sunnudagur, febrúar 29

æ will have my eterni-tea and trink it, zú.

já, hér í eilífðinni er allt svo næs og húgulegt. Fór til Utrecht í gær að spila á tónleikum í kirkju með frídjassandi nútímatónlistarhópi og það var bæði hálf steikt og hálf ágætt. Eigum við þá ekki bara að setja það í ruslatunnuna. Ég er nefnilega í svo eilífu skapi í dag. Svaf í tíu tíma, sem ég geri næstum aldrei og er búinn að dúlla mér hitt og þetta síðan ég vaknaði og hlusta á Arvo Part og Roscoe Holcomb, sem er gamall hillbillí sem lærði að syngja og spila fyrir daga útvarpsins. Hí iss a verrí næs gæ end sinsír and wos jafnan atvinnulaus. Einnig fór ég út og fékk mér shawarma með Arvo Part í eyrunum. Skemmtilega andheilög stemning við það tilefni. Ég hefði kannski frekar átt að fá mér þunnskorið salatblað og einn rúmsentimetra af epli...ég er kannski ekki alveg nógu wholy þessa dagana. Spila aftur í kveld með japananum ógurlega og svo er komið vikufrí í skólanum. Jaahú o.þ.h.

við nánari umhugsun er arvo/shawarmo pælingin samhliða pælingunni um eilíft líf versus líft líf, alías dauða, sem bregður birtu á allífa ástand mannsins og drauma andspænis dauða o.fl. þ.h. sem gefur tilefni til að grannskoða jafnt sem fjarskoða tilhugsunina um "ferli" alías "pathe" eða "formei" og "punkt" vs. "línu" ef slíkt má tala um hér (þar) /um o.þ.h.

fimmtudagur, febrúar 26

ooooo fookk! nei faidi Palma!

jess sor, luks laek ae ken meik it!

Eg atti hringdi i Berlinarskrifstofu Meymis ehf. i morgun og atti drjugt samtal vid forstjorann og hann sagdi mer ad thad liti allt vel ut fyrir 21. agust, thannig ad eg geri hardfastlega rad fyrir thvi ad maeta solbrunn og gallvaskur med snytuklutana og hraerivelina. Hver a svo ad syngja? Thid verdid ad fa Eyva! Latidi Eyva syngja Friends forever!

Frábaert! Ég kem! Ég keeeeeeem!!!!

miðvikudagur, febrúar 25

"we all have a suntan saloon in our Breiðholt apartments"

trompei in the meil, jú is sertein ðei komm sún.

brúðkaup! Djöfull vona ég að ég verði ekki á bullandi túr...algjört möst að komast...en moððer hvað þetta sándar allt fullorðið! Eruði búin að hringja í skjá einn? Eða Séð og Heyrt? Og ad finitum, hvar verður brúðkaupið?

post scriptum: ég er núna offissjallí kominn í panikkástand rjúpunnar af því að ég hef mánuð til stefnu áður en ég fer á el grande tournament del múm. Þarf að ljúka ýmsum smávægilegum verkefnum, klappa hausum, henda ruslapokum, hrista hendur, hrinda hestum, henda hristum, enda kristnar ristir, frysta endur, elda gellur, gelda ellur, rúlla gúllas og bakhrista fóm áður en að ég stíg fæti í eina einustu rútu. Þar hafiði það. Jag er rjúpa. Hrjúf rjúpa.

Bolludagur hjá nágrönnum

Madur er nú ekki alveg laus vid heimthrá. Hún kemur náttúrulega í bylgjum einsog allt annad í lífinu, en thad er ekki undarlegt thar sem vid erum naestum 90% vatn. Hámarki naer hún thegar nágrannarnir okkar eru hvad áfjádastir í ad deila med okkur sínu persónulega lífi, til daemis eru thau hardákvedin í ad fjölga mannkyninu thessa dagana thó thad sé hin mesta kvöl af hljódunum ad daema. Í gaer voru thau sérstaklega kröftug og ákvedin og okkur var nú ekki sama, en thá föttudum vid ad thau voru ad sippa.

mánudagur, febrúar 23

hjer kommer ræða.

