Fyrsta þynnka Brynjólfs
Vá við lentum aldeilis í því í gærkveldi og þá meina ég íðí. Hér í borg var nefnilega haldið ÍSLENDINGAPARTÝ með allskonar verkfræðifólki frá Karlsruhe og fleirum. Við Tóti og Helga Rós vorum búin að hita okkur upp með Chiantiflösku áður en við fórum, og í partýinu drukkum við fáránlega mikið af fáránlega mörgum tegundum og schnöppsum og vá hvað það var gaman!!!
Við þríeykið erum búin að liggja á svefnsófanum í allan dag með þunglyndissvip og drekka dietkók og borða pizzu, franskar og kokteilsósu.
Á morgun eru flutningar og Tóti ætlar auk þess að yfirgefa mig og halda til Niðurlanda.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home