mánudagur, maí 28

Èg get ekki sagt annad en ad ég hafi komid miklu í verk í dag. Segja upp íbúd, kaupa lestarmida, fara í pósthús...effektivitet og vesen. Sídan kom ég vid í baukabúd og keypti No Logo bókina umræddu eftir hana Naomi Klein. Og viti menn, á bædi kili og baksídu er bókin útötud í vörumerkjum tímaritanna sem mæra bókina í formi ritdóma. I-D, Observer, GQ, The Times, The Village Voice...allt eru tetta vörumerki sem hagnast óbeint á tví ad vera í návígi vid tessa líku svakalega hupp bók (og öfugt). Èg efast samt um ad nokkrir peningar hafi skipt um hendur í tengslum vid tetta...en samt...gaman ad pæla í tví (ég pæli ógedslega mikid skiluruh). Èg er búinn ad lesa smá í henni og hún virdist ætla ad verda mjög áhugaverd.

Èg bidst forláts,

Eiríkur

föstudagur, maí 25

Einföld rökleidsla: flugvél flygur, rúta keyrir. Fljúga andstætt keyra. Flugvél hrapar = Rúta flygur.

fimmtudagur, maí 24

Èg vildi bara benda á eina sídu sem heitir explodingdog.com og er nokkud snidug. Fólk sendir gaurnum titla fyrir teikningar og sídan teiknar hann eftir titlunum. Sumar myndirnar eru jafnvel flottar, og eru oftar en ekki med existentialískum tilvísunum, gjarnan vitnad í Sartre eda McDonalds. À köflum má jafnvel greina ögn af ny-post-hlölla-isma (ismista).

Èg var í sporvagninum ádan og rak tar augun í konu nokkra sem var í raun réttri karlmadur á trítugsaldri, annad hvort á fyrstu stigum hormónamedferdar eda hreinlega íklæddur kvenmannsfötum. Einnig rak ég augun í fjórar vinkonur á gagnfrædaskólaaldri sem geisludu af óvissu um eigid ágæti í augum hverrar annarrar. Tær tekktust varla tótt tær voru greinilega búnar ad vera vinkonuhópur í minnst tvö ár. Og sídan töludu tær um eitthvad sem tær voru allar sammála um ad væri "ótrúlega neydarlegt eitthvad". Tetta er hrædileg samblanda fyrir sjálfstraustid; ad vera fjórtán ára og Svíi í tokkabót. Nei, tá er nú skárra ad vera Ìslendingur og bara rúlla í gegnum lífid eins og ekkert sé, án allra vandkvæda sem adrar óædri tjódir turfa ad kljást vid. Èg man ekki betur en ad ég hafi alltaf verid fullkominn. Og ég geri mér fullkomlega grein fyrir tví ad ég sem einstaklingur endurspegla tjód mína í heild sinni. Eda ætti ég ad segja heild minni? Er ég Ìsland sjálfur?

Annars er trommari hér í Svítjód sem er íslenskur og heitir Pétur Östlund og hefur búid hér sídan á áttunda áratugnum eda tar um bil. Hann tykir spegla tjódarsál Ìslands svo vel ad tad kallar hann enginn Pétur lengur. Hann heitir Ìsland.

miðvikudagur, maí 23

Ad vera í gódu studi getur ad sjálfsögdu verid samfara tví ad turfa ad kúka. Madur kallar tad einfaldlega ödru nafni; "kùkagódu studi", og heldur sídan áfram ad sigra daginn. Til dæmis hefur Davíd nokkur Tór haldid tví fram ad tad sé hentugast ad spila fönk tegar manni er mál ad kúka. Èg læt Davídi og tarmaveggjum hans tad eftir ad dæma um notagildi saurs í fönktónlistaridkun. En nafnid er tó fyrir hendi. Kúkagott stud.