Til hamingju með bolludaginn! Bollabollabollabolla. Fór í bollukaffi áðan til Valda og Fjólu, þar var margt góðra Íslendinga, svosem Gunnhildur hörpuleikari, Melkorka flaut, Finnur Hákonarson hljóðmaður ásamt spúsu sinni, henni Tótu. Einnig var viðstödd Ásta Indía Valdimarsdóttir, sem var í mjallhvítarkjól. Ekki má heldur gleyma germanska píanóleikaranum Franz, sem var þar staddur fyrir helbera tilviljun og fann sig skyndilega í samræðum um íslenskt lyftiduft og bakpulver með munninn fullan af bollum. Föstudagurinn var eitt stórt crescendo, sem gerði það að verkum að laugardagurinn var hálfpartinn dolce hjá kallinum, með dasj af tremolo og lúku af doritos. Í gær kom svo í heimsókn til mín Þjóðverji sem fékk lánaða tuttugu og sex diska í þeim tilgangi að brenna þá til einkanota. Hann er ljósritunar-og brennsluóður, ég held að hann sé búinn að kópera hálft bókasafnið. Greyið. Ætli hann hlusti á eitthvað oftar en einu sinni? Og svo var Mummi að segja mér að hann geti komið og heilsað upp á oss þegar vér spilum á Spáni í vor! Vei!

Thad er greinilegt ad sumir eru búnir ad vinna í sínum tapsaerismálum og finnst bara gaman ad tapa 11/1!
Vid fórum á tónleika, eda eiginlega fjöllistasýningu á fim. thar sem notast var vid lyktir til ad auka stemmninguna. Ég er svo fegin ad vera búin ad fara á eitthvad thar sem notud er lykt, allir eru alltaf ad tala um thad en thad er aldrei gert. Thad var mjög skýrt thegar lyktirnar komu, en ég nádi samt ekki alveg tilgangnum eda samhenginu í thví ad nota thaer. Held thad hafi verid svona aftvíbara bara til ad gera thad. Vid öngudum einsog jónas á milli thegar vid komum út.
Er á leidinni í bollukaffi til Ólafar Sigursveins D. Kristinssonar Jónssonar Smyrils, Jasonar tvítóla.

Thad er greinilegt ad sumir eru búnir ad vinna í sínum tapsaerismálum og finnst bara gaman ad tapa 11/1!
Vid fórum á tónleika, eda eiginlega fjöllistasýningu á fim. thar sem notast var vid lyktir til ad auka stemmninguna. Ég er svo fegin ad vera búin ad fara á eitthvad thar sem notud er lykt, allir eru alltaf ad tala um thad en thad er aldrei gert. Thad var mjög skýrt thegar lyktirnar komu, en ég nádi samt ekki alveg tilgangnum eda samhenginu í thví ad nota thaer. Held thad hafi verid svona aftvíbara bara til ad gera thad. Vid öngudum einsog jónas á milli thegar vid komum út.
Er á leidinni í bollukaffi til Ólafar Sigursveins D. Kristinssonar Jónssonar Smyril, bródur Jósefs tvítóla.

Gleðilegan bolludag.

Við Egill erum að taka þátt í fótboltamóti og fyrsti leikurinn var í gær. Við töpuðum 11/1 en þetta var samt mjög gaman. Ég get varla labbað í dag og tók eftir því í morgun að kálfarnir á mér eru 2 sinnum stærri núna en þeir voru fyrir leikinn. Ég hef líka ákveðið að byrja að hlaupa eða eitthvað því að þol mitt er í lágmarki. Það er greinilega ekki nóg að synda 2-3 í viku og hjóla í skólann.

fimmtudagur, febrúar 19

Til hamingju með afmælið Ástríður mín! Ég hringi í þig í kvöld, ok!
Svíar eru líka oft frekar þreyttir en það sem er meira áberandi er hvað allt er svo"jobbigt" sem beint þýtt þýðir vinnusamt. Það er líka oft talað saman í svona klagandi tón sem stundum getur verið óþolandi. Þeir eru samt alveg með ágætan húmor oft svo að ég get ekki kvartað yfir því. Ég held að það sé eitthvað til í því að ef orðið væri ekki til þá væri ekki allt svona jobbigt.

