fimmtudagur, júní 30

Ju, helsinki og st. petersburg segir hae. Eg get ekki skrifad i gluggann fyrir nedan, adeins i fyrirsagnargluggann, svo hae hae, ottar her a hinni

mánudagur, júní 27

Þennan dag árið 1983 lést franska uppfinningakonan Madeline du Sex, en hún er einna þekktust fyrir að hafa fundið upp kynlífið. Að eigin sögn fékk hún hugdettuna þegar hún var á gangi í nágrenni sveitaseturs síns í Tolouse og tók eftir því að hæðirnar í kringum hana voru misaflíðandi. Segir sagan að hún hafi orðið fyrir svo miklum hughrifum við uppgötvun sína að hafi haldið henni leyndri í þrjátíu ár þar til eitt kvöldið, eftir að hún hafði unnið rauðvínslottóið á skrifstofunni sinni. Í dagbókum eiginmanns hennar, Bertholde Money, er að finna svæsnar lýsingar af þessum frumstæðu tilburðum. Sérfræðingum ber saman um að meginþorri mannkyns hafi verið eingetinn fyrir uppgötvun Madeline.

thennan dag arid 1973 lest Edmund Pasta, madurinn sem uppgotvadi pastad. Edmund Pasta var fjolhaefur madur, en leid helst fyrir megna andfylu. Hann thotti afbragdsgodur dansari og vakti mikla athygli fyrir frammistodu sina a danssyningu eystrasaltsrikjanna arid 1943, thegar hann frumflutti dans sinn "lim/koggull". Hann var einn thekktasti thungmalmaserfraedingur Italiu og thotti sa madur heppinn sem ekki sa Edmund an thess ad brydja malmbut.

sunnudagur, júní 26

Ertu þá orðinn Master in singing, Master in music, Bragi? Og Eiki á leiðinni í Master, sem og Pétur og Andri. Þessi vinahópur er að verða ískyggilega menntaður. Við ættum kannski að gera meira með þessa titla okkar. Eða útskúfa þeim vinum okkar sem eru ekki með mastersgráðu? Hvað segið þið um það, að útskúfa öllum sem eru án mastersgráðu? Er það ekki fín hugmynd?

Master Óttar

bingo bingo

klettasalat med obragdi. Eg er her, o ju eg er her. Eg er med likamann stilltan i tvofaldan minus og hann neitar ad hlyda mer. Eg aefdi mig sennilega of mikid i gaer og nuna er hann i fylu. Lokaprufungin min er a midvikudaginn kjemur. Svo kem eg heim a fostudaginn. Thad er eftir minna en viku. Jaho! Hlakka til ad koma heim, eins og kom fram i simtali vid Braga Bergthorsson fostudaginn 24. juni.

I gaer bjo eg til umsokn um mastersnam herna i Horlandi. Hun hljomar agaetlega, verd eg ad segja. Laera bons um utsetningar og live electronics og halda sidan lokatonleika med storhljomsveit. Vera skiptinemi i NY i halft ar. Aei ju, thetta hljomar bara agaetlega. A madur ad skjella til? Nefndin verdur vist ad gutera mig fyrir thetta, thad kemur allt i ljos eftir lokatonleikana. Kannski hata their mig og vilja ekki hleypa mer inn i masterinn. Annad eins hefur nu gerst...

thad er svo gaman ad tala med rassinum! Eins gott ad standa vid thad sem madur bladrar um...

hei, til hamingju Ott-Art! Til hamingju Bragi! Til hamingju allir saman! Ja!

laugardagur, júní 25

Jú, fékk þær gleðifréttir frá Mál og menningu að þeir vildu gjarnan gefa skáldsöguna mína út, næstu jól held ég. Það gladdi mig óhemjumikið. Kannski finnst ykkur hinum það ekkert merkilegt, enda tengist það ekki "tónlist" að neinu augljósu marki.

Og í tilefni morgundagsins sem var að renna upp, til hamingju Andri og Pétur með the b.s.

föstudagur, júní 24

talandi um thjódversku...

...thá var ég á fyrirlestri um daginn thar sem prófessor nokkur fraeddi áheyrendur um thad ad skv. nýjustu rannsóknum vaeri Núid 2-3 sekúndur.

miðvikudagur, júní 22

Eins gott ad ég er ad koma heim...

...er ad verda thýskari med hverjum deginum. Lét hafa mig útí eitthvad ofnaemispróf í morgun og greindist ekki med neitt...en laeknirinn skipadi mér ad fara í apótekid og kaupa mér NASEDUSCHE til ad nota kvölds og morgna!!! Hvad naest?

sunnudagur, júní 19

Dagar mínir eru að renna í eitt. Ég sit allan daginn og vinn að MA-ritgerð. Samt, á undarlegan hátt, nánast pervískan, þá finnst mér það gaman (gott?). Eftir viku fer ég, ásamt Gústa og hugsanlega Hlyni, til Finnlands og svo til St. Petersburg og eitthvað suður á bóginn. Enda líklega í Búdapest.

