdum þessarar flensu. Þó má deila um hvort það sé fyndið, án tillits til siðferðiskenndar.

mánudagur, mars 11

Egill gerir sér held ég ekki grein fyrir því að ég er búin að spyrja um Háskólakórinn. Ekki nema að hann fatti og ekki ég að það þarf að spyrja ykkur kæra fólk oft til að fá einhver FJANDANS SVÖR. Það er greinilegt að ég geri það líka svo að ég ætla ekkert að vera að dissa hann. Við erum frábær.

PS. þekkir einhver einhvern í Háskólakórnum? Hann er að koma til Lundar.

Ég var að leysa gríðarlegt vandamál sem er búið að hrjá mig allt síðastliðið ár. Tölvan mín frýs ekki lengur á 10mín fresti þegar stillt er á "Hardware Acceleration". Þetta tókst mér með því að uppfæra AGP stýri chipsettinu mínu. Magnað. Hér á bæ er engin sem kan að meta þetta en ég vona að þið gerið það. Næsta verkefni er svo að uppfæra BIOS:inn minn. Finnst ég vera kominn með nýja tölvu. Svo var ég að fá mér 19" skjá. Magnað. Annars er ekkert gott að frétta af mér. Er að fara í Reikningshaldspróf næsta mánudag sem ég er nokkuð pottþéttur að falla í. Það eina jákvæða í gangi núna er að ég sé á lífi og að Finninn, Markús Wileníus, (sennilega einn mest óþolandi maður sem litið hefur jarðarríki) er hættur í Hagfræði og þar af leiðandi í hópnum mínum. Hann skal aldrei fá að horfa á video með mér, jafnvel þó að líf hans standi eða falli með því. Vonandi flytur hann aftur til Finnlands.

Mér varð það ljóst í gær að ef að maður borgaði árgjald fyrir eilíft líf, svona ekki ólíkt aðild að tiltölulega eðlilegum félagasamtökum, þá kostaði það óendanlega mikið að lifa að eilífu. Og þetta fattaði ég án þess að vera í eðlisfræðinámi við þekktan háskóla erlendis. Í ljósi þessarar uppgötvunar minnar finnst mér að ég eigi að fá allar mínar einkunnir í raungreinum við MH afturvirkt hækkaðar upp í tíu komma núll. Og einhverja fálkaorðu eða eitthvað. Hvað sem er ef ég bara fæ ókeypis áfengi. Kommon. Menn eru þyrstir hérna. Captain Party calling Planet Earth hérna. Upp með brennsann. Rekiði kaupfélagsstjórann.

sunnudagur, mars 10

Við vorum að fá hrikalegan tölvuskjá. Ég fæ ofbirtu í augun.

þriðjudagur, mars 5

„“

„Takið eftir magnaðri notkun minni á gæsalöppum að hætti TÖL 202.“

„Vísbending númer tvö:
Ég þyki víst ansi magnaður með gráðosti og rækjum.“

Stuttur úrdráttur úr bókinni „Hvaða matartegund er ég“ eftir Örn H. Hálfdánar. Mál og Menning 1993.

laugardagur, mars 2

Eg mun í kvöld átveislu halda og gefa yður þarmeð í dag yðar daglega brauð. Ykkur er þó ekki boðið heldur aðeins úngfrú Yður og herra Herra (erl: mr. Mister), sem gerði einmitt garðinn frægan með poppstykkinu kyrie eleison. Eftir feitátið vil ég hinsvegar skemmta mér og er hérmeð augýst eftir aðila til þess starfa. Þ.e. að skemmta mér. Mér er auðvelt að skemmta og sýni eg jafnan þakklæti. Tagg firyr