mánudagur, ágúst 30

Tilfinningablogg 2004

Úff! og var það bara ákveðið í gegnum síma? En leiðinlegt. Það er samt svo skrítið að vera saman ef maður er aldrei saman...eða er það ekki? Ég sendi bara faðmlag og stuðning og vona að þú getir sungið þrátt fyrir alltsaman. Nú kemur sér vel að vera HETJUtenór!
En Dagný þú ert líka hetja, vá maður hvað ég er stolt af þér! Og þú bjóst alls ekki við þessu eða hvað? Þú ert snillingur og átt VG skilið í öllu þannig að ég bjóst alveg við þessu sko. Og hvað færðu eiginlega ef þú klárar ekki ritgerðina á einni nóttu í stressi og óánægð?!!!
Hvenær verður fundið upp netfaðmlag? Þetta er alveg ómögulegt, að samgleðjast og hryggjast á eitthvað lyklaborð.

Elsku Bragi!

Æ það er leiðinlegt að heyra að þið séuð hætt saman. En eins og þú segir getur lífið alveg líka verið svona. Ég vona bara að þér gangi vel í öllu hinu sem þú ert að gera. Ertu ekki að fara til London? Láttu okkur síðan vita hvenær við getum komið yfir í heimsókn! (er meðvituð um að það verði kannski ekki strax).
Annars er það að frétta af mér að ég fékk VG fyrir ritgerðina mína og ég er að deyja úr ánægju með það.
Yfir og út

föstudagur, ágúst 27

Dagný Skúladóttir Fil.kand sociologi!

Nú er ég búin að verja ritgerðina mína og það gekk vel. Núna er ég að hlusta á Manic Street Preachers í hamingjukasti og er að fara í matarboð í kvöld og sumarbústað á morgun. Það er gott að vera komin heim. Vona að allir hafi það gott. bæ

sunnudagur, ágúst 8

Heim heim home

Ojojoj, nu er minn bara ad fljuga heim a morgun, som thydir ad eg kem a manudagskvold, allbrellinn og hnellinn, segi fyndnar skrytlur og hlae eins og arabi. Eg var ad fa mer Hotmail plus med kreddanum adan, nu a eg 2gigabaeta bilskur til ad geyma emailin min i og eg er ekki fra thvi ad eg se i verslunarvimu. Annars er eg lika i Tokyo, sem er einnig talsvert brjalad. Mjog gaman. Aha. Hittingur sem fyrst!

föstudagur, ágúst 6

Hæ!
Dagný er búin að panta borð fyrir okkur á Vegamótum á morgun klukkan hálftvö. Allir að mæta!!!

miðvikudagur, ágúst 4

reunion!!!

Er ekki reunion á laugardaginn eins og var í fyrra eða hvað? Ég væri alveg til í eitthvað hitt allavegana í hádeginu á laugardaginn á einhverjum góðum stað í hjarta Reykjavíkur. Er einhver með tillögur? Svona í fljótu bragði dettur mér Vegamót í hug. Það er kannski of lítill staður ef að margir ákveða að koma? Heyrumst