þriðjudagur, janúar 29

Kæri Eiki! Við vitum ekki hvort við getum hitt þig vegna peninga. En við ætlum að reyna því það yrði vitanlega mikill mínus á ferð þinni ef þú hittir okkur ekki. Ertu að fara til Berlínar í viðskiptaferð?

WÓÓÓÓÓÓÓÓ!! AAAÐEINS AÐ TJILLA Á KLIKKINU HÉRNA MAÐUR!

Helgi Svavar var að hringja í mig til að láta mig vita af Napalm Death tónleikum sem verða því miður kvöldinu áður en ég kem. Eins og ég gjörþekki nú alla hljóðritaða sögu Napalm Death. En það er helst í fréttum að það er einmitt steiktast í heimi að fá gsm símtöl milli landa.

Eagle, Dayneu! Jag kommer att vara i Köpenhamn den tredje till sexte februari! Kom och halsa pa! Ja! Það væri altso skemmtilegt að hittast í Köben, that is. Ég gisti heima hjá Helga Svavari og kem á hádegi sunnudaginn 3. feb. Síðan fer ég sennilega til Berlíns þann 6. eða snemma þann 7.

Og hvernig ætli GD hafi gengið í prófunum? Ich bin excited, und ein bischen verklemt!

mánudagur, janúar 28

Hér með tillkynnist að ég fékk G fyrir þessa önn. Það er ömurlegt en engu að síður ágætt. Það er fyndið að ég var alveg viss um að ég mundi fá VG fyrir síðustu ritgerðina mína en fékk 2 stigum yfir U.
Benni á afmæli! Til hamingju! Bráðum á Óttar afmæli og einnig Sverrir á afmæli á þessum tíma og Davíð Ólafur. Man aldrei hvaða dag hver á en til hamingju allir saman!
Mun Eiki vera lengi í Köben? Hvernig gengur GDS? Á GDS eftir að koma við í Köben á leiðinni heim frá Berlín? o.s.v.

sunnudagur, janúar 27

Ég hefi tekið próf á alnetinu og komist að þeirri neyðarlegu niðurstöðu að ég sé með assburger heilkenni.

föstudagur, janúar 25

Gluggaskraut dagsins í dag er dauð húsfluga, en hún situr hér við hlið mér og er dauð. En hvað um það, ég gæti notað eins og eitt símanúmer hjá Ólöfu og Kára, svona til að stytta mér stund. Og svo er föstudagur í dag, og á eftir mun ek spila fyrir starfsfólk SPRON eitt dulítið kokteilstef í anda minninganna.

OG SVO ER ÉG Á LEIÐINNI ÚT TIL KAUPINHAFN Í NÆSTA PRÓF EFTIR RÚMLEGA VIKU OG ÞÁ ÞARF MAÐUR AÐ STJÓRNA KÓR. já þeir eru skrýtnir daninrnrirn.

þetta ósamræmda og vansymmetríska blogg var í boði ofhlaðinnar þvagblöðru, vanþróaðs heiladingluss og bölvaðrar mjaðmarinnar. Og þetta er andskotann ekkert veður. Og af hverju fást hvergi lengur kálfaklaufir. Það var svo gott að hafa þær í súpu. Veit enginn neitt í sinn haus lengur. Stjórnmálamenn í nautnadansi. hvar er helvítis fjarstýringin

miðvikudagur, janúar 23

Frábært, frábært og aftur magnað! Guð þarf ekki að vera okkur næstur því Guðmundur er hjá okkur! Lítið til sönnunar á skeyti hans dagsett hinn 23. janúar, eða í dag, þar sem ára hans hakkar sig þrautseig í gegnum stílinn, svo sterkt að ég býst við að hann G. Thor. birtist á hverri stundu í gættinni hérna hjá mér.

