Gleðileg jól allir saman. Við vorum að koma heim frá Þýskalandi í gær. Jólin í Þýsklandi voru æðisleg. Við borðuðum, drukkum, hlustuðum á góða jólatónlist og horfðum á þýskt sjónvarp. Takk Guðrún Dalía og Tóti fyrir okkur. Við Ástríður erum núna að fara niðrí bæ í Lundi til að Egill geti fengið frið við að skrifa ritgerð.
sunnudagur, desember 28
laugardagur, desember 27
búsráð
Djöfszuuss mahúr, djamm í gær var af hinu bezta tagi, fór á Gus Gus og Tra Bant á Na Sa í gær og andi jólanna sveif yfir vötnum. Hins vegar hitti ég engan Sverri. Hvað er það? Hvar var Sverrir? Var hann kannski á Diskókvöldi Margeirs? Er það kannski bara málið?
djöfull er maður nú annars iðinn við það að henda rusli út í alnetið...næst þegar ég blogga lofa ég að það verði um eitthvað mikilvægt og mannbætandi (eins og til dæmis fimm sniðugar kokkteiluppskriftir úr hráefni sem er til á öllum heimilum, eða stutt spjall um sparperur)
fimmtudagur, desember 25
Gleðilei jól allir saman til sjávar og sveita. Aldilis jólaligt hérna á jóladag, falle og stilt veur o folk a borða súkkula dajinn úð og inn. Gaf pabba bók með samansafni af mikilvægum ræðum tuttugustu aldarinnar. Það eru svo brjálaðar ræður inní þessari bók! Sérstaklega úr seinni heimsstyrjöldinni...ég var að lesa ræðu sem einhver gamall gyðingur í ghettóinu flutti fólkinu sínu. Hann vann fyrir nasistana og sendi sitt eigið fólk áfram í útrýmingarbúðir. Nú var komið að því að senda öll börnin í gettóinu í búðirnar, og í bókinni er ræðan sem hann flutti (og þetta er úrdráttur):
"In my old age I must stretch out my hands and beg: Brothers and sisters, hand them over to me! Fathers and mothers, give me your children! (Horrible, terrifying wailing among the assembled crowd)".
Ég gat ekki lesið þetta, ég varð að hætta...þetta verður svo ótrúlega nálægt manni þegar maður les þetta, sérstaklega af því að þetta eru orð sem féllu í raun og veru og voru bara ætluð þessari einu stund. Úff. Á maður að vera að blogga svona á jóladag?
föstudagur, desember 19
Til hamingju allir med jólin og almennt lífsrúst!
Er ad upplifa nokkud ótrúlegt thessa dagana (í dag og gaer). Ég er hundlasin, med hálsbólgu og hita, en er samt ad deyja úr hamingju! Hvad á thetta ad thýda? Kannski kemur thetta af thví ad lesa Siddartha, en thá uppgötvar madur ad hvert einasta augnablik varir ad eilífu og thá hverfur allt sem heitir kvídi og eftirsjá! Sorrí gúrúismann, tóti er ad tryllast á thví hvernig ég er farinn ad flaeda útum allt og predika um thad hvernig madur getur verid geislakúla. Hann er ad bída eftir ad ég komi nidur. Ég er samt ekki frá thví ad ég sé ad frelsast. Rhythmik kennarinn minn tók mig í therapíu á midvikudaginn. Ég átti ad endurtaka ordin ,,Ich bin Liebe" og thad var magnad. Sjitt. Ég haetti núna.
fimmtudagur, desember 18
julejule jule jól yul, yahve, jafet, nasaret
Kominn í jólaskabed, flokkur kristinna manneskja sá til þess í hádeginu í dag. Þau komu inn í matsal í litlu byggingunni stuttu eftir síðasta (og eina) prófið mitt, öll klædd í metnaðarfulla búninga...jólatré, englar og einhvers konar afrósuða og svo var einn sem var aðal, en hann var nefnilega í kóngabúning og var vitringur og var sá eini af þeim sem kunni að syngja R´nB. Svo sungu þau öll jólalög með sínu nefi og voru sæt og dúlló og með glimmer í framan og eftir sönginn gáfu þau öllum pakka með köku (góðri heimabakaðri köku!). Það gerði mig mjög glaðan, magnað þegar fólk leggur mikið á sig bara til að gera annað fólk ánægt og vill ekkert í staðinn (ókei smá jesú lovs jú flæer á kökunni en samt). Og núna þarf ég að byrja að pakka því ég fæ far heim á jólasleða flugleiða í kveld...verð vappandi hress um í Rekjaweek á morgun ef einhver vill hitta mig!
miðvikudagur, desember 17
Takk fyrir gód rád! Thetta reddadist allt saman. Ég byrjadi bara einfaldlega ad skrifa og viskan flaut úr mér svo ad ég nádi ad klára thad sem var ad valda mér hugarangri(2 sídur um ástandid í Rwanda úr feminísku og líberalísku sjónarhorni). Nú er thad bara ad ganga í gegnum morgundaginn og thá verdur allt fínt.