HhhaaAAAAAJJJJ!!!!

er hér í bullandi morgunham að skrifa á bloggið eins og mér hafi borist umtalsverð fjárhæð í vasann aldeilis óvænt og ófyrirsjeð. Skrobede í pianoklasse í gær og fór í bæ, keypti buxur (með stillimyndarmerki á rassinum, of korse) og Frank Sinatra fimmfaldan geisladisk á evrur tíu. Stríðsára-Sinatra er assgoti kúl. Og nú sé ég líka fram á að fá hrós og aðdáunarandvörp í skólanum, því á botni mínum er stillimynd. Og svo ætla ég líka að þykjast spila á luftgítar, og þá er minn bara búinn að vinna aðdáun alls kvenkyns í vestanverðri Evrópu. Stundum er livet svo einfalt...já, hér í Evrópu er alt eins og í ett drömmeland, maður svífur á bysíkel um grjóthlaðin stræti og torg, vinkar bakaranum, kíkir niður á höfn að spjalla við salt jarðar til að fá fregnir frá amiríku eða indía, tekur ofan kaskeytið fyrir ráðskonunni, skreppur til Gammel-Lars til að fá lánaða "jazz"-gramófónhlemma og diskútera mannleysuna hann Göbbels. Svo tekur maður fram leizer-pistoluna og ógnar bankastarfsfólkinu og sker svona fallega zetu í bankahvelfinguna og teleportar sig loks suður á Mýrdalssand til að grafa góssið. Ríður heim í hlað á Grána og sprengir upp Pajeroinn og fær sér cigarino og blikkar myndavélina.

viðlag:
já það er fjör, já það er fjör x3
já það er fjör í Evrópuuuu

Benni: það fer alveg að líða að trompeits, vonandi tek ég sessjon um helgina og klára þetta. Svo sendi ég um hæl.

HhhaaAAAAAJJJJ!!!!

er h?r ? bullandi morgunham a? skrifa ? bloggi? eins og m?r hafi borist umtalsver? fj?rh?? ? vasann aldeilis ?v?nt og ?fyrirsje?. Skrobede ? pianoklasse ? g?r og f?r ? b?, keypti buxur (me? stillimyndarmerki ? rassinum, of korse) og Frank Sinatra fimmfaldan geisladisk ? evrur t?u. Str??s?ra-Sinatra er assgoti k?l. Og n? s? ?g l?ka fram ? a? f? hr?s og a?d?unarandv?rp ? sk?lanum, ?v? ? botni m?num er stillimynd. Og svo ?tla ?g l?ka a? ?ykjast spila ? luftg?tar, og ?? er minn bara b?inn a? vinna a?d?un alls kvenkyns ? vestanver?ri Evr?pu. Stundum er livet svo einfalt...j?, h?r ? Evr?pu er alt eins og ? ett dr?mmeland, ma?ur sv?fur ? bys?kel um grj?thla?in str?ti og torg, vinkar bakaranum, k?kir ni?ur ? h?fn a? spjalla vi? salt jar?ar til a? f? fregnir fr? amir?ku e?a ind?a, tekur ofan kaskeyti? fyrir r??skonunni, skreppur til Gammel-Lars til a? f? l?na?a "jazz"-gram?f?nhlemma og disk?tera mannleysuna hann G?bbels. Svo tekur ma?ur fram leizer-pistoluna og ?gnar bankastarfsf?lkinu og sker svona fallega zetu ? bankahvelfinguna og teleportar sig loks su?ur ? M?rdalssand til a? grafa g?ssi?. R??ur heim ? hla? ? Gr?na og sprengir upp Pajeroinn og f?r s?r cigarino og blikkar myndav?lina.

vi?lag:
j? ?a? er fj?r, j? ?a? er fj?r x3
j? ?a? er fj?r ? Evr?puuuu

Benni: ?a? fer alveg a? l??a a? trompeits, vonandi tek ?g sessjon um helgina og kl?ra ?etta. Svo sendi ?g um h?l.

miðvikudagur, febrúar 18

Af hverju er ekki pedall á tölvum?

