hæ hæ
Smá fróðleikskorn. Ég var að lesa kenningu um hvernig heimsvæðingin breytir menningalegri upplifun okkar af stöðum. Hún skapar svokallaða non places sem eru t.d. flugvellir, stórmarkaðir eða hraðbankar. Þessir staðir eiga það sameiginlegt að mannleg samskipti eru af mjög skornum skammti og að þeir skilja ekkert eftir sig. Breytingin frá því áður er sú að þessum stöðum hefur fjölgað verulega, að þeir verða oftar á vegi okkar og hafa þar af leiðandi meiri áhrif á líf okkar.
Annars er það að frétta að Egill er sofandi, draslið í íbúðinni okkar er byrjað að skríða og ég þykist búa í tölvuherberginu til að sleppa við að hugsa um draslið. Það er samt örugglega ekki langt þangað til draslið kemur skríðandi hingað inn líka. Ég læt ykkur vita.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home