sunnudagur, desember 30

það er pizza napolitana í matinn og svo fer ég að fá mér frískt loft eftir úldinn Mozart dag. Hvernig er þetta annars með morgundaginn? á ekkert að gera eðakva? Ég bara spyr.

fimmtudagur, desember 27

Elsku vinir! Það er víst hvorki stað- eða tímasetning jólakortsins sem skiptir máli og kannski ekki einu sinni innihaldið, heldur fyrst og fremst hugurinn á bakvið og tilvist þess yfirleitt. Þessvegna óska ég ykkur merry clitoris and a happy wee ner með von um áframhaldandi yndisfríðleika ykkar. Ykkar að eilífu, Dúlla Danínó

laugardagur, desember 22

Gleðileg jól kæru vinir!

mánudagur, desember 17

Háw is itt wiþþ ðíse jöng pííplú, olveys drinking brenniwine and staying happy. Ég sit núna á skrifstofu móður minnar á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi Fossvogi og bíð eftir að vínsérfræðingur Íslands muni líta í hlustir mér til að finna þar dverg nokkurn sem hefur þar alið manninn síðustu misseri. Sænskur dvergur í eyranu á mér, sem myndaðist þegar ég hitti sænsku stúlkuna í Listaháskólanum og lét mig tala sænsku.

Og hvað er Bragi alltaf að tala um að Bloggið sé leiðinlegt. Ég veit ekki betur en að þetta blogg sé fráábært. Ég meina hver vill ekki lesa um sænskan dverg?

laugardagur, desember 15

Var ad klára!! wHOO wHOO wHOO WhoWho Whooooooooooooooooooooo. Aedislega lekkert. Er ad fara ad fá mér bjór. Ef ekki skemmast mínir skór. En ef ég hitti Thór, Thá segi ég, hvad ertu ad gera í Lundi, med fullan munn af brundi, Thetta er nú lélegt rapp, ég held ég setji í mig tapp, ah ah aha ha? Jólastemmari massive extaraordinair. Fjandans Er ekki haegt ad skrifa á thetta blogg án thess ad allt verdi ad einhverju andskotans kjaffi. Kjaffathu stórt. Med brund í heilanum. og kúk i punginum. Sjáumst!

föstudagur, desember 14

Djöfull verður stuð hjá sumum eftir tvá daga! Hafandi ekki séð fósturlandið í rúmt ár! AAAAAaaaa huxxxa sééð!

Ég hef gert plan um djömm næstu helga. Hver djammdagur verður helgaður ímynd þeirrar persónu er djammið snýst um. Altso ég mun djamma eins og Andrea Róbertsdóttir í kvöld, og morgundagurinn verður helgaður djammi að hætti Svala FM957. Þetta kallast sko öguð vinnubrögð. Mér finnst að það ætti að koma þessu inn í lífsleikni í tólf ára bekk. Nokkrar afburðapersónur teknar fyrir sem djamma með konunglegum brag um hverja helgi og síðan eru djammhættir þeirra brotnir niður í einingar og greindir. Þannig ætti hver sjöundabekkingur að geta fundið sinn eigin djammstíl, sem yrði jafnvel tekinn fyrir hjá næstu kynslóð sjöttubekkinga. Ekki ósvipað og blúsinn. En allir vita að blústónlist hófst sem hliðarspor stærðfræðikennara í Potsdam um miðja átjándu öld. Rétt eins og hip hop tónlist byrjaði sem tónlist hvítra krakka í úthverfum Svíþjóðar og breiddist síðan út með flóknum krókaleiðum inn í fátækrahverfi blökkumanna í New York. Altso, ég er farinn út.

Halló!! èg kem heim eftir 2 daga.Magnad stud. Núna sit ég á bókó og er ad laera. Ég er ad reyna ad vinna upp thad sem ég tapadi í laerdómi í gaer. Ég thurfti nefnilega ad thrífa íbúd Vigga og theirra. Their fóru í gaer. Ég átti ad skila lykklinum ad íbúdinni, ég var med einn, en thegar ég kom til ad ná í hinn stód jólatré á midju gólvinu, fullt af drasli í kringum thad og midi hangandi í trénu. "hér hafidi smá gódgaeti elsku vinir, ps nenni thid ad skila bókunum á bókasafnid". Svona erud their gódir. Magnad. Svo threif ég klósettid theirra og ískápinn og ofninn og gluggana og vaskinn og sturtuna og skápana og skúffurnar og skúradi hátt og látt, eins og saemir gódum ábyrgdarmanni. Nú er próf á morgun og svo kem ég heim hinn. Jibbí jibbí jei jei.

miðvikudagur, desember 12

Oft er ekki sagt tvisvar, thad sem einn segir aldrei.