Svona svipad einsog á saumavélum eda píanói. Datt thetta í hug thegar ég var ad horfa á orgelstelpuna á undan mér í tölvunni. Thad var einsog ad horfa á saumavél, hún pikkadi svo hratt og var einnig deyfdarleg til augnanna. Thá fannst mér synd ad hún gaeti ekki einhvernveginn útvíkkad ritvinnsluhaefileikana.

Er ad fá alveg nóg af thýskum samraedum. Thjódverjar eru búnir ad thróa med sér ad tala alltaf um leidinlega hluti. Their fatta thad ekki sjálfir, en ég er búin ad gera könnun undanfarid og hef hlustad á fólk tala saman. Algengustu ordin eru:

1. Müde (threyttur) 64%
2. Euro (evra) 38%
3. Verboten (bannad) 5%
4. Nein (nei) 3%


...fyrir utan töluord sem eru náttúrulega mjög vinsael, í sambandi vid tímann, verd eda bara einhverjar adrar thurrar stadreyndir.

halló gott fólk! Bragi! Ég kem í heimsókn til Íslands 29. mars svo að þú getur byrjað að hlakka til einhvers. Ég hef ekki miklu að bæta við samræður ykkar um klósettferðir og börn svo að ég læt þetta bara nægja í dag.

þriðjudagur, febrúar 17

Naest thegar ég sé karmann taka upp smábarn aetla ég ad spyrja hann hvort hann sé ekki med standpínu?

mánudagur, febrúar 16

Hringlandi eggjastokkur

Thad er nú meira fyrirbaerid. Hverjum datt thetta eiginlega í hug?
Í gaer var bröns eda hámorgunverdur hjá Maggíu sem stód frá kl. 12 á hádegi til kl. 11:30 um kvöldid. Assgodi naes.

laugardagur, febrúar 14

Ef einhver ætlar að tala um Verdi, þá er það náttúrulega ekki hægt án þess að tala fyrst um Heine eða slíkt. Hann var mjög framarlega í tónlist þá.

Eyddi gærkveldinu í að búa til æðisgengna og óumdeilanlega raftónlist á forrit sem er demó þannig að það er ekki hægt að seiva. Er það svo náttúrulega uppskrift að slysi ("recipei for disester"). Er samt kominn á fremsta hlunn með að kaupa þetta prógramm. Það er sko ekkert dýrt programme, sérstaklega þegar dollarinn er svona fáránlega tsjíp! 67 kall! Ég er kominn með æði fyrir lélegri málfræði. Vona að þetta sé bara eitthvað skeið. Ég kenni Benna um með sína fyrirsögn um Verdi. BENNI ÞETTA VAR ÖÖMURLETT! Ekki SMITA!!

föstudagur, febrúar 13

Ps. Verdi er ömurlegt tónskáld.

Sá og heyrdi Il Trovatore í gor, med hinni yndistryllingslegu Nagelstad í adalhlutverki. Hún var ad vísu ekki eins gód og í Normu um daginn, en engu ad sídur feikiágaet. Fölskumaelir minn blikkadi samt raudu ljósi allan tímann, ég hélt ad enginn vaeri falskur í óperuhúsi í útlöndum, en thad er nú ödru naer! Sérlega áhugaverd var sena thar sem karlakór stód frammi á gangi og söng á móti einhverju á svidinu, langa senu og alltaf 3/4 tóni nedar. Thetta vaeri kannski ekki í frásögur faerandi nema ad tenorinn (sem var óvenju ósmekklegur og notadi grenj-klökkn-effektinn á hverjum tóni) söng baksvids í enn ödrum pitsheimi.
Ég nenni ekki ad aefa mig í dag og er ad hugsa um ad fara í baeinn ad kaupa eitthvad fallegt á heimili vort.

