fimmtudagur, febrúar 27

Hó! Er staddur í vorhreingerningu að hlusta á Hauk Morthens drekka "dauðans og þína skál" og deyja úr mjög víðtækri og yfirgripsmikilli dramatík. En það er allt í lagi. Nú er hann að rifja upp æsku sína í björtum haga þar sem sól gyllir engi og hlíð. Mmm, vorhreingerning. Ég keypti mér heimasíma í gær, númerið mitt er: 00 31 20 668 0567. En það stefnir samt allt í að ég fái mér nýtt númer, so evríboddí kúl áðí að reyna að hringja í mig í hrönnum...ég læt vita þegar nýja númerið er komið. Ég er að spá í hvort ég ætti að reyna að fiska eitt djönkíbæk fyrir Sverri á eftir...en eigi þýðir að blaðra svona út í eitt, því mín bíður blaut tuska sem krefst aðstoðar minnar við að gefa borðinu exótískt nudd. Oj.

miðvikudagur, febrúar 26

Tvenn grammys? Ertu að tala um grammyin sem þú fékkst fyrir söng þinn í Litlu Hafmeyjunni? Ég braust óvart inn í íbúð áðan, ætlaði að fara í heimsókn til vinkonu minnar sem kallaði niður til mín að það væri opið. Ég opnaði hurðina, fór inn í myrkvaða forstofu, gekk inn fyrir, heilsaði kettinum og kveikti ljósið. Fjórar hurðir í boði. Best að finna stigagangshurðina. Opnaði eina, tvær, þrjár og fjórar hurðir áður en ég fattaði að það var enginn stigagangur inni í þessari íbúð, þetta var bara einhver jarðhæðaríbúð sem var ólæst og mannlaus! Ég drullaði mér út sem skjótast og fann síðan rétta útidyrahurð til að komast inn um...sheesh...Móri á sko ekki séns í mig núna..atvinnukrimmi mæ ess...I´m thö kingpin!

þriðjudagur, febrúar 25

Husky Hoskulds er frændi minn! Þannig að ég er samasem komin með tvenn grammíverðlaun?
Ertu kominn í bæinn Benni? Játs við verðum að hittast og það strax. Hringið í mig. Bæ

mánudagur, febrúar 24

Aaa. Um leið og spring breakið byrjar, þá kemur vorið. Kúl...það er nææz veður, íslenskt sumarveður í gangi, ég fór í skólann í dag, æfði mig, og fór síðan að hjóla um bæinn með Valda og familie. Það var verrí næs, skoðuðum slatta af skemmtilegum búðum og drukkum latteis. Það stefnir í að Sverrir þurfi að kaupa djönkíbæk á þúsundkall þegar hann kemur í heimsksókn...

sunnudagur, febrúar 23

Mikið er þetta nú fínt. Fór í gær í sushipartí til Valda, drakk sake og úðaði í mig hráum fiski mér til mikils ánægjuauka. Við horfðum líka á geðveika Bollywood mynd sem ég keypti í gær. Hún heitir Naag Shakti og fjallar, að okkur skildist, um einhvern snákaguð sem var bannfærður og eiginkonan hans þurfti að fasta í ellefu daga og svo var einhver kona sem gat ekki eignast börn. Þriðja hver setning var sko þýdd á ensku. Ég fann nebblega alveg geðveika búð rétt hjá mér sem selur alveg heilu bílfarmana af myndum og tónlist frá Indlandi, Pakistan og Tyrklandi og örugglega eitthvað fleira. Ég var alveg gapandi þegar ég kom inn, það var svo ótrúlega mikið af einhverri fokkt opp tónlist frá útlöndum þarna. Hvernig er stemmarinn þarna over there in Iceland?

http://www.dazzled.com/dangermuff/bollybob/rnaag.html

föstudagur, febrúar 21

"Sendiráð Íslands í Svíþjóð stendur fyrir átaki til kynningar á Íslandi þann 28. maí næstkomandi...Yfirskrift Íslandsdagsins 2003 er „hestur, orka og menning". -mbl.is