Annars fékk ég þær (mögulegu) gleðifréttir í vikunni að það séu 85% líkur á því að Edda/Mál og menning gefi út skáldsögu eftir mig næsta haust/jól. Ef svo fer, þá verður hugljúf ástarsaga jólabókin í ár. Í ljósi þessa þá mun ég ekki lengur heita Óttar Martin, heldur mun framvegis hlýða nafninu Ótt-Art, eða þá Ó.M.Art.

kv. Ótt-Art

föstudagur, júní 17

Bromma Flygplats 13:00

Er á Bromma Flygplats í stockhólmi ad bída eftir flugvél til Malmö. thar mun ég leggjast í sólbad á Lomma beach. Sweet life good times. Er ad spjalla vid Braga gegnum web messenger. Hann segir allt fínt.

Til hamingju annars allir íslendingar med daginn. Ég er ekki íslendingur lengur´, thannig ad ekki til hamingju ég....

ps. Ef thid sjáid Gudna Ágústsson thá má endilega maela med thví ad hann flytji til Svalbarda. Hann mundi njóta sín thar.

þriðjudagur, júní 14

The Oven Of Truth

Hæ diskó

ég veit það er langt síðan ég blók hér, en það er nú bara eins og tiden gar, lífið er ekki einfalt eins og lítið grimmsævintýr. Um þessar mundir hef ég þrjú hjól á snærum mínum hérna í Amsterdam. Eitt þeirra keypti ég, en hin tvö hef ég "erft" eftir þau Örvar og Kristínu, en þau dvöldu hér um hríð um daginn og skildu eftir hjólin sín í misveikri von um að sjá þau aftur einn fagran veðurdag. Þrátt fyrir þrefalda hjólaeign mína ákvað ég að taka taxa heim úr bænum núna áðan. Já, ég er að verða gamall. Þetta er óhugnanlegt. Annars er alveg óborganleg sálarheill að geta hjólað, svona dagligdags. Hugurinn flögrar á vit hnífskarpra hugrenningatengsla og atburðasósa dagsins verður stundum að tærum ísskúlptúr af lógík og óaðfinnanlega hönnuðum tilfinningarökrásum þegar maður hjólar sæll og glaður um bæinn með eyrun full af tónlist (eða eyrun fullkomlega laus við tónlist).

Í nótt dreymdi mig að ég væri staddur í bænum með vinum mínum og ég átti fótum mínum fjör að launa af því að það var allt morandi í dúfum og dúfnaskít. Ég eyddi talsvert meiri tíma en gáfulegt var í að leita að draumaráðningu á internetinu. Í dag sá ég svo mjallhvíta dúfu flögra eins og fiðrildi á undan mér þegar ég hjólaði í skólann. Tilviljun?

Ég kem heim laust fyrir miðnætti 1. júlí. Gvuð veit hvort ég kem aftur til Hollands sem nemandi í framhaldsnámi eða hreinlega nemandi á brott búslóðina mína. Ég þarf sennilega að hjóla þetta á hreint.

Glaðlig hilsen,

Eiríkur

Ég tek í sama streng

Til hamingju med hjólin! Thad er frábaert ad hjóla. Annelie lánadi mér hjól og nú theysist ég á thví um göturnar og Stuttgart er öll önnur. Thad er af sem ádur var thegar madur thurfti heilan dag í ad ná í bananaknippi í búdina. Nú er sko bara zack zack búinaddí ádur en madur veit af! Allt annar munur. Theyttist einmitt í búd í gaer og keypti mér brúdarkjól í einum hvelli. Ekki mikid mál, enda á verri fák held ég.
Er búin ad flýta fluginu mínu heim og kem adfaranótt 11. júlí.

sunnudagur, júní 12

Hér er skítakuldi, veit ekki hvad thetta á ad thýda. Ég sem aetladi ad vera ordin mysingsbrún fyrir brúdkaupid. Thetta er samt fínt uppá ad aefa sig. Nú fer ad lída ad Zwischenprüfung hjá mér (28. júní)og sama dag er kennslufraediprófid. En thá er ég búin og get einbeitt mér ad thví ad brúnka thangad til ég kem heim. Og kannski fundid kjól til ad gifta mig í...Vel á minnst, langar ykkur ekki ad túristast med mér um Nordurland eftir brullaupid? Er med íbúd á Akureyri til 5. ágúst og thar eru held ég ábyggilega 8 rúm og svo er haegt ad sofa á gólfinu. Allir ad taka sér frí og hunangsmúna med GD!

miðvikudagur, júní 8

Íbúd til leigu! (ad vísu ekki í París....)

Björt og falleg 2 herbergja risíbúð á rólegum stað í hjarta Stuttgart til leigu í ágúst og september, eða eftir samkomulagi hluta af þeim tíma.
Í íbúðinni er allt til alls, rúm (1 1/2 breidd)og svefnsófi (1 1/2 breidd), sturta, eldavél og þvottavél.
5 mín. gangur er niður í miðbæ, á Schlossplatz, í óperuna og leikhúsið,
2 mín. á ríkislistasafnið og í almenningsgarðinn.

Nánari upplýsingar hjá Guðrúnu Dalíu (gudrundalia@yahoo.com)

mánudagur, júní 6

17. júlí og fjallkonan hvergi naerri!