Èg var í sídustu jaaazzz kennslustund vetrarins, og henni var slegid saman í stóran tíma tar sem trír nemendur spiludu med kompi (en ekki einkatími med kennaranum ad rembast vid ad kompa á píanóid). Tad var mjög gaman, vid spiludum og fengum fídbakk og hlustudum á plötur og spjölludum. Skemmtileg tilbreyting. Núna á ég bara eftir eina kennslustund hjá klassíska trompetkennaranum mínum, eitt lag med samspilinu á óformlegri lokahátid jazzlínunnar (matur og einhvers konar bodhlaup á eftir, eitt lag á samspil), tónleika med Supertight og sídan loksins, loksins, mína eigin tónleika, sem verda haldnir föstudaginn fyrsta júní. Og öllu tessu lykur í næstu viku, tannig séd. À föstudaginn eftir viku er ég sumsé búinn med skólann og tek á móti Jonna og Siggu og sídan Mama und papa í vikunni tar á eftir. Tannig ad sídasta vikan í Gautaborg verdur gestamóttaka og tjill og sídan ek ég um Svítjód í nokkra daga, og sídan kem ég loks heim tann 13. júní. Dagurinn nálgast ódum, dagurinn sem ég segi skilid vid tetta ár mitt í Svítjód...buhuu...allt fína fólkid og tessi fíni skóli og allt...en Gautaborg kemur samt ekki í stadinn fyrir Reykjavík. Já, jájá, já.

Benni, hvad ertu lengi í erlöndum?

þriðjudagur, maí 22

Annars hef ég heyrt tví fleygt ad Biblían hafi upphaflega verid samin á sænsku. Mörg hundrud árum sídar var hún loks tydd á tungumál Egils Skallagrímssonar, dönsku.

www.radiohead.com er heimasíða sem ég er að snúa yfir á sænsku þessa dagana

mánudagur, maí 21

Tad var einhver gamall jazzunnandi á Ìslandi sem sagdi ad hann fengi svo sérstaka tilfinningu undir bringspalirnar tegar hann heyrdi Gerry Mulligan spila. Tad tótti mér skemmtilega sagt.

Èg var á ágætis hádegistónleikum. Tar var flutt lag sem minnti gjörsamlega á rólega kaflann í Paranoid Android. Èg held meir ad segja ad tetta hafi verid sá kafli, bara med nyrri melódíu. Allavega, tad var bara flott. Og ég efast líka svona hálfpartinn um ad píanóleikarinn sem samdi tad hafi hlustad eitthvad ad rádi á Radiohead. Tad gera tad fæstir. Sumir hafa jafnvel aldrei heyrt talad um Radiohead. Tetta er undarleg tjód.

Èg takka Agli, Dagnyju og Braga fyrir afskaplega skaplega helgi og hún var afskaplega skapleg og gód. Swingbandinu fannst mikid til okkur koma og sagdi ad vinir mínir hefdu virst "trevliga". Einnig munum vid hafa verid fyllri en tau, sem er ad sjálfsögdu enn eitt skrefid í átt til sigurs Ìslands yfir Svítjód. Vid sigrudum.

Ferdin til Lundar og fundurinn vid the gang var líka skemmtileg áminning um hvad mér lídur ágætlega hérna úti og hvad ég á eftir ad sakna skólans og Gautaborgar. Altso madur fær smá perspektív á sjálfan sig tegar madur hittir aftur gömlu vinina og eitthvad. Ekki tad ad tid séud leidinleg...ahem...annars byst ég vid lokanidurstödu og mati dvalarinnar nokkrum vikum eftir ad ég kem heim. Annad er ómögulegt. Enginn veit hvad á fyrr en misst hefur, eda svoleidis.

Djöfull var gaman í lestinni! Èg elska X2000! Òtrúlega hljódlítil lest og hún fer obbosslega hratt og allt! Og sídan hef ég uppgötvad ad tad er varla hægt ad lesa Wallpaper á betri stad en í hradlest í Svítjód. Madur fær svo fallega mynd inn í hugann, af tví ad madur er ad ferdast, í eins konar millibilsástandi milli stada. Grasid er hvorki grænna hérna megin eda hinum megin vid ána, af tví ad madur er staddur mitt inni í ánni og getur kúplad huganum út úr grasgrænkuhugleidingum. Madur er hvorki hér né tar, madur er á leidinni og tá er huganum frjálst ad dreyma. Og sídan er manni kippt út úr bladlestrinum af tví ad heyrnartólin manns tjást af sambandsleysi í vinstra tólinu. Eins og ad drekka raudvín á fínum veitingastad og sídan hellir madur nidur. Kippt inn í hversdagsleikann af tví ad tad er ekki annad hægt, hann er í yfirtyrmandi magni allt í kringum mann. Offrambod á hversdagsleikanum...jájá.