"Hestur, orka og menning"? Steiktasta slogan seinni ara hefur litid dagsins ljos...Horsepower culture vaeri kannski frekar naerri lagi. For a studentapubb i gaer i olgandi hormona-og-thveitisbad. Komst Arizonamadur nokkur svo ad ordi vid mig: "I can't believe the chicks in here". Bjor a evru og thess vegna urdu their fleiri en tveir og fleiri en thrir. Aeldi sidan i morgun. Aldrei ad treysta evrubjor...

fimmtudagur, febrúar 20

Ummhumm...Benni er engan veginn tuff, hann er bara ludi med asnalega hargreidslu...Var a aefingu med bandi hvers markmid er ad "flippa ut" og gera eitthvad skrytid, ekki svona eins og eitthvad skolaband heldur eitthvad rosa rosa flippad. Thad byrjadi allt i lagi, vard sidan mjog gott bara. Sidan tokum vid pasu og eftir thad for allt til helvitis, slaemar hugmyndir flutu fram og til baka, hapunktinum var sennilegast nad thegar einhver stakk upp a thvi ad vid myndum oll rappa samtimis, hvert a sinu tungumali...Uufff...thetta slo naestum thvi ut saensku songkonuna herna um arid sem bad mig um ad thyda texta: "hun flygur svo hatt, eins og fuglinn" og hvisladi thad sidan yfir atmosferiskar skandi-paelingar... Thad var samt soldid toff thegar Raj, indverskur bandarikjamadur for ad oskra texta og slamma nidri a golfi (textabrot: "oily bitches" og "suck it dry"). Hann var sko einu sinni ad laera ljodlist. Vonarglaeta i dimmum dal, hann Raj okkar.

Já! Trommi tromm segir maður nú bara...magnað að hafa trommusett í íbúðinni! Fór í kvöld og skoðaði herbergi í Jordaan hverfinu, sem er ógeðslega næs hverfi og eiginlega draumahverfið mitt i Andskotam. Herbergið var svona um það bil einn fimmti af rúmmáli núverandi herbergis míns og kostaði um 490 evrur, meðan núverandi herbergið mitt kostar rétt undir 300 ojrós. Og er fimm sinnum stærra, rúmmálslega séð. Frekar vondur díll iff jú ask me. En þetta er kreyyyzí hverfi, maður alveg engdist um af því að hjóla þarna...En samt gott að skoða svona díla, nú er maður sáttari þar sem maður er... Bæðö vei, gaurinn sem ég talaði við hét Nacho. Er það ekki aðeins of súrt nafn til að bera? Getur íslenskur karlmaður heitið Hrútspungur? Austfirsk kona heitið Skyr? Mmm...skyr...

Var annars á tónleikum í kvöld, sá mjög skemmtilegt heimstónlistar-djók band, hljómar mjög illa en var ótrúlega skemmtilegt, á eftir þeim kom freejazz bigband, stjórnað af manni sem minnti mig ótrúlega mikið á Pál Óskar. Alltaf gaman að horfa á ubergay stjórnendur. Og svo var þriðji básúnuleikari í draggi með bleika hárkollu. Annar básúnuleikari er fáviti, en hann er víst með mér í bandi. Hann er sænskur og er með svo rosalega útværan persónuleika (á kostnað innværs sjálfstrausts) að maður fer að halda að hann leigi vídeókamerur til að fylgjast með sér og stúderi þær síðan eftirá. Og svo er hann líka með tagl. Jæja.

miðvikudagur, febrúar 19

Egill ætlar að búa til hljóðeinangrandi búr fyrir trommusettið okkar. Búrið verður byggt með tréprikum, pappakössum og dýnum og verður staðsett með trommusettinu inni í einu horni herbergisins. Þetta verður framkvæmt um leið og við kaupum trommusettið sem nú er staðsett í einu hljóðfærabúðinni Lundi.

Ég er líka búin að fá "leyni" óvinkonu í kúrsi sem ég er að lesa aukalega. Við erum saman í hópverkefni og hún er viljandi ósammála öllu sem ég segi. Hún er frekar óþolandi en allir hinir eru ok. Hún er samt ekki eins óþolandi og Emmí sem er fyrsta óvinkonan mín í Lundi.

Málaði nemendaaðstöðuna í Tónó áðan, ALEIN, þ.e. eina umferð, af hreinni góðvild og yndislegheitum og hef ekki fengið neitt nema skömm og skít fyrir! ,,Það er rosalega sterk lykt af þessu..." osfrv. Þetta verður mitt síðasta góðverk um ævina.

