Vona að maturinn hafi ekki farið í lendina á þér, Benni minn, eða úlnliðinn. Hei vissuði að vefsíða Bubba Morthens heitir bubi.15? Hann er sko lesblindur og þetta er satt.
þriðjudagur, febrúar 26
mánudagur, febrúar 25
Háskólakór Íslands er að fara koma til Lundar og ég var að spá í hvort að við þekkjum einhvern í honum? Annars er allt gott að frétta. Ég var að klára próf í dag og gekk alveg sæmilega held ég. Við vorum að horfa á The Mummy 2 áðan og hún er alveg jafn léleg og númer 1 svo að ég ráðlegg ykkur ekki að sjá hana.
sunnudagur, febrúar 24
Er að tryllast á krossgátu sunnudagsmoggans, allt gærkveldið fór í hana og nú á ég bara eitt orð eftir. Vísbendingin hljóðar svo: "Henni er skipt í 3 hluta. " Orðið byrjar á G og endar á A (Gesar A) og er 6 stafir. HJAAAAAAÁLP!!!!
laugardagur, febrúar 23
Að hugsa sér öll þau ónýttu tækifæri sem renna manni úr greipum á hverjum degi. Tilhugsunin um að ég gæti nú verið að hlaupa hlæjandi um yndisfagran kornakur í sólskini ásamt Övu Gardner og Mickey Rooney í stað þess að sitja hér hokinn við tölvuskriftir er óbærileg. Jafnvel óblogganleg.
fimmtudagur, febrúar 21
HóóóóÓÓÓ!!
Bókasafn Kringlunni er enn og aftur athvarf mitt frá hræðileika heimilistölvunnar. Var áðan í Japis að spila jaaaaaaaazz með Hrafni, Óla Birni og kanadíska gaurnum Daniel. Það var massive arousal og bara fínt stuð. Bibbi tók þetta upp og það verður nú aldeilis gaman að heyra. En af hverju erum við stödd hér í þessu lífi? Já, að velta þessu fyrir sér getur einmitt falið í sér lausnina á lífsgátunni, það er að hver einasta atómsekúnda sem líður gefur af sér tækifæri til að fjölga metatilverum => fleiri tilverustig => lægra hlutfall mjólkuróþols í sauðkindum. Bless.
mánudagur, febrúar 18
Það skrifaði enginn þann 16.
Þann 16. gekk ég uppá Úlfarsfell í brjáluðu veðri og frábæru til skiptis. Það var samt akkúrat brjálað þegar ég kaus að borða nestið mitt og mig fennti næstum í kaf og Helga Svav og nestið hrímaðist og kókómjólkin fraus í boga á leiðinni uppí mig.
sunnudagur, febrúar 17
Kommon. Þetta var bara djók. Ég er í alvörunni rosalega kúl. Ég er til dæmis að fara að búa til forrit sem tekur út alla tvöfalda samhljóða í textaskjölum. Það er töff. Þokkalega smelló.
Hérna kemur dæmi um texta sem hefur farið í gegnum meðferð forritsins:
Komon. Þeta var bara djók. Ég er í alvöruni rosalega kúl. Ég er til dæmis að fara að búa til forit sem tekur út ala tvöfalda samhljóða í textaskjölum. Það er töf. Þokalega smeló.
föstudagur, febrúar 15
Ég vaknaði upp af nákvæmlega átta tíma svefni í morgun við raust í útvarpinu sem tilkynnti mér það að fólk sem svæfi átta tíma eða lengur á hverri nóttu myndi frekar deyja en skammsvæfara fólk. Þetta var nokkurn veginn nóg til að rífa mig samstundis upp úr rúminu, bölva téðu rúmi og snúa mér í hring. Atjú.
eftirþanki og spé: Í ofangreindu bloggi eru þrjár setningar, afmarkaðar með púnkti og animónu. Úr hinni fyrstu setningu bloggsins má ráða að fólk sem sefur minna en átta tíma á nóttu væri líklegt til að deyja ekki, en það er að sjálfsögðu misskilningur. Engu að síður hef ég ákveðið að þar sem þetta blogg heitir The Oven Of Truth, sé allt sem þar standi skrifað óhagganlegur sannleikur. Þar af leiðandi mun ég láta af hvers kyns svefni héðan í frá, til að auka líkur á ódauðleika mínum. En fyrst maður er nú orðinn ódauðlegur, þá þykir mér nokkuð ómerkilegt að eyða orðum í þetta tölvudrasl og er farinn út að safna sprekum í brennu, sem ég mun persónulega standa í miðjunni á og fara með gamanmál. Ég er að hugsa um titilinn "Ég var einu sinni dauðlegur".
eftirþanki og pé: Ef ég væri vídeólistamaður myndi ég stilla upp myndavél á kvennaklósetti þar sem miðaldra konur sjænuðu sig. Verkið myndi kallast "The Sjæning". Hugsanlega myndi Ingvar Þórðarson leika axaratriðið.
fimmtudagur, febrúar 14
Hér með vil ég vera titluð Guðrún W.A. Mozart, eða bara Webby Artista. Annars var ég að fá fyndnasta email í heimi frá Jóni Hjörleifi þar sem hann segist aldrei munu opna tölvupóstinn sinn aftur, því :
For five years I’ve been writing e-mails. And now, finally, I’ve come to realize that it’s a waste of time. Words are precious, and should not be thrown in haste. I therefore break my little post-box of thoughts and go with my thoughts far away from the horrible Unseen Electric Spider, to more peaceful and out-of-the-way region. It’s called Silence, a blessing that has not sufficiently issued from my lips.
