föstudagur, september 24

Velkomnir gæjalegu gæjar!

Já það er naumast að ofninn er sjóðheitur með tilkomu aldinna nýliða! Af hverju voruð þið ekki alltaf hérna spyr ég bara hváandi og sláandi mér á lær.
Hringdi í flutningsfyrirtæki í dag (er að fara upp 700 tröppur með Þvottavél og fleira þannig að það kemur ekki til greina fyrir mína dýrmætu slaghörpufingur að rumpa þessu upp sjálf) og besti díllinn sem ég fékk var 300 EVRUR!!!! Það er sko jafnmikið og gámurinn kostaði frá Íslandi til Rotterdam til Stuttgart. Þetta er hneyksli. Ég neyðist til að halda tombólu eða eitthvað.

Það er föstudagskvöld og hráslag úti, við höfum ekki farið út í allan dag nema Tóti áðan að kaupa bjór svo við þyldum grínþættina í sjónvarpinu. Þýskt grín sleppur nú alveg eftir nokkrar kollur. Hahaha Ottó! Æ það er svo gaman að vera fullur að horfa á sjónvarpið í Stuttgart! Hvað eruð þið að spá? Fljúgiði yfir!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home