Fór í morgun í sex & the city sessjón (jónsson, haha) með Tinnu og Ástríði. Við ákváðum að skella okkur allar saman í klippingu, fengum þrjú sæti hlið við hlið við hlið og hlógum, drukkum kaffi og töluðum um kynlíf. Það var frábært, fengum allar "djúpnæringarbombu" (kr.1400) og höfuðnudd og enduðum svo í brunchi á vegó. Þá klúðraði Tinna svolítið því hún setti á sig rauðan varalit en hitti ekki alveg og fékk á tennurnar. Þetta gengi ekki nema þá kannski ef hún væri Miranda. Hún fékk teina um daginn þannig að það er smá tenging. Sjálf er ég Carrie því hún er mesta beiban, líka því P. Krúþ leikur ekki í þáttunum. Ástríður er Samantha. Hafið þið annars tekið eftir því hvað Bragi er líkur Christie Turlington?
Fer í fyrró. Massetta. bleeeees

(Dagný skrifar) 18 bækur þarf ég að redda fyrir þessa önn. Ég er að vona að ég geti ljósritað eitthvað af þessu annars fer ég á hausinn. annars líst mér mjög vel á þetta allt saman. Ég er reyndar að drepast úr heimþrá af því að ég kann ekki sænsku og á enga vini hérna en annars er ég mjöööögg ánægð. Sorrý ég er alltof depri til að skrifa núna!

mánudagur, janúar 21

Varðandi einhverfu...Var að heyra að í sílíkondalnum þarna í Ameríkunni væru farnir að fæðast óvenju hátt hlutfall af einhverfum og aspergerheilkenndum börnum. Ástæðan er víst sú að þeir sem maður hefur hingað til skilgreint sem lúða, tölvu- og stærðfræðibrjálæðinga, FÁ-tvíbura og hvað veit ég, eru í raun hálf einhverfir. Og þeir hafa hingað til aldrei komist á séns sökum lúðaskaps, nema þá þarna alltíeinu í tölvunördadalnum, þar sem áður hóplausir nördar og aumingjar þykja bara alveg gjaldgengir og fara að fjölga sér eins og brjálæðingar. (Og þið vitið hvað þeir þurfa að gera til að fjölga sér....OOOOJJJJJ!)

laugardagur, janúar 19

Það var framið vopnað rán í Foodman eða hverfisbúðinni okkar á miðviudaginn. Tveir menn með riffla sögðu öllum að leggjast á gólfið og rændu úr kassanum. Þeir voru með svartar grímur og þeir hafa ekki fundist ennþá. Það vorum við! Nei djók en við hefðum samt alveg geta verið þarna inni því við förum í Foodman á hverjum degi. Hrikalegt.
Við erum að fara að djamma. Búin með önnina, allt í gleði.

fimmtudagur, janúar 17

Ég er einn þeirra fjölmörgu manna sem hafa algjörlega engan áhuga á að eignast nýjan iMac. Og tölvur eru líka bara fyrir fávita sem LITLI BRÓÐIR MINN gæti lamið í klessu og hann er bara þrettán ára. Aumingjar. NJJÖ-ÖÖÖH DÖÖ DDÖÖ DÖÖÖ NJAAÖÖÖ

(þessi próvókasjón var í boði minnkaðrar laukremmu og kaffifylld í boði Tónlistarskóla Reykjavíkur, SMINT og rúmra átján lítra af hveiti.)

Hei babbi lúlla, hei babbi lúlla. Hér er verið að spyrja um gymlar námsskrár. Eflaust eru þær til uppi á skrifstofu. Nánar tiltekið er ég staddur á bókasafni Tónó, umkringdur hrörlegum tölvukosti með gigt og alshæmers. En það er ekki til umræðu hér. Fór á æfingu míns sjálfs í morgun, og er það ein snemmsta æfing sem ég hef farið á um dagana. Hálf níu takk fyrir. Enda var hún ekki sú einbeittasta sem ég hefi setið. En þó, þá er allavega góðu aflokið löngu löngu fyrir hádegi. Daginn fyrir hádegi notaði ég í að vappa um bæinn og kíkti á útsölur í Japis. Þar voru staddir milljónir geisladiska sem grátbáðu mig um að keypa sig fyrir slikk og ingenting. Hana. Enda keypti ég a good sum of CDs for a small sum of móneys. Og nú er ég á bókasafni ´Tónó og úða í mig tónbókmenntunum og bíð þess að komast í tónlistarsögutíma. ´óóÓÓóóÓó já.