miðvikudagur, febrúar 11

thad var og

ojjojojojj!

sit her med ofatsbauga undir augum og thvala hud af thvi ad eg let ofan i mig of storan skammt af deluxe pasta a undraverdi a undraverdri bullu i ondverdu nagrenni skolans. I kringum mig er myrkur og her huki eg uti i horni og bid thess ad mer verdi refsad fyrir ad lja thessum tiltekna medlimi syndaseptetts daudans eyra. Hann heitir Olgeir Ofat. Hann hefur mjog mikid magn aromata i munnholi sinu, og getur medhondlad tha ad vild med finhreyfingum tungunnar. Thad erfidasta sem hann hefur gert er ad lykta eins og samblanda af koreander, arinu 1984, malningu og thurrkudum ferskjum. Hann var med krampa i tungunni i tvaer vikur eftir thad og taladi tha med adstod talgervils.

benni meinn: valdicollins@hotmail.com er tofrathulan sem naudsynleg er fyrir kosmisk bodskipti a milli adila x og Valda.

Eg skammadi kennarann minn i tima i morgun. Hverjum hefdi dottid i hug ad eg aetti nokkurn timann eftir ad gera slikt? Hann er sko alltaf ad fella nidur timana sina thess ad lata mann vita og eg var ad skamma hann fyrir thad i dag. Otrulegt, aksjualli. Gudrun Dalia, ert thu ekki lika alltaf ad hnyta i kennarann thinn?

Búin ad vera lasin lasin kúkasmasin. Las söguna af Pí, mér fannst hún léleg medan ég var ad lesa hana en mjög gód eftir á. Eiginlega er paelingin frábaer en ég var ad tryllast á öllum nákvaemu lýsingunum og upptalningunum í henni.
Hei ég hitti tenorinn thegar ég var ad ganga inná bókasafnid og hrósadi honum fyrir sjálfan sig og mér sýndist hann barasta audmjúklega ánaegdur med thad. Hann er ennthá uppgötvun ársins í söngheimi mínum, en ég tek thad skýrt fram ad ég hef náttúrulega ekki enn heyrt í Braga syngja. Hann er örugglega enn betri. Thad er frábaert hvad thú ert ad meika thad Bralli minn. Thú skýst einsog öfugt stjörnuhrap uppí himininn!!! Bara ekki fara ad gera Jóhanns Fridgeirs-brosid án thess ad vera ad grínast.
Hjörtur fékk birta grein eftir sig á leidaraopnunni í mogganum thar sem hann gagnrýnir eftirlaunalögin og má thad teljast kraftaverk. Allir ad maeta á morgun á Austurvöll og stydja hann í thessu!

sunnudagur, febrúar 8

ðis is oll fön.

Var á sellótónleikum áðan og horfði á bjarndýr spila á selló af miklu listfengi. Það var eins og hann hefði fæðst með selló í fanginu. Hann leit út eins og leikari í Swiss Miss auglýsingu, honum fannst svo kósí að vera þarna uppi á sviði með chellóið í hramminum. Nokk magnaður chellist. Ætli hann sofi með sellóið uppi í rúmi hjá sér? Annars þarf ég að hugsa hratt núna af því að ég þarf að halda tíu mínútna tölu um viðfangsefni að eigin vali í kennslufræði á morgun. Ég held ég tali bara um það sem ég þekki best: spíródínamískar breytingar á öndunarmynstri lemúra m.v. ölduhæð í sunnanverðu Barentshafi (deilt með fjölda Andrésblaða sem fjalla um lemúra (fyrir 1983 (frá og með (gregorian(intro)(sk))). Og þá er náttúrulega alltaf best að fara á internetið til að dreifa huganum. Skipta honum bróðurlega á milli mbl.is, oven.blogspot.com, hotmail.com og baggalútur.com. Og þá er maður búinn með allt hugann og ekkert eftir og þá verður maður að fara að sofa. Ég biðst afsökunar á að hafa eytt tíma þeirra sem lásu. Gúnatt.

