föstudagur, september 17

En krise

mér finnst ég skynja vott af háðsádeilu frá honum Benna Hemma í síðustu boðum, þar sem hann amast út í þetta firrta hraða nútímasamfélag sem við lifum í í dag.

Hvernig myndi ykkur lítast á að búa í frábæru húsi, 5 mínútur frá skólanum, í 21 fermetra herbergi með útsýni yfir Stuttgart....með FJÓRUM öðrum tónlistarnemastelpum í íbúðinni og það má æfa sig heima frá 9 á morgnana til 10 á kvöldin? Er á báðum áttum, þetta væri kannski bara næs, og auk þess ódýrara en að búa ein. Sé mig samt líka fyrir mér að brjálast yfir óbótónstigum með bómull í eyrunum á mínu eigin heimili þegar maður kemur heim úr skólanum að slaka á frá þessum klikkaða heimi... Svo kemur aftur á móti að það er erfitt að finna stað til að búa á, sérstaklega ef maður vill æfa sig. HVad siger I?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home