Góðan daginn. Þetta er tilraun til að aðlagast íslensku lyklaborði á nýjan leik eftir þónokkurt streð og puð í sænsku ríki. Jæja. Æ-ið er allavega á sama stað. Í gærkvöldi fór ég með mumma í gríska veislu til Þórs og Magneu og firðum snjöllum er þar hafa skrimt og hrokkið. Það var mjög gaman. Þór á magnað uppvaxtarheimili. Þetta er maagnað hús. Ég held að menn verði gáfaðir og/eða finni fyrir samhljómi náttúrunnar af því einu saman að vera þarna í stutta stund. Það fer reyndar eftir því hvort menn séu fullir þessa stuttu stund eða ekki. Anníhú, það var mjeeg gaman. Af hverju krefst nafnið hans mumma að það sé skrifað með lágstöfum? Þessi skrifmáti nafns hans kallast á við víbrasjónir móður jarðar og gefur þeim er það ritar eilíft líf og heilbrigt karma. Allavega finnst mér skrýtið að skrifa Mummi. Slíkur ritmáti setur samvitund kosmosins í ójafnvægi og uppsker harmakvein í sölum glataðra sála.
Eftir gríska partýið fórum ég og mummi á Sirkus. Það var gjörsamlega ekkert gaman. Mér leið eiginlega eins og fanga þarna inni. Ekki hægt að tala samman, ekki mikið skemmtilegt fólk, plús náttúrulega það að leiðinlegasta manneskja evver var þarna inni, Auður Jörundsdóttir, búktalari. Ég hef aldrei náð því af hverju hún ákvað að gerast búktalari og troða upp með þetta glataða show á Ströndum. Hún er allavega þruusuleiðinleg. Þannig að ég fór heim, fékk mér te og skoðaði sunnudagsmoggann og fór að sofa. Djammheimsmet Íslands? Í leigubílaröðinni sá ég mesta óskapnað sem ég hef séð lengi. Það voru fjórir krakkar um 18-19 ára sem tróðu sér inn í leigubíl, full og öll klædd í Top Shop alklæðnað, með munninn troðfullan af kebab og öll með pepsi súperdós. Eins og svín í í svínastíu. Cue myndir af akfeita auðvaldssinnanum með pípuhattinn og einglyrnið sem stendur ofan á fati bornu uppi af hinni kúguðu stétt (altso búktölurunum). Ég vildi að ég hefði getað myndað þetta móment, af því að þetta var svo ótrúlega fín mynd. Fólki hefði jafnvel þótt hún táknræn. Þetta með pepsídósirnar gerði einhvern veginn útslagið. Þau voru eins og vankaðir fávitar með þessar pepsídósir í kór. Jæja. Samfélagsgagnrýni lífsins, góðan daginn. Nú ætla ég að njóta dags og fara og drekka kaffi með einhverjum sniðugum. Eins og vankaður fáviti.