Hérna ég bara veit ekki lengur hvad ég meina og ég ætla ad fara ad fá mér Shake med Bear og Martin.

Bluss

föstudagur, maí 18

Gærdagurinn, í tad minnsta seinni hluti gærdagsins var glimrandi og skartadi dagsljósi í skandinavískum byggingum, klassískri tónlist og bodsgestum. Löng saga, en í stuttu máli fylgdist ég med trompetsamnemendum mínum spila verkin sín fyrir hvorn annan, og sídan máttu allir gera athugasemdir. Tad var mjög gaman. Bengt, trompetkennari vor, er magnadur kennari. Og sídan fékk ég hrós fyrir gódan árangur í vetur og gekk út úr stofunni og nidur í kaffiteríuna/anddyrid/andfengid. Tar var fullt fullt af gömlu fólki ad borda fínan mat og drekka hvítvín. Allt í einu rak ég augun í vini mína sem stódu vid bord og bordudu nákvæmlega sama mat og drukku nákvæmlega sama vín, og teir sögdu mér ad ná mér í mat og vín. Sem ég og gjördi. Tetta var gedveikur matur. Sídan var einhver danssyning/happening úti í útigardinum sem var ótrúlega flott med fáránlega fallegri túlkun á sellósvítum Bachs (í hátalarakerfinu). Èg skildi syninguna sem svo ad hún fjalladi um Lífid. Og sídan drukkum vid meira hvítvín og héldum nidur á Stage Door, stúdentapöbb skólans. Og tar hélt kvöldid áfram sinn vanagang. Sum sé, frábært gærkvöld. Èg er ad hugsa um ad tilnefna alla laugardaga sem fimmtudaga. Tad er ad segja ad hvern laugardag skal hugsa sem óvenjugódan fimmtudag. Jafnvel.

En nú er ég í gódu skapi og gekk jafnvel laugaveg á leidina í skólann og sá fullt af ellilífeyristegum nidri í bæ. Èg held ad tad sé einhvers konar temadagur hjá Gautaborg. Celebrating our Elders Day. Eda Retirees Appreciation Day. Eda eitthvad. HEJA LUND! HÄR KOMMER JAG! Èg fer til Lundar klukkan eitt í dag og tad er bara ansi brádum. Best ad hita upp á sér trompetinn ádur en lagt er í hann. Tetta var ógedsleg setning. Bless!

fimmtudagur, maí 17

Leifur Jónsson, básúnuleikari og manneskja var ad hringja í mig. Honum kann ég takkir fyrir. Einnig ku hann (tú?) lesa Ofn Sannleikans daglega. Èg er svona ad spá í hvort ad tad séu einhverjir fleiri sem lesa tetta án vitneskju Ofnsins? Er ofninn opinn öllum? Gapir hann framan í tjódfélagid og bydur upp á tertu? Dulítid Pæ? Æblepaj?

Sverrir: Èg hef adeins eitt ad segja: Ef tú hættir vid ad túra um Skandinavíu, tá túra ég um andlitid á tér á notudum Saab. Tú verdur ad koma! Hvad med Mårten? Langar tig ekki til ad hitta Mårten? Hann er gedveikt stud! Kommon! Hróarskelda er bara fyrir aumingja! Hver hafdi nokkurn tímann eitthvad gagn af einhverju sem endadi á "kelda"? Krókur og kelda? HróarsGelda væri meira videigandi nafn.

miðvikudagur, maí 16

Í öðrum fréttum er það að ég var að ná prófi sem annars var 51 fucking % fall í.

