föstudagur, nóvember 30

Smá pæling um hvernig bloggið getur myrt okkur öll...
Um daginn þegar ég hitti Braga ætlaði ég að segja honum eitthvað og þá greip hann frammí og sagði "...já ég veit, þú skrifaðir það á bloggið!"
Þetta veldur því semsagt að þá sjaldan maður hittir ykkur hefur enginn neitt að segja því allt er komið á bloggið. Næst þegar þið ætlið að ávarpa mig segi ég bara. kíkið á bloggið, þar er allt sem segja þarf.
nú ætla ég að fara að kaupa rauðvín því ég er svo rík af nýju yfirdráttarheimildinni. Gunnar í Lb sýndi það enn og aftur að yfirdráttur er auðveldasti drátturinn að ná í.

Það er ekkert sem getur stöðvað mig frá því að segja stuttlega frá sinfóníutónleikum gærdagsins. Til dæmis ætla ég að segja á alveg óstöðvandi hátt hvernig sænsk slagverksveit var supatight og hvernig þeir fluttu metrically immaculate but soulfully inimmaculate tangó í uppklappslag. Var þá mál manna (Guðrúnar Dalíur) að það væri hægt að vera of tæt. Einnig mun ég nú segja á óumflýjanlegan hátt frá því að ég lærði að það að flauta á sinfóníutónleikum væri jafngildingur þess að púa. Tja það er nú aldeilis, segi ég hér án þess að nokkur geti hindrað mig frá því. Og nú förum við á ball og syngjum jólalög úti á götum á óstöðvandi máta. Frædei í dag og svona...fínt máál.

mánudagur, nóvember 26

Jájájájá, þetta er EirkúrA og ég enda á Þ og byrja eftir fimm AAAA aaa aaAA Aaa aaAh, já ég sagði EirkúrÞ og hvað er það sem byrjar á þ og endar á eeðð, Þándur Ð, Þrándur Ð, þetta er nýskeð, Þrándur eeð, þú ert peeð, vertu meeð að hylla Þránd eÐÐÐÐÐ

Búinn að hlusta á nýju plötuna með Sesar Þ og hún byrjar á alfa sköpunargáfunnar og endar á ómega sjálfstraustsins. Með viðkomu í Blómavali tignarleikans. Ég er sum sé að bíða eftir því að Helgi SVA nenni að tala við mig á MSN, en hann er einmitt staddur onlæn ækkæuraat naúna. Hvað er það sem byrjar á æ og endar á ö, æ stöð tvöö, æ stöð tvööö. Fyndið, það er einmitt stormur á leiðinni. Bless.

sunnudagur, nóvember 25

hjálp
sunnudagskvöld senda mig útá gróttu með hnullung við sköflung. fer samt kannski bara á amazon í staðin eða í word til að skilja eftir eitthvað ódauðlegt. ef einhver vill bjarga lífi mínu er opið fyrir símann. oj djöfull er ég ömurleg. einsog maður nenni eitthvað að hringja í einhvern í svona stuði. ég meinti sko ég er ýkt hress og þarf ekki á ykkur að halda. möööööööööööööööööö scheisse

föstudagur, nóvember 23

Digga heimasíðuna! Meiri myndir! Fleiri kindur! Keyri blindur?

Já og síðan vil ég óska mér til hamingju með gallsúra tónleika í gær. Og þetta getiði prentað á alnetinu. Við vorum allir með hákarlaugga á bakinu og sundhettur og kepptumst við að spila JAAAAAAÍAÍAAAZZZ um leið og við líktum eftir baksundi. Matti var með kút, en Davíð var með flórídanagult frauðbretti. Sjálfur var ég með sundgleraugu og Valdi var með stúf. Baðvörður var Guðrún Dalía Salomónsdóttir, en Benni fór heim af því að hann er svo vond manneskja. Og svo kepptumst við við að líkja eftir baksundi, öll í kór. Jæja.

fimmtudagur, nóvember 22

æ djö
um daginn skrifaði ég rosalega skemmtileg skilaboð, var að fatta að ég ýtti á posts en ekki post á eftir. ohhhh ég er svo heimsk.
Annars er þetta fín síða hjá ykkur dagga og egill dregill. þó finnst mér mjög ófullnægjandi að skoða myndir af ykkur á tölvuskjá því ég er farin að hlakka svo mikið til að sjá ykkur í alvörunni.