Hae! Thad var gaman í gaer! Hryllingsmyndin var samt ömurleg. Mig dreymdi í nótt ad Bragi vaeri ad syngja á tónleikum med Björk. Hann var mjög stressadur og leit út í framan eins og hann vaeri ad pissa á sig alla tónleikana.

laugardagur, febrúar 7

já ég væri alveg til í það Auðsi minn ef ég gæti bara hoppað upp í flugvél og komið til Iceland. Ég er reyndar að koma 29 mars svo að þá get ég sötrað með þér 10 rauðvínsflöskur ef þú ert villt. Ég er að fara að horfa á Útlagan og einhverja hryllingsmynd í kvöld með fullt af fólki. Það verður mjög gaman, held ég. Framhald...

föstudagur, febrúar 6

dude - hver er Boddi?

sigurganga bolsins míns með stillimyndinni gekk áfram í gærdag þegar ég fékk að minnsta kosti jafn mörg komment á hann og daginn áður. Meir að segja fólk sem ég hafði aldrei talað við áður vatt sér að mér til að hrósa honum. Ég hef fengið nóg. Af hverju getur fólk ekki metið mig fyrir persónuleika minn, í staðinn fyrir óaðfinnanlegt útlit mitt? Góður guð, allt sem ég bað um var að fæðast með *eitt* lýti, og þú gefur mér ekkert! Whhaaayyyyyy?Ð!Ð Þetta er sagan af óaðfinnanlega fallega rónanum og fjöldamorðingjanum Neptúnusi, sem leiddist út í eiturlyf og glæpi af því að sál hans gat aldrei jafnast á við óaðfinnanlega ytri fegurð hans. Hann ráfaði jafnan um strætin í gömlum rykfrakka og með sjúkrabindi vafið um andlit sitt. Á höfði hans var hattur, og innan á hattinn límdi hann myndir af fórnarlömbum sínum með gulu kennaratyggjói. Hann var hrifinn af Nonnabátum og löngum gönguferðum.

Benni: gerði ránd tú af upptökum á dótið þitt og það er bannað að hafa þetta ekki með af því að sumt af þessu er bara helvíti flött. Og til hamingju með vinnuna.

miðvikudagur, febrúar 4

kraftaverkabolurinn

Hann Jón bróðir minn gaf mér bol með stillimynd RÚV í ammælisgjöf. Ég fór í hann í dag og ég hef aldrei fengið jafn mörg komment um nokkra flík sem ég hefi íklæðst en þessa. Öllum fannst þetta vera ógeðslega frábær hugmynd. Með hverju kommenti sem ég fékk smitaðist frábærleikinn yfir á mig, og núna, í lok dags, er það ekki bolurinn sem er frábær, heldur ég. Aaah hvað ég er frábær, ég. Best að fara út á götu og spjalla við alla nágrannana mína sem ég þekki ekki og breyta deginum þeirra í frábæran dag og síðan gefa öllum sem vilja ókeypis súpu og fara síðan og kenna öllum börnunum að smíða flugdreka, skreppa inn í nokkrar íbúðir og leysa hjónaerjur með frábærri útgeislun minni og kenna George Bush að hekla og dúlla, svo hann fái hekliæði og verði að segja af sér sökum tímaskorts.

ummm...þessi romsa gerir nú eiginlega fátt annað en að gera manni ljóst hvað maður geri lítið fyrir annað fólk svona dagligdags. Úps. Ööö...ég lofa að gera góðverk á morgun..heh...umm...hei! Simpsons!