We move a lot, but work little. We talk much, but we don’t think.
...Tilvitnun lýkur. Vona að hann kæri mig ekki fyrir að pöbblissja þessu. Publicia Chapman
[2/14/2002 12:16:07 PM | Guðrún Dalía Salómonsdóttir]
[2/14/2002 12:16:07 PM | Guðrún Dalía Salómonsdóttir]
[2/14/2002 12:16:07 PM | Guðrún Dalía Salómonsdóttir]
[2/14/2002 12:16:07 PM | Guðrún Dalía Salómonsdóttir]
[2/14/2002 12:16:07 PM | Guðrún Dalía Salómonsdóttir]
[2/14/2002 12:16:07 PM | Guðrún Dalía Salómonsdóttir]
Undarlegasta mál. Það var einhver sem hringdi í FÍH í gær og vildi fá nafn á æðsta manni innan nemendafélags FÍH. Skrifstofan gaf nafnið mitt upp og síðan kom ég upp í skóla og var spurður hvor einhvur stúlka hefði hringt í mig þann morguninn. Svo var eigi. Ojaja, hugsaði ég og horfði í gaupnir mér og smellti í góm. Síðan fékk ég sms áðan sem stóð í: "Sendi ykkur póst í gær, vinsamlegast svarið schtrax. Kveðja, Fjóla BÍSN". Og svo bara tékkaði minn á póstinum sínum og hreinlega kemst að því að það er fundur hjá BÍSN á laugardaginn og það er bara búið að skipa minn í Hagsmunanefnd BÍSN. Dæmi: Leikskólamál, Skólagjaldamál, hækkun á skólabókum, lesblinda nemenda og fleira og fleira. Allt eins og blómstrið eina. Bara kominn í háskólapólitíkina án þess að spurja kóng eða prest. Lyfta litlafingri. Minna má nú sjá. Aseisei... Þetta er megaskrýtið...sérstaklega þar sem ég er ekki einu sinni opinber fulltrúi nemendafélagsins, sem þar að auki er hálfdormandi þennan veturinn og sér sér einungis fært að halda bjórkvöld og þvíumlíkt. Bónusspurning: Hvað eru mörg lík í þvíumlíkt?
miðvikudagur, febrúar 13
þriðjudagur, febrúar 12
(dagny) Við Egill vorum að spá í hvort að Mummi hefði einhver Berlínarplön um páskana? Annars er allt í prófarugli og brjálað að gera. Það væri ágætt ef GDS gæti sent mér ferðasögu á meilið mitt. Svo væri líka ágætt að ég fengi eigin blogg. Mér líður eins og einhverri framlengingu af Agli. Emeiladdressan mín er daggaponk@yahoo.co.uk.
mánudagur, febrúar 11
GEFIÐ MÉR HRAÐVIRKARA INTERNET OG ÞÁ SKAL ÉG LOFA AÐ HÆTTA AÐ VERA PIRRAÐUR OG LEIÐINLEGUR EFTIR HÁLFTÍMA SESSJON BARA TIL AÐ TÉKKA HOTTMAILIÐ MITT!! AAAAAAAAAAAAAHHHHRRGG!!!
og svo er líka ágætt að vera kominn heim takk fyrir.
Fyndið hvað það virkar í alvörunni ágætlega að öskra á Internetinu!! Mér líður strax betur...
GÓÐ PÆLING MAÐUR
sunnudagur, febrúar 10
Mér finnst nú bara að íslensku tónlistarverðlaunin hefðu átt að renna til mín, benna og steinunnar últrabældu fyrir að nenna að mæta. En Beggi stóð sig breikæðislega vel, já, Bragi, segðu pabba þínum að hann sé magnaður framkomari. Það er sko andstæðan við afturkomara. Það var samt annar framkomari sem rændi soldið attenzioninni, en það var hvorki meira né minna en bert þotubrjóst stúlku í sætaröðinni okkar, og þá meina ég nakið. Jæja, aðeins of mikið brennivín í gær (og þá meina ég brennivín) og tími til að fffffffffffffffffffffffffffffff hei grindverk...fara að sofa. Velkominn heim, Eiríkur og til hamingju!