Til hamingju með afrekin dagga mín plönk...ég fer sjálf ekki í nein próf fyrir jól fyrir jól. ííha fyrir því. Annars vil ég nota tækifærið og biðja E afsökunar á því að ég kemst ekki uppí Hallgrímskirkjuturn á föstudaginn, þarf að fara í píanótíma. Mér datt í hug að við gætum kannski farið öll saman eftir að Dagný og Egill koma!!! Er það ekki góð hugmynd? !!! juuuuuuúúú das ist es. hei föttuðið ðennan? Júdas!!! best að kötta krappi og kreppa ketti í smetti í staðinn, wýýý

Til hamingju með afrekin dagga mín plönk...ég fer sjálf ekki í nein próf fyrir jól fyrir jól. ííha fyrir því. Annars vil ég nota tækifærið og biðja E afsökunar á því að ég kemst ekki uppí Hallgrímskirkjuturn á föstudaginn, þarf að fara í píanótíma. Mér datt í hug að við gætum kannski farið öll saman eftir að Dagný og Egill koma!!! Er það ekki góð hugmynd? !!! juuuuuuúúú das ist es. hei föttuðið ðennan? Júdas!!! best að kötta krappi og kreppa ketti í smetti í staðinn, wýýý

( Dagný skrifar) Síðast skrifaði ég að ég ætti ekkert eftir að gera nema kaupa jólagjafir. Það var rugl. Það kom í ljós að ég átti eftir að taka klukkutíma viðtal við einhvern (sem tekur u.þ.b. 10 klukkutíma að pikka inn á tölvu, fékk ég að heyra), gera vettvangskönnun og vera með í hópavinnu. Þetta ásamt miljón öðrum hlutum þarf ég að gera fyrir sunnudaginn, vei! Annars get ég ekki beðið eftir að koma heim í jólastressið og upplifa alvöru jólastemmningu. Hér eru allir svo rólegir og það er ekki nærri eins mikið jólaskraut út um allt eins og heima. Hvað segiði um að hittast á einhverju kaffihúsi á sunnudaginn um kvöldið?

MOZART GEISLADISKUR FYLGIR ÞESSARI VIKU
-70 MÍNÚTUR AF TÓNLIST HANS
VIKUVIÐTAL VIÐ SIGURBJÖRN EINARSSON BISKUP
HANDRIT KIKKU
DÓRA BÝR Á MÖLTU
GEIRI SÆM OG RÚNAR ÞÓR
JÓLASKREYTINGAR
TAKT ÞÚ ÞÁTT Í VALI FORSÍÐUSTÚLKU ÁRSINS 1991
ATKVÆÐASEÐILL FYLGIR VIKUNNI

Hérna við hliðina á tölvunni liggur eintak af Vikunni frá desember 1991. Eða einmitt fyrir tíu árum. Ég man eftir þessu blaði, en ég var einmitt veikur heima og girntist þetta blað vegna þess að það fylgdi geisladiskur með Mozzaranum með. Mamma keypti þetta blað handa mér og ég varð ákaflega glaður. Inni í blaðinu má meðal annars sjá að Brynja X tók þátt í forsíðustúlku ársins, Fúsi trommari í Jagúar var í hljómsveit Geira Sæm ("Tunglið") árið 1991 og Páll Óskar kynnti Forsíðustúlkur Sam á kynningarkvöldi með alveg rosalega, rosalega vonda klippingu. Og síðan er líka viðtal við Sigurbjörn Einarsson biskup, sem tjáir okkur það að "notkun jólasveinsins á verslunarstöðum, í útvarpi og sjónvarpi er öfgafull og alls ekki holl né heilnæm börnum," varar okkur við "að láta ginnast af fagurgalanum" og segir loks "Nútímamaðurinn uppgötvar allt í einu að hann er staddur á hengiflugsbrún. Við honum blasir tómið, þetta tóma, kalda gímald guðlausrar, tilgangslausrar og afhelgaðar tilveru." Hvað ætli hann segi núna, eftir tíu ár og ein stucken falluslagaða Smáralind?