Af hverju tarf Jim Black ad halda tónleika á Ìslandi í kvöld? Af hverju getur hann ekki bara haldid tá í, tja, júní, svo eitthvad sé nefnt? Nú er madr reidr ok fúll í vilja og sál. Myrkr flaflafla bla bla...af hverju kemur enginn eins og Jim Black til Gautaborgar? Vill enginn leika vid Gautaborg? Er hún svona leidinleg og med asnalegt nef? Og kannski húdsjúkdóm tannig ad tad er fremur ógedsleg tilhugsun ad koma vid hana? Er Gautaborg raudhærd í edli sínu? Èg tekki margar raudhærdar manneskjur, og tad hefur synt sig ad tær eru fullkomlega edlilegar. Margir af mínum bestu vinum eru raudhærdir. Eins og til dæmis Sverrir Bollason. Engum dettur í hug ad dissa Sverri, bara af tví ad hann er raudhærdur. Kommon! Vitundarvakning um raudhærdar borgir Skandinavíu!

Var ekki Jón Gnarr annars í Gautaborg einhvern tímann í fortídinni, tegar hann var ad vinna í Volvoverksmidju? Er einhver sem veit?

mér lídur strax betur.

Èg beit í vörina á mér í tridja skiptid í dag og er ad brjálast út í sjálfan mig. AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA af hverju tarf ég ad vera teirri náttúru gæddur ad bíta í vörina á mér á sjö mánada fresti? Og svo er helvítis vesen ad halda tessa tónleika sem ég ætla ad halda! En tad gengur samt örugglega! Og Egill! Èg tarf ad ná í tig en tú svarar ei síma tínum! Djöööööö!!!

(bara ad fá smá útrás hérna)

DJÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖFULLIIIIIIIIIIIIIIIIINNNNNNNN!!!

(takk)

þriðjudagur, maí 15

Magnað og yndislegt! Ég er barasta alveg allur yfir mig af hamingju. Hvernig getur maður lent í svona löguðu án þess að vilja hoppa yfir herðar sér af kæti? Ég segi nú bara það. jahérna!

Heyrst hefur ad Bragi Bergtórsson ætli jafnvel ad tékka á Lundi næstkomandi föstudag, og verdur tá aldeilis kátt í höllinni. Tad er ad segja tá verd ég líka í Lundi, og einnig er sú stadreynd vída tekkt ad Egill og Dagny eru ad jafnadi geografískt stadsett í Lundi. Og tá erum vid ekki ad tala um pólitíska landafrædi, heldur raunverulega, fysíska landafrædi. Altso líkamar teirra dveljast ad jafnadi í Lundi. Sál teirra er hins vegar alltaf á Ìslandi, innan um tröll og álfadrottningar. Er einhver sem er ekki skilur mig enntá? Tannig ad tad tydir ad fjórir kátir krakkar munu hittast næstu helgi og rifja upp æskuárin. Altso vid myndum tá sennilega fara skipulega yfir æskuárin og jafnvel skipa einn ritara í hópnum. Sídan verdur tetta allt saman rakid og sídan verdur tetta gefid út í litlu hefti (gefid út af Steglu Hf) sem verdur dreift í finnskar matvöruverslanir fljótlega upp úr áramótum. Hins vegar er alls ekki meiningin ad fara eitthvad ad skemmta sér ad ödru leyti. Já nei nei.

Hér fyrir nedan kemur sídan einföldud útgáfa textans fyrir níu ára og yngri:

Hó, sagdi Eiríkur og lyfti sér á tá. Bragi vinur hans ætlar ad koma til Lundar á föstudaginn. Eiríkur ætlar líka ad koma til Lundar á föstudaginn. Ì Lundi ætla Bragi og Eiríkur ad hitta Egil og Dagnyju. Hvad eru mörg L í tví?

Og sídan loks, kjarni setningarinnar, fyrir alla tá sem yfir höfud nenna ekki ad lesa meira en trjá stafi í einu:

Vei!

mánudagur, maí 14

Èg hefi einnig heyrt tví fleygt ad menn verdi gáfadir af tví ad hlusta á Squarepusher. Annars er ég ad hlusta á Feed Me Weird Things frá árinu 1996. Og er sú plata tví ordin fimm ára. Vid óskum öldrunarferlinu til hamingju, tví tad er ekki adeins ord dagsins, heldur ord sídastlidinna fimm ára!