Haaæ krakkeilles, þá er Google bara búið að kaupa Bloggerinn. Ókei. Bragi, þú ert hér með skipaður arkívustjóri og útprentari á sannleiksbakstri síðustu ára. Ég var annars að ljúka við að skrifa niður píanóútsetningu fyrir skólann. Fáránlegt hvað þetta getur tekið langan tíma miðað við hvað þetta er lítið flókið. Var síðan nett andvaka í nótt út af mús sem var að krafsa í gólflistana, sennilegast inni í veggnum. Gebbað pirrandi. Og síðan er ég með nokkuð sem gæti kallast kuti eða rýtingur í hálsinum, þriðja daginn í röð. Get sumsé ekki róterað höfði mínu til vinstri án þess að vera stunginn. Asnalegt. Benni, kíkirðu ekki í heimsksókn áður en þú ferð í aumingjafrí til Íslands?

mánudagur, febrúar 17

Tokud thid eftir thvi ad Bjarni bloggadi lika i ardaga? Merkilegt... Sunnudagurinn var nu samt frekar steiktur, for naestum thvi ekki ur husi allan daginn og vard alveg fret af boringness. En um kvoldid for eg samt a hup bar i nagrenninu, Sverrir, vid forum thangad i gut chill. Jonni brodir var lika ad hringja i mig adan, hann var ad boda komu sina sennilegast 10. april. Sjaid thid hvad Sverrir og Jonni eru kul? Vilja ekki fleiri vera jafn kul og Sverrir og Jonni? Jaeja, aetla i taeknitima ad spila taeknietydu af frekar litilli haefni...

Ég var líka að skoða gömul blogg og varð glöð yfir að eiga svona skemmtilega vini. Ég tók líka eftir því að Benni segir okkur frá hverju einasta nefrennsli sem hann fær og hann hatar snjó.
Ég hef líka tekið eftir því að Bragi er ekki eins duglegur að skrifa og hann var fyrsta árið og að Guðrún Dalía er duglegri að skrifa en ég hélt. Eiki er meistari bloggsins og Sverrir er alltaf að þykjast að fara að byrja skrifa meira en gerir það ekki. Annars á ekki að taka þessu sem skítkasti heldur sem hreinum staðreyndu

sunnudagur, febrúar 16

Ætlar enginn að svara því hvort það sé hægt að prenta þetta út og binda inní stóra bók sem heitir æskuár vor sumar haust og vetur?
Bragi, ha? Hvernig er það?

Jæja, þá er ég kominn aftur á internetið, blindfullur að vanda. Í dag er ég í tjilli heima og er að æfa mig heima í fyrsta sinn. Það er mjög fínt, nema hvað að ég þarf að nota æfingadempara, sem er aðeins steiktara en að blása í gegnum óhindrað rör. Lakkrísröör. Ókei? Ég var að skoða pdf skjal af forsíðu moggans á netinu, ekki laust við að maður fengi snert af heimþrá... "tilboð í kringlubíó: 250 kall í bíó í dag, ókeypis kók með..." ææ dúlla. Er ekki bíóverkfall í gangi heima?

laugardagur, febrúar 15

Hæ killo´s

ég er sannarlega fullur á internetinu...en það er allt í lagi því Bragi og Júlía voru að senda mer blindfullt sms yfir hafið. Ég fór beint úr skólanum að hitta Bjössa og Darra á bar (berist fram með english framburð, "baa"), fyrst forum við á standard barinn vid hlidina á Dam sqver, síðan á unglinga-artý-pool bar í nágrenninu, og síðan loks á rockabillybar að hitta ícelandiks pípls. Ég fór sæmó snemma heim sko af því að ég þarf að mæta á æfingu klukkan ellefu þrjátíu í fyrramáls. Allavega, ég var að íhuga það hvað maður er sjúklega heppinn að þekkja Davíð Þór sem píanista, Valda sem bassaleikara og Helga sem trommara, því þessir gaurar eru fokking júník og konfekt alheimsins og geislabaugar og hali og klaufir. Það er enginn í skólanum sem spilar á píanó jafn vel og Dabbi tussa og það er ekkert þjóðerniskjaftæði, það er sannleikurinn. Jæja, nóg af rausi. Loves to you alles og ég ætla að fara að sofa. Og reyna að vakna snemma í fyrramálið til að pikka upp lag fyrir æfinguna. Jee ræt.