Eg kollvarpa her øndum med frabaeru skipulagi og flott politik. Eg er staddur i flugvallargildru og hef bedid i tvo tima (eda trja?) og flyg af stad til heimkynnanna eftir tvo. Tha er nu aldeilis snidugt ad fara a Internetid og rofla um rofl. Thad er buid ad vera massive interaksjon og gedveikt stud hja mer nuna sidustu daga. Berlin er eins og adur hefur komid fram midpunktur kulsins um thessar mundir. Neinei. Hun er samt i alvorunni rosalega skemmtileg borg (ef madur ma stadhaefa svona eftir thriggja daga dvol) og thad virdist vera endalaust af skemmtilegum stodum til ad skoda, fullt af tonleikum, fullt af hatidum, fullt af sjabbi ibudum vid hlidina a hupp auglysingastofum og egveitekkihvad. Eg er einnig handhafi vitneskjunnar um ad thodverjar eru alveg rosalega streit folk (ef madur ma stadhaefa svona eftir thriggja daga dvolce). Til daemis er hnussad og leidrett og gerdar athugasemdir og hofud hrist yfir hverju sem er ekki alveg eins og thad a ad vera. Bordi madur kebab i sporvagni thykir thad saeta tidindum (hehe, aetli utlendingurinn tharna se med sterka sosu eda eitthvad? einn ad fa ser ad borda skilurru) og alls konar svona. I dag var ein kona bostud i sporvagninum an thess ad hafa borgad og Allir i vagninum litu a hana eins og hun vaeri aettarskomm og hnussudu og tautudu fyrir munni ser. Hlytur ad vera krefjandi til lengdar... Vid fórum i innflytjendahverfid Krauzberg og thad var magnad hverfi, endalaust af austantjaldsthjodum og tyrkjum og wassweissich, allir bilar voru mun fullsetnari en telja ma edlilegt a Icelandi og undarlegur arkitektur og ágaetis tyrkneskur limonugosdrikkur. I say massive shout out to O-love and K-ri and Hell G and Un-nur for tha imsplectaculers housing treatment and spiritual organization of the masses.
Hei, godar frettir, flugid mitt er loksins komid inn a skjainn....wei...
sjaumst in Iceland
fimmtudagur, febrúar 7
(dagný) Það er greinilega ýmislegt sem gengur á á gamla fróni. Hér er nánast komið vor. Hiti í lofti þrátt fyrir dumbung og rigningu. Ég er komin í heldur of snemmt sumarskap sem endar með pirringi þegar það byrjar að sjóa í apríl.
Ég er orðin háð pool í yahoo games. Ég byrja þegar ég kem heim eftir skóla og get ekki gert neitt annað fram á kvöld. Þetta er orðin veiki. poolveiki.
miðvikudagur, febrúar 6
(dagný) Ég á eftir að lesa 100 síður um þegar sænskar símastúlkur fóru í verkfall um síðust aldamót fyrir morgundaginn og kl er 23:50. Ég ætla ekki að minnast á neitt neikvætt í sambandi við þetta. Því að vissulega er það mikil nauðsýn fyrir mig að vita þessa atburðarás ef að ég ætla að halda áfram að búa og læra í þessu landi.
þriðjudagur, febrúar 5
var að massa og rassa tónheyrn, en klúðraði samt smá munnlegu verkefni því ég sá bara ekkert fyrir brjóstunum á mér. Reyndi að útskýra það fyrir meistara Gumma Haff en hann sagði bara lókrískur lakkrís fokkoff.
sunnudagur, febrúar 3
yo Yo yo yo
ég er ekki nema staddur hérna beinlínis í íbúðinni hans Helga (holy) Svavars (suavers (chavez)) í hinni menningarprumpulegu borg Kaupinhafn og anda að mér prumpinpimpernellikum á heimsmælikvarða í gegnum skólpkerfið hans, en hann hefur keypt aðgang upp á heil 56 kílóprump af skólpe. Memememememe. Ég fór að æfa áðan uppi í skóla og líst bara vél á. Nú höfum við eytt kveldi í afslappelsi og chill, og sáum Godzilla í sjónvarpinu. Godzilla hlýtur að prumpa eins og moððerfökker þegar hann er búinn að slafra í sig heilu stórborgirnar. Amen.
Ég hef hér tillögu um að Helgi Svavar fái (hljóti) (Holy Chavez) aðgang að þessum ofni snarleikans. Já? Gut!
Og nú sný ég mér að hvíld og uppsöfnun krafta fyrir inntökuprófsmössun á morgun.
Massive shout out to Sverrir and tha paaty possy. You is all a big bunch o battyboys.
Ég er komin til að segja söguna af því þegar ég flaug með Hell's Angels. djók
Hei, kúl DJ nafn DJ ÓK . Góðir straumar til Eiríks svarthO. Ólafssonar. 12345
Dagný og Egill fá þynnkukveðjur sem og allir sem halda að þeir þekki mig.
laugardagur, febrúar 2
(Dagný skrifar) Ísland er að tapa feitt leiknum og ég get ekki horft meira. Mig langar að flytja heim því að ég þoli ekki svía núna. Þeir eru líka svo sigurglaðir djöfulsins fíflin.