Kennarinn minn í félagsfræði er eitthvað klikkaður. Ég var veik á mánudaginn en þá áttum við að hitta hann einn í einu og tala við hann um næsta verkefni. Ég hringdi í hann og hann sagði "ekkert mál ég hringi bara í þig á eftir og við spjöllum bara í gegnum síma". Hann hringdi síðan aldrei og ég náði loksins í hann í dag en þá sagði hann "Hvað viltu ?" Ohh ég þoli ekki svona rugl. Ég er búin að hafa miklar áhyggjur af þessu og hann var annaðhvort bara búinn að gleyma mér eða nennti ekki að tala við mig. Ég náði allavega að kreista út úr honum hvað ég ætti að gera svo að þetta fór svosum allt vel að lokum.

Thad er eitthvad í loftinu! Ég stakk mig LÍKA á blýanti!!!
Ég skal segja ydur thad.
Gerdi hreyfilegan píanó-orda-gjörning med Maggíu í morgun. Thad eru engin takmörk fyrir thví hversu stórkostlega ég fer yfir mín eigin takmörk thessa dagana. Frábaert. Ég er frjáls!!!
Ég er komin med átrúnadargod í skólanum, rússneskan skagfirskan tenór. Hann er yndislegur, heyrdi hann syngja í annad sinn í gaer og hann slítur strengi hjarta míns. Flestum söngvurum finnst hann hraedilegur (ódannadur og ósmekklegur) en ég fíla einmitt thad svo. Verd ad segja honum thad vid taekifaeri. Ég thekki hann sko ekki neitt, hann lítur frekar út einsog roleplay nörd en tenor, med sítt kleprahár og kringlótt gleraugu. Uppgötvun ársins frá minni hálfu.

þriðjudagur, febrúar 3

Kennarinn minn er enginn prinsessa, en hins vegar a hann thad til ad maeta i buningum ur Grimms-aevintyrunum i tima, og oftar en ekki er hann i gerfi prinsessu. Um daginn var hann i froskbuningi og vildi ekki tala vid mig af thvi ad froskar kunna ekki ad tala. Thad var mjog laerdomsrikur timi og eg laerdi ymislegt um atferli froska thann daginn. Eg er ad fara i tima til hans nuna a eftir...HVERJU AETLI HANN TAKI UPP A NAEST KRAKKAR?! Annars er eg buinn ad eiga agl skemmtilegar hjolaferdir sidustu daga og buinn ad detta tvisvar a thessu diaboliska hjoli minu og meida mig (stumradi um midjan dag eins og drykkjumadur nidri i bae eftir fall nr. 1 og hraeddi gamlar konur i kringum mig). Pikkadi upp afmaelisgjof i dag og eyddi deginum i dag i absolut bullsjitt og hangs af thvi ad eg er buinn ad tyna skolaskirteininu minu (=engin aefingaherbergi). Einnig stakk eg mig i fingurinn a skrufblyanti. Ja, lif mitt er samfellt helviti.

Kennarinn minn er alvöru prinsessa!!!
Heyrdi thví slúdrad í gaer og fékk thad stadfest frá henni sjálfri í dag.
Thad thýdir sko ekki ad bjóda henni uppá neitt kjaftaedi núna.

mánudagur, febrúar 2

Thad er svo hlýtt hérna ad ef thetta vaeri ísland vaeru allir úti á bikiníi. Frábaer fílingur in der Luft og allir flissandi, jafnvel thjódverjarnir. Aumingja Thjódverjarnir, their mega ekki alhaefa neitt um neina thjód thví thá eru their svo miklir nasistar, en svo gera adrar thjódir ekki annad en ad rakka thá nidur á grundvelli thjódverjnis theirra!
Rhythmik kennarinn kom med thá kenningu ad ordid EN vaeri gjörsamlega ótharft og ef madur notadi OG í stadinn yrdi lífid fallegra. Td. ,,Ég get gert thetta en ég má ekki gleyma hinu" segist frekar ,, Ég get gert thetta og ég má ekki gleyma hinu". Hún, kennarinn, segir ad thad sé krampi í EN. Fleiri krömpud ord vaeru EIGINLEGA, KANNSKI og SJÀUM TIL og vid aettum ad fordast ad nota thau.
Ég trúi öllu sem thessi kona segir, hún er ad fara á eftirlaun og lítur út fyrir ad vera yngri en ég, auk thess sem ég hef aldrei sé jafn vankrampada manneskju á aevinni.

