Góðan, blessaðan og daginn. Ég er staddur hér í Hell-o-land studios að skrifa orð. Ég er pínulítið þreyttur hérna. Er búinn að eiga ágætis dag, fékk bréf um að ég ætti að mæta til Hollands þann 14. maí að spila fyrir fólk sem síðan ákveður hvort það vilji að ég hangi með þeim næstu fjögur árin. Mummi, við þurfum endilega að hittast. Þú til mín eða ég til þín? Síðan fór ég á æfingu hjá Óla Birni að æfa brasstríóið hans, hitti Braga á Kaffibarnum, fór í FÍH að fiffa stöff, keypti fjöltengi í Kringlunni, fór á bókasafn Tónó að taka upp hljóðbúta úr nútímaóperum til að nota á tónleikunum með ANUS á morgun, fór síðan og kenndi minn fyrsta einkatíma á trompet (wúhú!) og síðan fór ég heim. Mér finnst einhvern veginn eins og það sé svo mikið að gerast þessa dagana. Gott mál. Braga finnst það líka. Ég tel að þetta sé fyrir tilstilli kosmískra alheimsbylgja. Það er eins og gervallt mannkyn sé stillt á Útvarp Kosmos (FM óendanlegt komma pí), og Sergio Mendez er í útvarpinu.
ps. sá Mulholland Drive í gær. Uhmm...já.