Jóla-rokk, jóla-rokk, jóla - rokk. Jóla... Rokk, jóla rokk.

jóla jóla jólarokk.

Og síðan treð ég þessu ofan í súrkálspakka og lauma inn í hillurnar í Hagkaup (án þess að segja Ha) og síðan verð ég heimsfrægur sem neðanjarðarskáldið E.

© Kvikmyndin Elling, 2001.

laugardagur, desember 8

Góðu karlrembudrusssluvinir nema að sjálfsögðu GDS. Ég er eiginlega búin í öllu mikilvægu fyrir jól. Nema kaupa jólagjafir. Það er frábær fíling. Svo kem ég og Egill bara heim bráðum. Það verður gaman jei jeijibbí jó húrra hahahahaha.

föstudagur, desember 7

Það er mannbætandi að skrifa ljótt um aðra á Internetið. Til dæmis ætla ég að bæta mann minn um eitt og hálft prósent með því að segja að Bragi Bergþórsson hefur ekki hugmynd um hvað kúlið er. Í öðru lagi finnst mér að internetið ætti að skrifast með litlum staf, þar eð það er orðið að húsgagni í vitund alheimsins, ekki ólíkt nafnorðinu ,,sófi". Engum dettur í hug að skrifa sófi með stórum staf, nema þá helst einhverjum afdönkuðum kotbændum eða karlægum astmasjúklingum. En það er auðvitað út af því að sófi er uppfinding sem er svo eldgömul að hún hefur fyrir löngu misst stóra upphafsstafinn sinn, og þykir þó engum sófinn ómerkilegri fyrir vikið. Nei, það er manndómsraun að missa stóran upphafsstaf, ekki allsendis ó-ó-ólíkt því og þegar ungur drengur missir barnatennurnar í gróðursælum dal, eða þegar hreindýr fellir horn að hausti. Og sjálfur hef ég margsinnis hugleitt að gefa frá mér stóra upphafsstafinn og taka mér lítinn í staðinn, svona til að sýna fram á að ég er þegar orðinn classicisus, tímalaus, þjóðsaga meðal auðmjúks pöpuls Íslands, aðeins tuttugu og eins árs að aldri, á meðan Guðmundur Thoroddsen mun þurfa að minnsta kosti sex ár í viðbót til að verða goðsögn í listaheiminum, og bætti ég nú mann minn um sex prósentustig.

fimmtudagur, desember 6

stakk af úr tíma hjá Gunnsteini munnsmelli og -sleiki Ólafssyni hálfvita. Sit nú á bókasafninu og bíð í hálfgerðum kvíða/hálfgerðri eftirvæntingu eftir því að hann komi hér inn og sjái mig í ruglinu. Mér finnst gaman að gremja hann í gjamsi og hamsi og gera honum svan úr reðri.
Hvað segiði annars, kæru vinir? Nú fara þau Dagný og Egill að koma JIIIIIBBBBÍÍÍÍ....hitti einmitt Skúla Skúlason í gær, hafði ekki séð hann í meira en ár. Hann leit bara vel út og fékk roða í kinnarnar þegar ég minntist á heimkomu dótturinnar og frumburðarins. Sem hann er einmitt ekki búinn að sjá í næstum ár.
Gleymdi að segja frá bókinni sem ég er að gefa út fyrir jólin. Það er spennubók um kontrapunkt og heitir Greg Morris og skuggi cantusins. Nú er hann farinn, ég meina sko ekki Greg Morris heldur Gönnsó. Ég hafði nefnilega ekki tækifæri til að skrifa það áðan, en Gunnsteinn kom akkúrat inn þegar ég var að skrifa ljótt um hann.

miðvikudagur, desember 5

Einmitt þegar maður hefur ekkert merkilegt að segja er þegar maður ætti hvað mest að segja að maður hefði ekkert merkilegt að segja. Annað væri lygi. Og það er nú fínt.

sunnudagur, desember 2

Jólin eru að koma! Við fundum fyrir jólaandanum um helgina þegar við drukkum Absint að morgni 1 des kl 6:00. Aðventuljós eru nú í hverjum glugga og við borðuðum fyrstu Lussikattana þegar við vöknuðum hress og kát eftir absintið. Þetta verða yndisleg jól. Við komum heim eftir 2 vikur. 16 des á sunnudegi.