Einnig er geislaspilarinn minn ad breytast í rusl, sem er sjálfsagt adferd hans til ad leggja ord í belg vardandi öldrunarferlisumræduna. Já ég veit, Sony minn, tú ert ad verda tveggja ára og mörg höfum vid saman treyd af árin. Gamli sorrí Sóny. Annars hef ég heyrt tví fleygt ad menn verdi samhengislausir af tví ad hlusta á Squarepusher.

Til eru kínverskur sem eru fullkomnari en adrar.

sunnudagur, maí 13

Hó. Til er stúlka ein er spilar á klassískan kontrabassa og er stillt og fín. Afskaplega alminnileg stúlka. Hún á sér leyndarmál. Hún talar fullkomna kínversku. Sjitt! Hún situr hérna inni í tölvustofu og spjallar um lífid vid kínverska konu. Eins og ekkert sé. Vá. Èg held ad tad sé erfitt ad vera jafn impónerandi og tetta. Djöfull vildi ég ad ég kynni kínversku.

laugardagur, maí 12

Hæ menn og Benni! Hvað segið þið? Hvar er Bragi? Og hvar er tuttugu stiga hiti og sól og sumar? Benni hvað er planið inn i minsta dítejl.

föstudagur, maí 11

Hæ! Ég var að hlusta á dægurmálaútvarpið í fyrradag og heyrði viðtal við meðalannara Sverri Bollason um Gegnrasisma félagið. Fínt framtak að mínu mati. Ég fékk nú þá hugmynd að jafnvel krota eitthvað niður um Sænska reynslu af innlimun innflytjenda í sænskt samfélag. Hvað segið þið um það? þið sem standið að þessu og verða svona útsendari félagsins í svíþjóð. Hér er alltaf verið að halda einhver málþing og þessháttar sem ég gæti farið á og miðlað til íslendiga þeirri reynslu sem svíar hafa af þessu vandamáli sem kynþáttahatur og rasismi er. Hægt er að læra af mistökum og því sem hefur farið vel hérna í svíþjóð og á hinum norðurlöndunum. Ég gæti einnig tekið eitthvað saman úr hagfræðinni og reynt að sýna frammá gildi útlendinga fyrir hagkerfið, svona til að þagga niður í þeim sem halda að útlendingar geri ekkert annað en að stela vinnum og mergsjúga samfélagið. Hvernig líst ykkur á það.

Í fréttum er annars ekkert nema að Kínverjar réðust inn í Taiwan fyrir hálftíma og Bandaríkamenn ætla að svara árásunum misskunnarlaust með kjarnorkusprengjum. Svo er ég að fara til kaupmannhafnar núna á eftir með Pontusi.

Smá brandari líka: Hvað segir Tipper (konan hans Al Gores þegar hún rakar á sér píkuna?....................No Bush, no Bush.

fimmtudagur, maí 10

Benni - afhverju snertirdu ekki bara bílana, tá hreyfast teir hægar...

miðvikudagur, maí 9

TIL HAMINGJUUU!! JEEEEEI!

tetta skrifa ég hér á almennum vettvangi tar ed Audur Jörundsdóttir er tekkt fyrir flest annad en ad lesa emailid sitt. En samt, vei, gedveikt og til hamingju!

(tad sem Benni nálgast, tad hvessir)

nú er einmitt skemmtilegur atburdur ad eiga sér stad vid hlidina á mér. Tad situr stúlka nokkur vid tölvuna og kafar ofan í lyklabordid og pikkar einstaka takka af listfengi og nákvæmni. Èg myndi tora ad vedja ellefu túsund krónum upp á ad tessi stúlka er píanisti. Tad er næstum tví innlifun í vélritun hennar. Tetta er eitthvad sem vid hin munum aldrei ná. Ad vélrita af innlifun og sammannlegu listfengi svo smellur í tökkum og tölvusalurinn horfir dreyminn um öxl.

þriðjudagur, maí 8

Tad er komid sumar! Og tad flassar brjóstunum framan í Gautaborg! Vei!

sunnudagur, maí 6

Èg er viss um ad organistarnir hafa ekki undan vid ad spila tetta lag í jardarförum og á föstudaginn langa. Èg tykist tó viss um ad oftar er bara einn leikari, segjum Arnar Jónsson, sem fer med textann aleinan, hreinan og ómengadan kjarna snilldarinnar, hismi sannleikans.