Ég held ég hafi fundið út af hverju hljóðið dettur alltaf út hjá mér í Counter-Strike eftir smá tíma!
Ég er búinn að reyna að laga allt sem getur verið að:
Installa Half-Life aftur og Counter-Strike og öllum uppfærslunum.
Sækja nýja drivera fyrir hljóðkortið og skjákortið.
Gummi kom og lagaði fullt af stillingum í Windows 2000: sótti Regcleaner á netið og Tweak.

miðvikudagur, nóvember 21

Mæli með þessari hér

þriðjudagur, nóvember 20

Já sæl og blessuð. Fínn dagur eða hvað? Ég er sennilega að upplifa þá einstöku tilfinningu sem framkallast af lægð. Benni þetta er nú örugglega bara rétt hjá henni mömmu þinni. Ofan á þessa tilfinningu bætist síðan augnarbólga sem gerir að ég lít út eins og hún Guðrún Dalía gerði síðustu daga júnímánaðar árið 2001. Skil þig fullkomlega núna GD. Horrendououous sensation in my eye. Og svo að auki er Nasistaflokkur að vinna kosningar í Danmerku. Og ég segi nú bara "Þar skeit bauninn endalega allri dejlighed út úr sínu samfélagi". Ég er svo að koma heim 16.des. Djöfull verður það fínt. Getur einhver sagt mér hvar ég fæ ókeypis heimasíðusvæði. Helst á íslandi. Íslendingar eru eitthvað svo þægilegir í þessu. Ekkert rugl o.s.frv.

Já, ég hef reyndar tekið eftir því að þetta blogg er ekki eins og önnur blogg. Þetta blogg var feitt blogg, og var þess vegna strítt í æsku. Ég veitti því athygli strax í byrjun að þetta blogg hafði þó óvenjulegan þroska hjá ekki eldra bloggi. Það lá strax fyrir að þetta blogg ætti eftir að fara í pólitík. Og það hefur líka gengið eftir. Og nú er bloggið orðið að einum valdamesta ráðherra Vesturlanda. Frábærum ræðumanni. Listakokki. Æskulýðsleiðtoga. Kvennagulli. Frábærum vini. Skákséníi. Vínáhugamanni. Áhugavísindamanni, sem fann lækningu við eyðni. Ljóðskáldi. Hjálparstarfsmanni í Kambódíu. Beinmergsgjafa. Ljósmyndara. Samræðusnillingi. Særlig hyggelig mand. Einkavini Beatrix Hollandsdrottningar. Kafbátahönnuði. Frumkvöðli. Leirkerssmiði. Glerblásara. Úlfaldatemjara. Handamódel. Sítarvirtúós. Allt þetta hefur bloggið afrekað að gera á ekki nema rúmu ári. Reynið svo að segja að þetta blogg sé hefðbundið. Fáviti.

mánudagur, nóvember 19

Ég afsanna að það sé nördalegt að blogga í þessum skrifuðum orðum. Sjáið þið ekki hvað svalleikinn drýpur af þeim um leið og augu ykkar renna yfir þau í taumlausri aðdáun? Þessi orð geisla nefnilega af innbyggðu sjálfsöryggi og kúli sem er tímalaust. Einhvern tíman heyrði ég einhvern segja að þessi skrifuðu orð, hér og nú, væru hafin yfir leysiefnaþefjandi plastfnyk nútímans og hæfu sjálf sig upp í himinhvolf almættisins, en þó á sama tíma jafn kúl og jarðtengd á yfirvegaðan máta að þau eru hægðalosandi. Já, Bjössi, þú mátt eiga það að þú hefur aldrei skilið kúlið.