föstudagur, febrúar 14

2000-2003! Sjitt...flime tyes when you're faving hun. Ja, eg var ad skoda thetta, thad er algjor skylda ad koma thessu einhvern veginn fyrir i fostu formi, svo ekki thurfi ad stola a einhverja misvitra tolvunorda uti i heimi til ad vardveita thetta og geyma. Thennan helga ofn. Magnad. Meeaagnad!

Sverrir: Eg hef enga gledi fundid, en hins vegar fann eg risastoran horkoggul uppi i nefinu a mer i morgun. Eg skyrdi hann Horgeir Astvaldsson, vakumpakkadi honum og sendi Braga hann i abyrgdarposti. Annars er Benni in town og held eg Bjossi lika. Eg for i tima til megagaursins adan, hann er 72 ara og megahress, naes gaur og lovli pianoleikari. Eg var ad fila thennan tima mjog vel, hann er frekar inspirerandi gaur (hann hlytur ad vera med alveg 2,4 GHz karma og bluetooth tengingu vid almaettid). Okei engar fleiri korni likingar herna. Goda helgi (gutt veit ad eg a samt sem adur eftir ad bladra eitthvad herna a morgun...)

ps. aetli thad se ekki haegt ad maela utgeislun i luxum? (sorry)

Ég festist í því að lesa gömul blogg. Skoðaði pósta frá því í febrúar og mars í fyrra. Þetta er svo fyndið! Getur ekki einhver sem hefur lítið að gera tekið sig til og prentað þettað út? Ok, kannski svolítið manískt, en samt...mér finnst hræðileg tilhugsun að æskuþankar okkar fjúki bara út í tómið. Ég væri til í að eiga bók með öllum bloggum 2001-2003.

Ástríði mun batna snarlega á morgun því þáætla að ég að gefa henni pastagerðarvél. Það þykir mér sniðug gjöf því í leiðinni fæ ég matarboð til baka. Auður: ætlaðir þú ekki að vera með? Einu sinni reyndum við Ástríður að gera pasta og eyddum þrjátíuogtveimur eggjarauðum í eitthvað ógeð sem var einsog leggangahettur með gráðastafyllingu. MMMMMmmmmmmmmunið að greiða afnotagjöldin. Hei vissuð þið að Alexander Scriabin var ótrúlega geðveikur, sko ekki opinberlega, en að mínu mati. Tónlistin hans hljómar einsog eitthvað kukl, tarottónlist eða eitthvað svona dularfullt annarlegt klígjulegt ógeð. Hlustið á 10. píanósónötuna hans ef þið viljið heyra lófalestur spilaðan á píanó. Hann var ábyggilega í dópi. Samt er þetta soldið flott e-nveginn. Maður dáleiðist af þessu. Hann var líka með samskynjun á heilanum og bjó til orgel sem varpaði litum uppá vegg, þ.e. hver tónn átti sinn lit. Þetta hefur verið svipað ambientkvöldunum í Norðurkjallara hér í denn.

fimmtudagur, febrúar 13

Aumingja Ástríður!
Sunna er að flytja út 1 apríl og við fáum eitt auka herbergi sem við erum ekki alveg búin að ákveða hvað við viljum gera við. Egill vill breyta því í trommuherbergi sem mér finnst mjög góð hugmynd.
Ég er búin að vera í tiltektarkasti alla vikuna og er að fara að byrja á skápunum. Ég er farin að halda að ég eigi mér ekkert líf. Ég þarf ekkert að mæta í skólann en á reyndar að vera að skrifa próf sem ég á að skila 24 feb.
Við Egill erum hætt að hreyfa okkur og förum allt á bílnum. Þetta er ekki góð þróun en það er ógeðslega kalt úti. Eiginlega svo kalt að ef við værum ekki með bíl þá færum við ekki út.
Ástarkveðjur! Sérstaklega til Ástríðar.