Èg held ad Heimir hafi verid egypskur konungur eda höfundur Íslendingasagnanna í fyrra lífi, slíkt er karma hans. Er hann jafnvel andsetinn Halldóri Laxness? Ganga tær sögur fjöllum hærra? Èg hef jafnvel heyrt ad textinn sé stafarugl úr sídustu fjórtán setningum úr Sölku Völku. Vidlagid er tó tekid saman úr helstu verkum Johns Kafka. Èg heiti John Kafka.

Èg var drullutreyttur í gær og fór tess vegna heim eftir tónleika nokkra um kvöldid og hófst handa vid ad finna einstædu, taugaveikludu konuna í sjálfum mér sem skrifad er svo mikid um í breskum samtímabókmenntum. Tad tókst rosalega vel. Èg hámadi í mig ís og horfdi á mynd í sjónvarpinu sem fjalladi um fjórar vinkonur sem standa saman í gegnum súrt og sætt (Whoopi Goldberg, Kathleen Turner, Gwyneth Paltrow...need I say more?). Samstundis las ég vidtal vid óperusöngkonuna Ceciliu Bartoli. Èg get ekki annad sagt en ad ég skil allar konur miklu betur eftir tessa erfidu upplifun. Takk fyrir.

laugardagur, maí 5

Um tessar mundir er ég í fullri vinnu vid ad skapa mér minningar frá Svítjód. Til ad skapa minningar verdur madur ad drekka mikid áfengi. Ì gær var nú gaman. Vid fórum nokkrir út ad borda á pólskum veitingastad, tar sem vid bordudum steiktan ost og drukkum Staropramen. Tar var í fylgd kvikmyndalid nokkurt, skipad tremur ungum stúlkum sem vid hittum á swingtónleikunum á midvikudaginn. Ein var ljóshærd, ein var eins og Elísa í Kolrössu og ein leit nokkurn veginn út eins og Hans Orri. Tær voru staddar í Gautaborg til ad gera heimildarmynd um syn ungra drengja á tilhugalífid. Altso ekki okkur, heldur einn annan gaur sem byr í Gautaborg. Tær voru bara ad borda med okkur. Sídan fórum vid á stúdentapöbbinn minn og loks var eftirparty í herberginu mínu. Ef madur er einhvern tíma staddur í Svítjód, tá er besta partytrikkid ad vera med sænsk-íslenska vasaordabók vid hendina. Heldur tad medalsvíanum uppteknum í á ad giska tvær klukkustundir. Og sídan fengu allir bláan Opal og hlustudu á Sigur Rós. Tad vantadi bara fyrirlesturinn um Laxness og Nóbelsverdlaunin og íslenska náttúru og tá hefdi ég fengid vidurkenningu ferdamálaráds fyrir vel unnin störf í landkynningu. Tad er ekki hægt ad flyja frá landkynningarsyndróminu.

Èg var ad hlusta á Bob Hund og teir eru skemmtilegir.

föstudagur, maí 4

Èg mun verda fyrsti madurinn til ad spila á gúmmítrompet. Ì framhaldi af tví mun ég svo stofna gúmmíkvartett evrópu, sem auk sjálfs míns mun innihalda gúmmítrommur, gúmbassa og gúmgítar. Einnig mun ég finna upp tertugítarinn innan skamms, ásamt fraudflautunni langtrádu.

Heil hersing af hressum morgunverdarafurdum med hendur, fætur og spékoppa streymdu í gegnum huga minn í morgun tegar ég hélt inn í eldhús. Tví midur var hersingin adeins tar ad gera grín ad mér, tví tad eina sem ég átti var eldgamalt braud (geymt inni í ísskáp tví tá myglar tad sídur), smjör (smjör) og ostur (ostur). Tess vegna fann gud upp braudristina. Einnig er vitad ad gud fann upp tómatsósuna af nákvæmlega sömu ástædu. Og auglysingabransann. Gud fann líka upp smekk manna fyrir mygluosti og hardfisk. Mmm...hardfiskur...

fimmtudagur, maí 3

Ahoj: Tilkynning til Egils Eyjólfssonar og Dagnyjar Skúladóttur: Hæstvirtur Eiríkur Orri Òlafsson bodar komu sína til Lundar tann 19. eda 18. maí ok mun spila med swinghljómsveitinni Wildcat Swingers á einhvurs konar næturklúbbi í teim bæ. Blóm ok kransar vinsamlegast tegnir med tökkum. Meiri upplysingar sídar meir, er tær berast sjálfum mér til handa.

