miðvikudagur, nóvember 30

Útgángspunkturinn er lýgi. allur sannleikur er bónus.

"... bíddu nú við,
lýgur þá DV af einskærum sið eða til hugsunaruppeldis?
ég trúði á alla vinsældarlista,
ég trúði á pönk og anarkista,
þar til ég las það undrandi að allt sem þú lest er lýgi..."


"... og það er borað í hausinn á mér, ég fylltur lygatjöru með stórri tregt. og það er borað í hausinn á mér, ég tappa af til að skilja eitthvað. en hausverkurinn sem fylgir...er merkilegri en öll sannleikskorn...hausverkurinn sem fylgir... hreinn sannleikur..."

ps. Spá í að flytja heim í lok febrúar/byrjun mars.

Passaðu þig, Auður, veistu ekki hvernig þessir menn starfa? Þeir eiga eftir að finna það sem þú skrifaðir, breyta því einhvern veginn og svo skella því og mynd af þér á forsíðuna. Ehe...þið þarna úti, DV-fólk, hún var bara að grínast.

þriðjudagur, nóvember 29

Höfuðkúpa!

Úff. Fékk hauskúpu (falleinkunn) í DV í dag fyrir bók mína. Gagnrýnandinn er bersýnilega mjög reiður út í mig, gefur í skyn að ég sé heimskur, sem mér finnst mjög smekklaust í bókadómi. Áfram DV! Og mér er jafnframt stillt upp á forsíðu blaðsins, lítil mynd af mér og forsíðu bókarinnar og höfuðkúpunni og orðin "Barnaklám í jólabók", en þó ekki á aðalforsíðuna, þar er mynd af barnaperra, svo skyndilega verður ljósmyndin af mér í mjög vafasömu samhengi. Já, ef DV getur mögulega komið orðinu Barna-x og x táknar eitthvað óbragð í munninn, þá grípa þeir tækifærið. Hey, Mambó!

Svo ég er búinn að vera í sjokki í dag. Bragi, viltu kæta mig og eyða frítíma þínum í að semja óperu eða óð til mín, eða óð til gleðinnar til mín, eitthvað álíka, og svo syngja hann (eða hana ef þú semur óperu) fyrir mig á Aðfangadag, á meðan ég og mamma og pabbi sitjum við kvöldverðaborðið og snæðum þær gersemar sem hún móðir mín Alena töfrar fram?

Ég hef aldrei skilid thessa öryggisrádstöfun sem felst í thví ad slá inn einhverja brenglada stafarunu. Er thetta svo madur bloggi ekki fullur?
Thad er yndislega kalt og jólalegt hérna, en ég aefi mig á hlýrabol thví ég svitna svo yfir Beethoven. Vonandi verdur hann ordinn almennilegur fyrir tónleikana. Í kvöld býdur íslenski sendiherrann okkur út ad borda og ég er ad spá í hvort ég eigi ekki ad búa mér til nafnspjöld ádur. Dalia Danino dipl. musician and life artist.
Flýg til Baghísar á morgun ad aefa med Kidda Kalla fyrir ofannefnda tónleika. En thad er náttúrulega bara yfirskin til ad fara ad borda á Al Daar og kaupa mér föt.

þriðjudagur, nóvember 22

Takk kærlega fyrir að fíla bókina. Ég ætti að líma þessar setningar á kápuna, það myndi væntanlega auka söluna. "Drulluspennandi bók!"

Var að koma úr viðtali við Stúdentablaðið. Ég held að ég sé byrjaður að fá ógeð á þvi að tala um bókina, greina hana og hvað ég sé að "pæla". Ég er svo takmarkaður að ég segi alltaf sama hlutinn, en reyni samt alltaf að vera jafn hissa yfir því sem ég er að segja. En maður þarf að fylgja barninu sínu yfir götuna, annars verður það fyrir bíl.

mánudagur, nóvember 21

Neee

Það er óþarfi því að ég keypti bókina bara í einhverju flippi niðrí bæ. Las hana síðan á methraða og er sammála, hún er drullu spennandi. Núna er Guðný systir búin að fá hana lánaða og ættlar að fjalla um hana í ísl ásamt Grillveður í október. Hann Óttar okkar er bara að verða frægur. Annars er ég veik heima og líkar það vel. Eini gallinn er að ég get ekki notað nýju skóna sem ég keypti á laugardaginn. Ég verð bara að láta mér nægja að vera í þeim hérna inni. Vill einhver koma í heimsókn?

fimmtudagur, nóvember 17

GD+EE

kraudpu!

Alrighty!

Vill Þakka Eiríki og Nix Nolte's fyrir þrusugóða tónleika í gær. Þétt sett og dúndur dillídó... Alltaf gaman að hitta vini sína í bransanum hérna í útlöndum. Vonandi sváfuð þið vel. Hittumst kannski á flugvellinum á eftir!

Fann gamalt en mjög skemmtilegt lag með Subterranean af plötunni Central Magnetizm, "My style is Freaky" --> http://this.is/bix/audio/produced/My%20Style%20Is%20Freaky.mp3 . Those were the days man...

