Skrifaði undir samninginn í gær og rétti fram seðlabúntið sem skilaði sér. Rosalegur Schwabi leigusalinn maður! Hann var alveg skjálfandi af smámunasemi og nísku og sat yfir mér meðan ég las allan tíu blaðsíðna leigusamninginn yfir. Honum fannst ekkert fyndið þegar ég las gæludýrakaflann og spurði hvort ég mætti þá ekki taka pýtonslönguna mína með mér. ,,Hvað eigið þér við? Eruð þér slönguvinur?
...Nú...Farið þér með gamanmál?, já já. Nú. "
Það stendur margt skemmtilegt í leigusamningnum. Til dæmis:
BANNAÐ að láta drjúpa úr krönunum að óþörfu.
BANNAÐ að láta hárflækjur renna í niðurföllin.
BANNAÐ að reykja.
BANNAÐ að þurrka þvott nema í eldhúsinu.
BANNAÐ að fara í sturtu eftir kl. 10 á kvöldin
BANNAÐ að eiga héra og skriðdýr.
BANNAÐ að skella hurðum.
BANNAÐ að nota fótstigna saumavél nema hafa hljóðdempandi undirlag undir pedalnum.
En ég má flytja inn á mánudaginn (borga að sjálfsögðu aukalega fyrir þessa þrjá septemberdaga)og hlakka mjög til. ENDLICH! EIN ZUHAUSE!!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home