fimmtudagur, júní 29

allt að gerast og þannig þó. bókamál og bókamál. fundir, forlög, fé, farði. Ríkisbubbar, grænir kubbar, hárlubbar. já, listinn er endalaus, ekki satt? jæja. er önnum kafinn við næstu bók, sem mun heita Kóði Snorra Sturlusonar og fjallar um sögu stafrænnar tækni, en í Snorra-Eddu er lýsing á skrifstofubúnaði Snorra Sturlusonar sem margir hafa séð sem grunsamlega nútímalegan ... spurningin sem ég vil kasta fram er því þessi: Uppgötvaði Snorri Sturluson lýðnetið?

kv, pyyst (þetta er líka kóði fyrir nafnið mitt, en bókstafirnir eru allir einn til hægri við mitt raunverulega nafn á lyklaborðinu, áhugavert? samsæri? aðeins tíminn mun leiða það í ljós = ækpd)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home