jæja
þriðjudagur, september 25
föstudagur, september 21
Nú! ég hélt að fólk væri byrjað að skrifa á Blogginn. Jæja ég er allavega að fara í próf í fyrramálið og er ný kominn gegnum "Im-so-fed-up-I-could-puke" fasan og að svífa inn í "þetta-verður-easy" fasan.
Bæó -ÉgSkil-
miðvikudagur, september 19
Ég er að spá í að fara að kalla mig -ÉgSkil- í staðin fyrir Egill. Þetta er einhvernveginn miklu persónulegra nafn sem gefur sjálfi mínu gaum. Það er eitthvað svo hlýlegt og bjóðandi. Svo ótrúlega kammó. ÉgSkil þú skilur.
Bæó
-ÉgSkil-
Hey þetta hljóðar vel! ég er einmitt núna í próflestri en ég er að fara í próf á Laugardaginn. Próf á Laugardegi! hafið þið heyrt eitthvað fáranlegra? Annars er ég með soldið skemmtilegar fréttir. Belle & Sebastian eru að koma til Lundar einhverntiman í nóvember, mega kúl, og ætla að spila á Mejeríet. Beta Band er líka að koma í nóvember. Nóvember verður svæsinn mánuður.
Bragi ég held að allur heimurinn sé veikur. Ég er allavega veikur ennþá. Og allir vinir mínir eru veikir og vinir þeirra og vinir þeirra og vin....... . Þú skilur. Þetta er Massive Hermst. Bið að heilsa Dj Sóleyju ef þú hittir hana. Bæó -Egill-
mánudagur, september 17
Hló og hlæ hlæ allir saman! Blessadur Bragi B., Eiríkur, Benni og allir hinir sem láta eitthvað frá sér á þennan miðil. Ég hef það bara fínt. Nú eru Vignir frændi minn og vinur hans, Örlygur, komnir en mikið stefnulaust stuð ríkir hér á bæ. Frá skólanum er það að frétta að ég er í stærðfræði. Við erum að deilda, reikna botn og topppunkta, beygjupunkta og svo að reikna út hvenær föll eru fráhverf og samhverf e.t.c. Semsagt allt það sem er gott að vita ef maður vill finna út jaðargróða eða tap fyrirtækja eða þjóða. Ég fíla mig svoldið eins og ég sé í STÆ 603 sem er bara besta mál. Kennarinn minn er síðhærður með þykk svört gleraugu, alltaf að segja "Fan" og "jävla skit" (Honum finnst Deildun "skit kul" eins og hann orðaði það sjálfur) og lítur út fyrir að vera mikill Metallica aðdáandi. jæja svona er nú það. Ég er að fara til Berlínar í lok mánaðarins með pabba sem að fara að hlaupa Marathon. Er einhver annar að fara til Berlínar? Að hlaupa Marathon? Látið mig vita. Bæó, -Egill-
mánudagur, september 10
Skrifaði ekki í gær en ídag er ég veikur. Með hálsbólgu og einhverja fjandans ræpu. Annars er gaman að sjá hvað fólk er áhugasamt þegar kemur að hægðum lífsins. Eingin ræpa á bloggnum. nei.... harðlífi!!!
laugardagur, september 8
Bless-nexaðir/ar allihopa! Whats happening. Etthvað i gangi eða? Ég er allavega á leiðinni til Málmeyjar í smá innfluttningspartí hjá stelpu sem ég þekki eiginlega ekki neitt. Einu tengsl mín við hana eru sú að ég skulda kærastanum hennar pening fyrir bókum sem ég keypti af honum, jú og svo er hún líka vinkona vina minna e.t.c. Kærastin hennar heitir Hassan og er svíji með rætur í Maroccó. Mig kvíðir nett fyrir þessari ferð en eins og allir vita er maður ekki seif í sænskum stórborgum. Þar er alltaf verið að myrða fólk og þá helst í dögun með exi eða eitthvað. Ég skrifa aftur á morgun ef ég lifi þetta af.
