Ó þú ljúfa stuðborg Stuttgart!
Já það var sveimér ánægjulegt að ferðast með Braga Bergþórssyni tenór í gær. Og ekki amalegt að láta sækja sig heim og vera keyrður alveg uppá völl. Ég geri bara ráð fyrir því að Bergþór ætli að halda sig við þessa skemmtilegu hefð. Bragi lætur hann bara vita að við komum heim 19. des.
Þegar við komum loks í íbúðina sem við áttum að fá lánaða, eftir klukkutíma bið í Frankfurt, tveggja tíma lestarferð og hálftíma leigubílaakstur, var nágrannakonan með lyklana ekki heima. Ég skildi eftir símanúmerið mitt og viðfelldið bréf, en hún hefur ekki enn hringt. Ég óttast að hún sé barasta dauð, en Tóta finnst ekki fallegt að hafa slíkan ótta í flimtingum. Þetta er allavega mjög dularfullt. Ég meina, varla er áttræð kona að hössla á föstudagskvöldi og skilar sér ekki heim?
Yun-Zi, vinkona mín sem á íbúðina, er í Kóreu að gifta sig og veit ekkert hvað við megum þola. Við hringdum í Helgu Rós í gær og hún bauðst til að deila þaki sínu með okkur á þessum erfiðu tímum. Svo skemmtilega vildi til að hún fór til Flórens í morgun, þannig að við getum verið hér í tvær vikur. Svo er bara að vakna klukkan hálf sex næstu vikurnar og hringja í leigusala.
Hér er yndislegt veður, 25 stig, sól og raki. Við erum þvoglumælt af vellíðan og hvítvínsdrykkju. Stuttgart er bara voða kósý og þetta leggst alltsaman vel í mig.
Er ínáanleg í síma 0049 711 649 2905. Ciao ciao bambino!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home