Maður trassar þessa síðu í tvo daga og þarf að stilla á síðustu 50 pósta! Jáh það það þarf ekki að toga uppúr ykkur ruglið, ha, það bara vellur út um öll vit og yfir heimshöfin ef því er að skipta.
Meika ekki alveg að hugsa um trompetkennarann með gleraugað...það minnir mig á þegar Ella Vala var að tala um að hún gæti ekki notað túrtappa þegar hún spilaði á hornið.
Ástríður var barin í bænum á föstudagsnóttina! Það sat fyrir henni maður þegar hún var ein á leið heim, togaði hana niður á hárinu og kýldi hana af öllu afli í andlitið. Ógeð maður. Sem betur fer náðist hann og hún er búin að kæra hann. Greyið hún er öll blá og marin og fór ekki útúr húsi þartil á þriðjudaginn, þá kom hún í karate. Haha! Það fannst henni vandræðalegt því þetta er jú sjálfsvarnaríþrótt. Við lærðum rétta öndun í þessum tíma og að spenna mjöðmina fram þegar við kýlum. Ef hún hefði lent í þessu einum karatetíma seinna hefði hún ábyggilega stútað gaurnum. Öndunin er allt sko.
Aðeins ein spurning að lokum: Eruð þið allar systur, og hvar er Bragi?!

miðvikudagur, febrúar 12

Ja, Svissadi laukurinn a leidinni til Amsterdam, og vonandi kemst hann adeins meira en halfa leid yfir hafid (hvad er thad? Faereyjar?) en af sjalfum mer er thad ad fretta ad eg atti erfitt med ad vakna i morgun. Thad er eiginlega thannig i skolanum ad ef madur er ekki maettur klukkan halfniu i bidrod eftir herbergjabokun, tha er nokkurn veginn pottthett ad madur er buinn ad missa af sens a ad boka herbergi yfir daginn. Og tha stolar madur a ad fa herbergi sem einhver bokadi en nennti ekki ad maeta i. Og tha fer madur i bidrod. Annars er eg ad fara i beibiafmaeli hja Valda klukkan thrju i dag og tharf ad finna afmaelisgjof. Eg er ad hlusta a black power djass fra 1970 i graejunum...eg finn svo mikid fyrir rotum minum thegar eg hlusta a thessa tonlist! Lagid heitir "If you ain't part of the solution, you're part of the problem". Amen, brother, amen.

þriðjudagur, febrúar 11

Vuhuuu, godar frettir, trompetkennarinn minn med gerviaugad gat loksins reddad mer einkatima (eda einkatimum) hja einhverjum toppguru i skolanum, sem er pianoleikari kominn a eftirlaun en kennir mastersnemum thegar hann nennir. Kennarinn minn er buinn ad vera ad tala um ad redda thessu alveg sidan eg byrjadi i skolanum. So...eg hlakka til a fostudaginn! Reyndar veit eg ekkert hvernig hann spilar, en allir segja ad hann se malid. Veibbs. Og sidan hefur sami kennari reddad mer flugelhorni, en eg hef einmitt verid ad leita ad sliku horni*. Thetta er franskt flugelhorn, vintage graeja og nyuppgerd, eg profadi svoleidis hljodfaeri um daginn og thad var mjoog gott! Eg fae thad til profunar eftir kannski svona manud, og hlakka gedveikt til...

*flugelhorn er yfirleitt um 87 gradur, gamalt ord komid ur donsku, yfirleitt notad yfir skitugar konur eda saudburdarvinkil ad vori.

sunnudagur, febrúar 9

Er búinn að vera ógissliga töff og væld í dag og tók til og lærði heima eftir skóladvöl í dag (heimaverkefni! Vá!) og svo er ég bara í áframhaldandi tjilli hérna að spá í hvort ég ætti að fá mér breiðbandstenginu heim...tæpur 3000 íslenskur kall á mánuði, ókeypis módem og enginn startkostnaður...hljómar pretty sweet... Gallinn væri hugsanlega að ég myndi aldrei nokkurn tímann fara úr húsi, ever. Hmm... adsl tenging/félagslíf...hmm...

fimmtudagur, febrúar 6

Allir ad maeta i kreyyzi party heima hja mer i lok februar (nema Benni), okeypis bolla, Bjork ad DJa og Hemmi Gunn er veislustjori, fotboltamot skipulagt og Omar Ragnarsson er domari, Maggi Scheving eldar sussji og klukkan fimm um nottina verda allir svaefdir med kloroformi og fluttir um bord i Concorde thotu sem flytur gesti til Taelands i kosy eftara heima hja Hemma.