(þetta röfl var í boði kaffiskorts og laukremmu í boði Pítunnar)

og ég gæti skrifað heilmargt um Pítuna hér og nú, en það verður sennilega að bíða betri tíma. Bíðum öll spennt eftir þeirri stund.

miðvikudagur, janúar 16

(Dagný skrifar) Var að klára ritgerð! Á bara eftir að fara yfir málfræði og svoleiðis. Annars bara búin með eina önn í Lunds Universitet og er að fara að byrja á nýrri. Ég er bara nokkuð ánægð með ritgerðina og nú ætla ég að fara að fá mér kaffibolla og fagna með sjónvarpsglápi og kannski lestri. Veriði sæl.

Sé K-PAX vond mynd er Cui liberty l' franity leaux d' train (opnunarmynd frönsku filmundarhátíðarinnar) lífshættuleg. Ég þrábað Eirík að koma á hana, hann vildi fara á Ocean's eleven í Lúxus -PLEBBI. -Og þó...þá hefði maður allavega orðið af þeirri þrautargöngu, eða -setu sem kvikmyndahússsferðin var.
Annars alltí gúddí, er að mana mig uppí að hringja í námsráðgjafann þarna í dsjörmaní rúster off arts. heei ba lúbba lei

þriðjudagur, janúar 15

Já ég segi nu thad. Klukkan er 11:15 og ég er kominn uppá bókasafn thar sem fyrir stendur ad laera undir próf. Sídasti áfanginn á thessari önn. Thad er á föstudaginn en svo koma thrír dagar í taumhaldsleysi. Thrír dagar thar sem ekkert hangir yfyr manni. Thad er ekki oft sem thad gerist en thegar thad gerist á madur svo sannarlega ad njóta thess. já og meira til.

fimmtudagur, janúar 10

er líka á bókasafninu. samt er benni ekki hér. Það þykir mér zour. Við E. Orri fórum áðan uppí hallgrímskirkjuturn í leit að yfirsýn, samhengi og tilgangi. Við vorum samt ekki í betra andlegu ástandi þegar við komum niður en svo að við ákváðum að borða hádegismat hjá klámhundunum á Heart´s Garden of Extacy. Við fengum þar góða súpu (Orri var samt ekki nógu sáttur við olíumagnið) og hlustuðum á graðar gítarfitlur og panpípur á meðan. Þatta var mér svo mikil innsperasjón að ég tók að lesa hugsanir E. Orra. Hann brást ókvæða við og brast í dans sem hann sagðist hafa lært í Kaupinhavn. Sinfó í kvöld, einhver? Endilega HRINGIÐ í tólið mitt djöfulsins.

miðvikudagur, janúar 9

Við vorum að horfa á ógeðslega japanska hryllingsmynd om konu sem m.a. sagaði vinstri fótin af manni með píanóstreng. Það var ógeð og við eigum ekki eftir að geta sofið í nótt. Dagný er að fara halda fyrara á morgun og Egill að læra undir próf. Góða nótt.

mánudagur, janúar 7

Samskipti. Nútími. Tölva.