Vid erum búin ad vera ad fá senda jólapakka frá Íslandi frá thví í byrjun des. Vid fengum einn frá fjölskyldunni hans Egils í gaer sem var 14 kíló. Thar var allt mögulegt. Jólapakkar(3 á mann og svo auka afmaelisgjöf fyrir mig), íslensk jólatónlist(2 geisladiskar), jóla pottaleppar, viskustykki och svunta, stórt mót med loki til ad setja inn í ofn, sokkar, naerföt, bolur, kúlur, seríós, matarkex, jólaskraut til ad setja í glugga og trefill. Já, ég veit ekki alveg hvad ég á ad segja. Thetta er audvitad alltof mikid!
þriðjudagur, desember 16
Dagny: Gerdu eitthvad audvelt sem litur ut fyrir ad vera erfitt. Tha geturdu klappad sjalfri ther a bakid og sagt "djofull er madur produktivur i dag, madur! Best ad skrifa hunndra bladsidur nuna mar! Kraest!" Eda eitthvad i theim dur.
Getur einhver gefid mér gód rád??? Ég er smá fokki í lífinu. Thad er svo mikid ad gera ad mig langar helst ad skrída upp í rúm og sofa fram ad jólum. Hvernig rífur madur sig upp og verdur duglegur?
mánudagur, desember 15
Hér kom ein snjóflygsa í dag og fékk ég thessa fínu fullnaegingu thegar hún lenti á nefbroddinum á mér. Svona er ad lifa í flaedi, krakkar mínir. Eftir ad ég byrjadi ad flaeda í gegnum lífid hef ég einnig tekid eftir thví ad stelpurnar hér í skólanum eru klaeddar einsog gamlar konur. Og ad maturinn í mötuneytinu er óged.
Hvad er KG. 100??!! ??!!
Hei STrída, okkur er bodid í partí á föstudaginn og líka á sunnudaginn!!! Veit reyndar ekki hvort thar verdi nokkud saetir strákar frá Puorto Rico...
prump prump fret
Já það er margt skrýtið í kýrhausnum. Mig rennur í grun um að ég hafi verið að hlusta á of leiðinlega tónlist síðustu vikur. Fyrir einhvern misskilning hef ég verið að hlusta á vel útfærða og nytsamlega tónlist, sem er örugglega eitt það sterílasta sem maður getur látið yfir sig dynja. Assgotans leiðindi, ég hef bara misst stjórn á sjálfum mér í heilan mánuð! (eða frekar haft stjórn á mér) Svona er það ef maður æfir sig of mikið... Ástæðan fyrir þessari upplýsingu er að ég fór til Valda í gær og fékk "lánaðar" nokkrar plötur úr safninu hans, meðal annars nokkrar illa útfærðar og afskaplega ónytsamar plötur. Guði sé lof fyrir þannig plötur...bíddu er að koma vor? Ókei allir að hlusta á frídjass og The Darkness núna! Skítt með jólalögin! Nema það sé jólalagið með Darkness!
laugardagur, desember 13
ég hef ekkert að fela nema ástríðu mína fyrir litlum origamidýrum og bútasaumi
Jó hei jó, hvaða vænisýki og aðdróttanir eru þettah? Haldiði að ég sé ekki eerlijk við ykkur? Að ég sé ekki að segja waarheiten? Eeeekkert gerðist í gær annað en ég hitti þessa stelpu og við drukkum belgískan bjór og fórum svo í paatý hjá Ingó klarinett sem var með unga og svala liðið úr Sinfó í heimsókn. Ég var bara svona líka hress í morgun út af einhverju óljósu. Ahem. Ætli það sé ekki bara af því að ég hafði ánægju af því að gera eitthvað jafn gebbaðslega flippað og að fara á blænd deit. Hei, vissuði að Brian May er byrjaður að blogga?
Í dag er Lúsía. Thessi hátíd hefur alltaf farid framhjá mér og gerdi thad líka í ár. Ég er bara búin ad vera heima ad reyna ad skrifa eina sídu í allan dag. Thad er thoka úti og rigning og allt er frekar trist.