Annars var gærdagurinn afskaplega gódur og gildur í augum sjálfs míns. Èg spiladi á tónleikum í skólanum í gærkvöldi og tad var afskaplega gód tónlist eftir músíker annars árs djassnema. Sídan var haldid beint eftir tónleikana ad spila med Wildcat Swingers, en tad var svona neydargigg og stadgengill og útkall, af tví ad hljómsveitin sem átti ad spila hætti vid síddegis sama dag. Èg bjóst ekki vid ad neitt myndi ganga upp af tví ad vid höfum ekki hist sídan vid spiludum sídast og tá vorum vid vægast sagt ótéttir, en núna gekk allt upp eins og í sögu og skipuleggjendurnir voru gedveikt ánægdir med okkur og budu upp á freydivín baksvids eftir tónleikana. Skrifa ég of langar setningar? Skemmtilegt, tad.

Vorud tid búin ad heyra ad Sigur Rós aftakkadi David Letterman sjálfan? Hann stód víst nakinn inni í braudtertu og beid tess ad medlimir Sigur Rósar myndu takka kærlega fyrir og byrja ad gæda sér á veitingunum, en teir tökkudu pent fyrir og sögdu nei takk, vid bordum ekki tertur sem eru undir tremur mínútum.

miðvikudagur, maí 2

það eru eittþúsundogeinn gráður á celsíus hérna núna!

megacool!!!! kom o lek med oss

Halló...halló alless klar mit der schautstupf.
Á á mánudaginn var, var var...Valborgarmessa. Ansi funny dei ef ég má halda einhverju fram. Hér í Lundi fögnudu stúdentar med thví ad fara í Stadsparken og ég hef aldrei séd annan eins vorfögnud. Thetta var eins og Roskilde nema án Dana og bara blindfullir svíar sem veltust um í áfengi og ödrum eins saur. Thetta var um kl:hádeigi. Sídan var bara haldid áfram alla nóttina nidrí bae. Thad er aldeilis ad mannlífid er ad lifna vid. Hvernig er thetta í Gautaborg Eiríkur? Er sama gedveikin thar á(í) bae? Svo í gaer aetladi ég ad fara í Maí göngu med skillti sem staedi á "Ísland úr NATÒ, Herinn Burt" og thannig althjódavaeda bodskap herstödvaandstaedinga á Íslandi. Thetta var nú samt med thví skilyrdi ad thad yrdi mikid af fólki. En ónei. Thó ad thad hljómi nú undarlega thá virdist úngt fólk í kommúnista-konungsdaeminu Svíthjód ekki vera mikid fyrir ad sýna samstödu. Thannig ad ég horfdi á karlakór sýngja "sjung om studentens lyckliga daaar....la la la" fyrir framan háskólabygginguna. Svo leit sólin fram og allt vard alveg hreint yndislegt.

Hvernig fór med Nazisten gange an der ersten maí?

þriðjudagur, maí 1

Jahå, ég fór í bæinn í dag og keypti mér kaffi á McDonalds og fór ad fylgjast med kröfugöngunni á Avenyn. Hún var mjög stór og tad var mikid um kommúnista. Èg gerdi mér grein fyrir tví ad tad er ekki tad gáfulegasta í heimi ad horfa skælbrosandi á kröfugöngu kommúnista med McDonalds plastglas í hendinni. Èg hefdi alveg eins getad haft skilti sem stód á "ég styd heimsvaldasinnana" eda "lengi lifi kapitalisminn". Og tad var tá sem ég uppgötvadi ad ég hef enga hugsjón. Ætli tad sé ekki best ad drífa sig í Kringluna á morgun og kaupa sér hugsjón.