Pax

miðvikudagur, nóvember 16

Hvad er ad gerast í Búdapest? Ég er nú ekkert ad fara langt...kannski til Ludwigsburg á föstudaginn thar sem Rene Flemming mun syngja vid undirleik Hartmuts Höll. Og svo náttúrulega til Íslands um jólin ad spila á tvennum tónleikum, med Kristjáni og Ísafold. Jibbí. Madur er bara ad verda bedeutende pianistin hérna.
Thad er ordid kalt og gott ad fá sér glóvín vid ameríska bíómyndatónlist á hallartorginu. Ahhhhhhh (í máli!)

sunnudagur, nóvember 13

Fuck What You Heard!!

Sæl! Það virðist nú einhver fart vera komin á þennan blogg aftur... Gott er það.

Lífið er nice. Án lífsins værum við ekki til. Þannig standa málin kæru vinir og þannig stend ég... Helgin er búin að vera massíft letidæmi frá upphafi til enda (eða þannig. Sunnudagur í dag og enn er ekki allt glatað). En þannig eru nú hlutirnir bara stundum, ekki satt?.

Ég fór á massíva harcore-tónleika með Calí-krúinu mínu í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn var, að Stensgade 30. Lineup: FC5, Komback Kid og Bane. Ég er að tala um freakin staightedge-karatekickdancing-moshpittslamming-maniac-tónleika með krúnurökuðum, blackcross-tattúeruðum dönskum táningum. Ákvað að vera ekkert að fela mig útí kannti heldur tók alveg virkan þátt í funnelpittum og ég veit ekki hvað... Jamie Lee breytti gersamlega um personuleika á þessari samkundu og breyttist í grænan Hulk með svart belti í Tae-kwan-dó. Aldrei hef ég séð manneskju taka þvílíkum stakkaskiptum á jafn stuttum tíma. Freeaaky! Ég er hinsvegar ekkert að spá í að leggja þetta fyrir mig en þetta kúltúr er nú bara ekki svo slæmt þrátt fyrir allt.

P.s. Ég veit ekki með ykkur en ég er allavega að fara til Rómar um jólin... Og svo er ég að fara til Budapest á fimmtudaginn.

See ya Punks!

fimmtudagur, nóvember 10

Barnagælur

Sælir krakkar

Ég vildi bara misnota aðstöðu mína og nota þetta vinablogg sem auglýsingatæki og benda ykkur á að skáldsaga mín, Barnagælur, kemur út á morgun. Einhver ykkar vita sitthvað um innihald hennar, önnur ekki. Það eina sem ég get lofað ykkur er ein matarskeið af ást, tveimur pottum af ádeilu, hrært saman við grín og fjör og borið fram með klípu af einlægni.

kv. Óttar

p.s. Kaupið hana!

miðvikudagur, nóvember 9

Já ég veit, Schubert er ótrúlegur!! Hlustadirdu á píanósónöturnar sem ég sagdi thér? Thad er einsog hann máli yfir hjartad á manni med galdramálningu. Og ótrúlega mjúkum pensli.
Thad er ógedslega gott vedur hérna, fólk er haett ad njóta thess og er ordid módursjúkt yfir thví ad thad sé enn sumar. Ég líka, en ég laet á engu bera og geng í blómafötum.
Jólin í Róm...thad hljómar náttúrulega mjög vel, en er komin med mida til Íslands á thorláksmessukvöld. Hvenaer eigum vid annars ad fara í skídaferdina til Ítalíu/Austurríkis og búa í kofa og drekka heitt kókó í máli ahhhh?

föstudagur, nóvember 4

Hey! Big Boys n' Girls!

Blessuð!

Ég er nú bara að taka svona leti-föstudag eins og er. Í honum er innifalið kvikmyndagláp (Gremlins) og almennt hangs.

Freakin' fangið mitt er htx00eey@student.lu.se (ath! þetta eru núllur en ekki o)

einnig er hægt að ná í mig á fangi reykjalundur@hotmail.com (sem er líka msn!!)

Hvernig hljóma annars jólin í Róm... Er það góð hugmynd eða?

miðvikudagur, nóvember 2

Hey!

Hey! What's up!!??

Er heima að reyna að koma mér í gírinn... Þarf að taka til og ég veit ekki hvað. Redda leikmyndinni eins og maður segir í bransanum. Annars er ég að borða Lakerol með kaffinu sem ég var að brugga. Kaffi og Lakerol er með betri kombóum sem til eru. Önnur góð kombó eru:

Frosin Hindber og Turkish pepper (jafnvel með kóki)
Jarðaberjasulta og Vanilu ís
Sterkt Hvítlauksdipp og Ofnbakaðar Kartöfflur (í bátum)
Grjónagrautur með mikið af Kanel og Kók
Tutti Frutti nammi og Salta Katter nammi
Hrísgrjón og Smjör (einfalt en gott)

Þetta eru nú frekar outdated kombó reyndar. Ég er "off the cola" eins og þið vitið. En ég mæli samt með þessu...