Keikó is sterben!!
Njús flassj! Keikó dáinn! Draumurínn er búínn krakar, þyetta eyr auþólandey mail, kv eigum vi a gyeera nauuuna?! Hopa á rassgitiið o broosa? neeeeeee
e r a n n a r s r o s a h r e s s f o r a b l i n t s t e f n u m o t i g æ r g e b b a ð s t u ð o g l æ t i
fór samt í alvörunni og hitti stelpu sem er dóttir austurrískra hjóna sem mamma og pabbi þekkja lauslega. Það var ógnar-spennandi að labba inn á barinn og geta sér til um hver þeirra væri hún. "Það er sennilegast þessi stelpa sem situr þarna ein," hugsaði ég með mér og dró upp rósabúntið og brosti afar dularfullt til hennar og sagði sæl elskan mín, fyrirgefðu að ég lét þig bíða svona lengi. Ég tafðist aðeins í sjálfboðavinnunni minni á munaðarleysingjahælinu. Hann Klaas hefur verið að taka svo miklum framförum nýlega. Yndislegt barn. Viltu smá spíra útí kakóið þitt? Síðan dró ég upp lítinn grænan nammipoka með rækjum í og byrjaði að éta. Ég elska sjávarrétti, sagði ég og tók af mér einglyrnið í augnablik til að leggja áherslu á orð mín. "Ég er í félagsfræði og viðskiptafræði í háskólanum hérna í Amsterdam" sagði hún. Hún hafði ekkert einglyrni til að veifa þannig að ég missti einhvern veginn af því sem hún sagði. Skrýtin stelpa, hugsaði ég og pantaði mér gulrótarsafa með engum klökum.
já neinei bara djók svona getur maður nú verið flippaður þegar maður er þunnur og nývaknaður
föstudagur, desember 12
Oh thid erud svo fyndin ad eg er byrjud ad kugast herna ur hlatri. Thad er svo fyndid thegar krakkarnir i skolanum eru i tölvunni og ad skrifa eitthvad sem theim finnst fyndid, tha brosa thau alltaf montbrosi med sjalfum ser og halla höfdinu thegar thau virda fyrir ser eigin brandara a skjanum. Stundum gys tha upp einhver aesingsprumpulykt!
Syngdu fallega i profinu Bra og vertu i flaedinu man. Thad er nyjasta ahugamal mitt (thökk se rhythmik-timunum) og upplifi eg nu saklausa hluti einsog ad labba nidri bae eda sturta nidur klosetti einsog villtasta kynlif.
fimmtudagur, desember 11
Ástrídur ég held ad málid sé bara ad fara á jólamarkad og kaupa notad jólaskraut. Thad tharf ekki ad vera mikid, jóladúk eda eitthvad. Í stad orgeltónlistar er snidugt ad hlusta á lagid Jólahjól, thad kemur mér allavega alltaf í stud. Hér í Svíthjód er jólastemmning í hámarki. Vid erum fastagestir á pósthúsinu ad ná í pakka og senda. Vid drekkum glögg(gluhwein thad virkar) og bordum piparkökur á hverjum degi og spilum í skammdeginu.
Gangi thér vel í söngprófinu Bragi minn.
Jolahjol
Hjoladi i bolvadri rigningu og kulda nidur i adalbyggingu til ad maeta i tima sem var kanselladur. Nu sit eg herna og er furdu rolegur, enda buinn ad eiga annars agaetan dag. Eg er soldid ad fila utsetningatimana mina, af thvi ad kennarinn thar kemur oftar en ekki med skemmtilega tonlist til ad paela i. I dag var thad blessunin og bleyjubarnid hann Kenny Wheeler. Annars hefi eg nu gert atak i jolaskapinu, og hjola nu um med raudar jolakulur a hjolinu og festi nyverid hreindyrahorn a trompetinn. Er buinn ad endurvira pipulagnirnar heima, thannig ad nu kemur bara jolaol ur kronunum og sturtan er beintengd vid Swiss Miss verksmidjurnar a Filippseyjum. Hlaturinn minn hefur einnig faerst nokkud niduravid i raddsvidi, og aherslan liggur frekar a "ho" heldur en "ha".