Frábaer helgi!

Gemsanum okkar og veskinu mínu var stolid um helgina á Ariman. Ég var med allt í poka sem Egill stakk í ermina á jakkanum hennar Thóru. Thad hefur einhver verid ad fylgjast med thessu og stolid jakkanum. Egill vard alveg brjáladur og hringdi í símann. Thá svaradi raeninginn og sagdist aettla ad láta okkur fá símann ef ad vid mundum borga 1000 kr saenskar fyrir hann. Sídan fór Egill heim í brálaediskasti og skildi mig eina eftir blindfulla ekki alveg med allt á hreinu. Ég hringdi í raeningjan og sagdist aettla ad borga honum og vid maeldum okkur mót. Ég hringdi sídan í lögguna og hún kom á bíl og ég settist inn í bílinn og sagdi theim ad vid hefdum maelt okkur mót og spurdi hvort their gaetu ekki keyrt mig ad hitta hann. Theyr fóru bara ad hlaegja og sögdust ekkert geta gert. Raeninginn mundi hvort eda er bara hlaupa í burtu ef hann saeji löggubíl. Sídan thegar löggan var farin hitti ég vinkonu vinkonu minnar og hún ákvad ad hringja aftur í raeningjann. Thau töludu lengi saman og ég var farin ad vona ad hann mundi skila símanum en sídan slökkti hann á símanum og ég hef ekkert geta hringt í hann aftur. Vid erum ad sjálfsögdu ekki tryggd og erum ennthá ad borga af símanum. Ég fékk samt öll kortin mín aftur sem voru í veskinu thví ad einhver stelpa fann thau á götunni í sama hverfi og ég aettladi ad hitta hann.
Ég held ad ég hafi laert mikid af thessari reynslu. Ég er till daemis aftur kominn med heimilistryggingu (vid ákvádum nefnilega ad borga ekki sídasta reikning og reyna ad finna ódýrari heimilistryggingu, thegar ég hringdi ádan spurdi ég hvort heimilistryggingin sem vid vorum med hefdi gilt og hún sagdi já ad sem sagt thá hefum vid geta fengid síman borgadan, Ótholandi!!) og búin ad ákveda ad haetta ad drekka.

sunnudagur, febrúar 1

ljóðstafir kverkanna/(stuðlar á brisbeði)

Fór á aaall svaaaaaaðalegt rokk í gær kunningi, þetta var stanslaus nautnafans félagi get ég sagt þér kallinn. Hitti fólk á bar í gær, hápunktarnir voru sennilega tvær manneskjur. Annars vegar hann Wijnand, sem bar nafn með rentu og kláraði níu Duvel bjóra (en það eru einmitt afskaplega sterkir bjórar) það kvöldið til að manna sig upp í að deitið hans kæmi. Nú svo kom deitið og allt gekk eins og í sögu og nú er hann Wijnand kallinn sennilegast staddur í lostatransi með skíðakennaradeitinu sínu einhversstaðar í Amsterdam. Gott hjá honum. Hins vegar var það kona nokkur sem tók af allan vafa um að hún væri ekki söngkona á fyrstu tíu sekúndunum, þegar hún hló einum svakalegasta sópranhlátri sem ég hef heyrt. Og svo hélt hún áfram að hlæja allt kvöldið, og kurraði eins og dúfa þess á milli. Sorrí, ég bara meika ekki svona hlátur. Það er eitthvað rotið við þetta. Plúsinn við kvöldið var að ég uppgötvaði frábæran viskíbar rétt hjá Leidseplein og hábölvaði sjálfum mér fyrir að hafa ekki vitað af honum fyrr.

ps. er eðlilegt að Hollendingur sendi manni sms sem byrjar á "dude" án þess að vera kaldhæðinn?