Hef nú snúið tilbaka frá Danmörku og er nokkuð sáttur við útkomu eigins sjálfs á prófinu. Söng "Ég veit þú kemur" með glæsibrag. Þau vilja sko helst að maður syngi eitthvað á eigin tungumáli. Svo var hreyfigetupróf ("motor skills and co-ordination test") og þar kom einhvur dönsk afro týpa frá Fjóni og sagði mér að herma eftir sér. Tóku fætur hans að hreyfast í afskaplega sannfærandi afróskref í takttegundinni þremur fjórðu. Ég gerði slíkt hið sama og passaði að dúa í löppunum á milli skrefa, það sýnir fram á að rytminn sé manni í blóð borinn. Síðan tók hann að syngja fallega skandinavíska afrólínu ofan á eigin fótasmell (ímynda sér Pál Óskar syngja afrískt þjóðlag við textann "heeei nana heeeei ah"). Þriðja atriðið bættist síðan ofan á allt þetta þegar hann byrjaði að klappa höndunum í einföldum en þó synkóperuðum rytma. Ég þóttist komast ágætlega frá þessu þótt að ég hafi nú kannski ekki rústað honum í skandinafrómennsku. Og nú er ég kominn heim og allt er gúdd og í gúddí. Eða hvað segir Guddi?

föstudagur, janúar 4

hei, fyndið, benni, ég heyrði líka í listamönnum í útvarpinu. Ég er búin að æfa mig í sexoghálfa klukkustund í dag og nú finnst mér nóg komið. Við sjáumst á ljóta andarunganum á eftir,ay? Þórarinn bróðir á amerískan tölvuleik og maður getur leikið víking í honum og þá segir hann: Smíþaverkstæþi, smíþaverkstæþi, smíþaverkstæþi eins oft og maður klikkar á hann.
Til hamingju eiki minn!

Gódan daginn her. Thid erud stødd i Danmark og ég líka. Er buinn med tvø prof af thremur og hefur gengid bara agætlega i badum. Nokk sattur gaur. Eg er ad fara i sidasta profid nuna eftir tuttugu minutes og thad er hid alræmda saungprof. Eg veit thu kemur i kveld til min er uppahalds lagid mitt. Inntokuprof eru samt steiktur lifsmati. Eg myndi ekki fila ad gera thetta daglega. Thetta er svo mikid inn ut og svo buid. Allir profdomararnir ad lata hlutina ganga sem hradast fyrir sig og svona. Jæja en eg ætla ekki ad røfla meira adur en eg klara profid, chekity chek.

fimmtudagur, janúar 3

Gleðilegt aaaaaaaáááárrrrrrr! Gamlárskvöld var aldeilis indælt og skaupið fær fjarska fjarska marga fjarka af stjörnum frá mér. Frétti af Braga Bergþórssyni að máta jakkaföt nýja ársins hjá Sæbba Kalla. Vonandi eru þau smekklegri en Pumaskódruslurnar sem hann keypti sér í París hér um árið. En nú er mál að linni. Ekki tjóir að tæta allt í tjá og tundur.Tjátji Tjetjánsson.
Verið þið sæl. Og gangi þér vel, Eiki, í prófinu.

þriðjudagur, janúar 1

Ó boj, fyrsta blogg ársins 2002 og ég byrjaði það hallærislega. Ó cripes. Hér á eftir fer dómur um gamlárschkvöldsdjamm gærdagsins. Það var gaman hjá Pétri (Chezko) og það var frábært að hitta all the old peoples from Réttó, þó svo að dvölin hafi verið stutt. Síðan tók við paaty hjá Helga (Svavari) og það var líka frábært að hitta all the old peoples from the year 2001 in the new and improved year 2002 (Chezko). Þó svo að dvölin hafi verið stutt. Nú svo var haldið í praty til Hjölla (Hjölla) og það var einnig frábært að hitta all the new and improved people from the newly improved year of 2002. Og það er frábært að skrifa um ekki neitt á internetið. Hæ, hvað segið þið gott?

Annars vildi ég þó kannski bara ítreka nýjarskveðjur mínar til Ofns Sannleikans og þakka ykkur fyrir tilvist ykkar allra. You is the beautifullest.