þriðjudagur, desember 9
Thad er örugglega ekki haegt ad fá malt í Thyskalandi!!!! En thú gaetir keypt maltbjór och blandad med Egils appelsíni. Annars eigum vid Egill 1l appelsín og 1l malt inni í skáp sem thú faerd ad smakka thegar vid komum 22 des. Ég var ad klára ad pakka inn pökkum til ad senda til fjölskyldunnar. Ég hélt ad thetta myndi verda skemmtileg tilbreyting (ad pakka in pökkum) en ég er komin med bakverk og raudsprungin augu af pirringi yfir thessu öllu saman. Helv.. jól. Nei djók! Gaman gaman
mánudagur, desember 8
Undur og stórmerki!!! Ég er búin ad kynnast skemmtilegum thjódverjum. Thad eina sem er ad theim er ad thau gera sér grein fyrir thví hvad thjódverjar eru leidinlegir og asnalegir og afsaka allt sem thau gera eda segja asnalegt med thvi ad benda á ad thau séu nú thjódverjar og thad hafi verid skylda theirra ad segja thetta.
Ástrídur, thad verdur partý hjá stelpunni thann 19. thegar thú kemur.
Gaman ad hitta thig í gor.
slædsjó bob
Ég var að finna myndir frá tónleikunum í Eindhoven um daginn. Þar má sjá marga skólafélaga blása og berja, ásamt undirrituðum. Gebbað flipp í gangi og allir með karatebönd um ennið að ósk leiðtogans.
sunnudagur, desember 7
stórkosmísk undur hafa gerst!
Hverjum hefði dottið það í hug þegar hann var lítill að læra stafina að einn daginn ætti maður eftir að éta eigin staf. Eigin staf, risastóran, úr súkkulaði. Þetta er einmitt það sem hefur gerst hér í dag. Er þetta það merkilegasta sem hefur komið fyrir mig um helgina. Sit hérna við tölvuna á sunnudagsnótt og kjammsa á risastóru E-i úr dökku súkkulaði svona rétt fyrir svefninn. Það var nefnilega Sinterklas um daginn, og þá fá allir pakka. Ég fékk líka pakka frá herra og frú núll-desibel (húsráðendur og leigusalar), og í honum voru einhvers konar perralegar lakkrísbrauðbollur og súkkulaðistafur. Jáneinei. Annars fór ég líka út að borða með Santeri herbergisfélaga og tveimur öðrum Finnum á laugardaginn (þjóðhátíðardagur Finnlands) og borðaði tapas. Síðast þegar ég borðaði tapas fengu Benni og Bragi fávitar ókeypis humarveislu...
fimmtudagur, desember 4
jæja krakkar, þannig er það nú. Ojájá. Seisei.
Píanótími gærdagsins fór í að lesa í gegnum lög med Chicago, Whitney Houston og Steely Dan. Það var gaman, en þó afbrigðilega gaman. Kennarinn okkar (þetta er hóptími) er geðveikur rosi sem talar hátt, er vaxinn hátt og spilar hátt. Hann er einn af þessum einkennilegu lífskúnstnerum sem eru samt ekki alveg með það. Og svo syngur hann líka með í geðveikum fíling þegar við spilum í gegnum lög. Já, hann er undarlegur maður hann Rindert.
Jæa.
þriðjudagur, desember 2
Välkommen Ástríður! Mikið var säger jag bara!
Hér er dúndrandi jólastemmning sem byrjaði með jólakaramellugerð á sunnudaginn með Filip og Emelie frábæru nágrönnunum okkar með hundana. Síðan fengum við fyrsta jólapakkann okkar í gær sem var teppi (það stóð utaná pakkanum). Núna er ég bara að hlusta á Elton Jon og að undirbúa mig fyrir jólaglöggkósístemmningu í kvöld með hópnum mínum í skólanum.
mánudagur, desember 1
gleðilegan fyrsta desember; það er gaman.
Jó! Ástríður velkomin! Vei! Ég sit hérna sjálfur og er að drekka kornfleks með kaffi og er ad hlusta á Chet Baker plötu sem ég keypti í gær. Platan er safn af bestu lögum þeirra Lerner og Loewe í flutningi Bakers og félaga. Lögin bera nöfn eins og Thank heaven for little girls, I've grown accustomed to her face og I talk to the trees. Þessi plata er reyndar ekkert sérlega góð. Í kvöld er ég að spila konsrt í Eindhoven með hálfgerðu stórbandi. Eða stórgerðu hálfbandi. Það verður nú bara kannski gaman. Gaurinn sem leiðir bandið er þrítugur japani sem talar með sterkum japönskum hreim og segir alltaf "þakka þér fyrir" þegar við kveðjumst. Hann ætlar kannski í sagnfræði í Háskólanum á Íslandi. Oho. Ójá.