Svessi lu klessi er velkominn hvenaer sem er, en tho er einhvern veginn miklu magnadra plan ad reyna ad koma thegar baedi Benni og eg erum staddir a stadnum. Vid aetludum sko ad bua til programm handa ther, no joke sgu. Vid erum bunir ad vera ad safna i sarpinn af toff stodum til ad fara a, dude! Var annars ad spila a biggband tonleikum, tok solo en mer skilst ad enginn hafi heyrt i mer a bakvid thrumandi basunu og slagverkskor. Ojaeja. Taeknilegur galli, ekki mer ad kenna. Jaeeja. Reddadi mer lika internettenginu i gaer, thannig ad nu get eg farid a netid heima ef mer svo synist. Mjog toffi. Bless?

miðvikudagur, febrúar 5

jaeja. Mamma og pabbi horfdu a Moulin Rouge um daginn, sem thydir ad thau geta skilad henni til Braga Bergthorssonar, ellegar Bragi saeki hana heim til vor. Og svo er allt bara kreyyzi ad fretta. Bleisj

þriðjudagur, febrúar 4

Hola, var a bigbend aefingu. Stjornandinn (madur, taeplega fertugur) var ad utskyra nafnid a laginu sinu. Thad het eftir aett lotusbloma, thvi thriggja ara dottir hans heitir einmitt Lotus. Og lagid fjallar sem sagt um tha erfidleika sem hun gaeti maett i lifinu. Mer fannst thetta vaegast sagt mjog fyndid... Jaeja. Eg ligg undir stodugum Bruxeilles arodri um ad su borg se svo miklu meira hupp heldur en Amsterdam og folkid thar se svo opid og flippad. Min personulega reynsla af Brussel er nu alveg frekar jakvaed (enda gist i diplomatabustad og farid i uppaparty og verid fraegur med Beauty Kings), en tho er Brussel alltaf einhvern veginn tengd rosalega godri bjortegund (hvurrar nafni eg hefi gleymt) sem eg drakk a belgiskum bar i Amsterdam. Altso thegar eg hugsa um Brussel, tha hugsa eg um bjor. Kannski er thad lika af thvi ad eg fekk bjorinn i belgmiklu glasi, og belgmikid glas er ad sjalfsogdu hljodrim vid Belgiu. Paeling.

Benedetto Hermés er að koma heim!!! Hvað stendur til? Er ekkert mál að fá frí í þessum fleikaskóla þínum? Það er rosagaman maður!
Er að æfa mig. Það er eitthvað við Chopin-etýður, ég held maður geti æft þær endalaust án þess að þær verði neitt fínar. Frustricato Diabolis in Musica.

mánudagur, febrúar 3

Ha, ertu ad fara to Iceland i two weeks?

A laugardaginn for eg a jammin' og for medal annars heim til skolafelaga minna sem eru ad leigja hus a mestu gay gotunni i Amsterdam. Thau eru med thad i svona sex manudi og svo a ad selja thad. A 85 milljon iskall. Thetta er ekkert allt of brilljant hus, thad er throngt, 2x 30m2 plus svefnloft, en nokkud bjart og huggo. Og svo a bara einhver rik hommsa ad splaesa a sig husi fyrir 85 mills...ekki malid. But there is a bagel pleis on the ground floor off the hause. I gaer kenndi eg obostelpu ad djassa og fekk ad launum obomunnstykki. Thad er gedveikt ad setja thad a trompetinn, thad er alveg faranlega kul sand sem madur getur fengid! Wahhoooo okei bleee

sunnudagur, febrúar 2

Ó Benni minn, hve undursamleg ást þín er og hve glatað að ég hafi verið of timbred á afmælinu þínu til að senda þér kveðju. Sendi þér þó mörg hugskeyti þar sem ég lá hríðskjálfandi undir sæng með eldsmiðjukassa mér við hlið. Það er verst þegar maður er þunnur eftir kvöld sem var hundleiðinlegt. bömmer duplicato.
Er að æfa mig. Sunnudagar með Chopin...það er það besta, men.