föstudagur, nóvember 16

GÓÐAN DAGINN! Segi ég fagnandi, en því er þó eigi að fagna, því dagurinn hefur runnið sitt skeið til fjórðungs, þar eð klukkan er hádegi og ég ennþá ókominn á löpp. En engu að síður er góður dagur í dag, þar eð það er föstugadur, það er föstudagru, det vil sige fryday. Annars legg ég til að faðir þinn lakki sjálfan sig og bjóði síðan Völu Matt í heimsókn, allur glansandi fínn, þar eð hann lakkaði sæj með háglans en ekki nó-glands. Með teppabút á hárinu. Og parketsandala. Þar með hefur hann endurinnréttað sjálfan sig í anda Forward Motion stefnunnar. En talandi um Forward Motion stefnuna, tónleikar sjálfs míns og annarra á Múlanum í gær áttu sínar stundir, altso hæð skiptist á með lægð, altso þetta voru umdeildir tónleikar, en í heildina vorum við ánægðir með að hafa gert þetta. Og svo græddum við líka heilan þrjúþúsund kall á mann fyrir þetta. Og nú höfum við lært heilmikið af þessu, ðö hard wey or ðö hæ vei. Og nú hef ég sagt of mikið. En ég vildi bara nota tækifærið og gefa sjáts át tú mæ hómí þarna stelpan með bleiku vefsíðuna og bloggið þarna. Hei, þú ert geðveik, kid.

fimmtudagur, nóvember 15

hæ loksins skrifa ég...er á bókasafninu í tónó í sjálfboðavinnu...gott að borga skólagjöld og fá enga kennslu-bara ólaunaða vinnu. Annars er þetta nú engin vinna, sit bara og læt tölvuskjáinn soga af mér meikuppið. Það gerist í alvörunni! Ég var í myndatöku hjá RAXa á mogganum...jaaaá það er svo mikið svoleiðis. það var ekki svo mikið effort hjá honum...hann smellti einni digitalmynd meðan hann talaði í gsm símann sinn. síðan rauk hann útá akranes og skildi mig eftir með hræðilega mynd þar ég er einsog friður 2000 á svipinn. En það er allt í lagi. það passar við greinina, hún er svo ógnandi. mér finnst magnað að hugsa til þess að ingibjörg sólrún eigi sjálf eftir að lesa hana og þá mun fara kaldur óþægindahræðsluóttahrollur um hana. sérstaklega þegar hún sér myndina. úaaaaahahahahaaaaaaaa!
í kvöld verða bara helvítis beibur á múlanum. það verður grenjandi raining beibs alveg hreint: Eiki og Hlynur J.C. Aðils og vöðvastæltir félagar þeirra. Við þangað. blæ

hæ!

þetta er alveg magnað

fimmtudagur, nóvember 8

Það er mitt persónulega mat að morgnar Íslands séu helst til snemma á ferðinni. Maður er alltaf sofandi þegar þeir birtast og síðan þegar maður ætlar að vakna og taka á móti þeim þá eru þeir komnir í úlpuna og á leiðinni út í bíl. Bless morgunn, sagði ég til dæmis þegar ég vaknaði, vitandi það að það var engin leið til að bjóða honum upp á kaffi eða seríós. Annars er það helst að frétta að í kvöld hyggst ég sjá Beitiskipið Pótemkín eftir þann mæta og mér að flestu ókunnuga leikstjóra Eisenstein. En sinfónían hyggst sum sé leika tónlist ShostAkovitchschs undir henni. Og yfir henni. Og jafnvel til hliðar við hana. Jæja veriði nú sæl og fyrirgefið þennan viðbjóð sem maður er að basla við að hafa fyrir augunum á ykkur. Fyrirgefiði. Þetta er ógeðslegt, ég veit það. Afsakið. Gjöriði svo vel. Fyrirgefðu. Afsakið. Já. Aha. Afs-ha.

fimmtudagur, nóvember 1

Megablastingpartyspirit er nú að svífa yfir Magistratsvägen 55R:102. Mér gekk ágætlega í prófi faktískt. Þetta var ekki svo strembið enda var ég nú búinn að troða heilmikilli míkróekónómískri teoríu inn á harðadiskinn í vikunni. dTC/dq = MC aða þannig. Ég vildi nú bara segja ykkur hvað ég elska ykkur mikið og hvað ég sakna ykkar mikið. Þetta eru búnir að vera erfiðir tímar. En sem betur fer hefur drottinn han Jesús kristur hjálpað mér á þessari leið og leitt mig inn í ljós alsælunnar. Hafiði frábæra helgi vinir mínir og sjámust á hinum enda skammdegisins.