fimmtudagur, apríl 28

Ó krakkar, þið eruð nú meiri bossalingarnir.

Sit heima og er að reyna að byrja á MA-ritgerðinni, kemst ekki upp með neitt rugl lengur. Sólin skín fyrir utan, sumarið er komið.

Eftir nokkra daga kemur hin magnaða ljóðabók ,,Sirkus" út, eftir sjálfan mig. Á laugardaginn mun ég laumast inní Iðnskóla eldsnemma og ljósrita hana í leyfisleysi með hjálp mömmu minnar (sem kennir s.s. í Iðnskólanum).

Óttarinn segir yfir og út ... í bili.

þriðjudagur, apríl 26

Erkki ekki flottur?

Var að heyra um magnaðan náunga sem heitir Erkki og er finnskur en hann er að skrásetja líf sitt. Hann er búinn að safna öllum upplýsingum sem líf hans hefur alstrað (og þá meina ég líka kassakvittunum og þ.h.) og geymir það í massívum gagnabanka til að maður einn daginn í framtíðinni geti endurvakið sál hans.

mánudagur, apríl 25

Tónheyrnarkennarar

Hvad er med thá? Er nú byrjud í tónheyrn 4 hjá prófessor doktor Pálmari sem er enskur og tilkynnti í fyrsta tíma: I speak English, because that´s my native language. Rétt á eftir fór hann ad gera grín ad asíubúunum í skólanum og vandraedum theirra med tungumálid.
Naest spurdi hann mig hvad ég vaeri gömul og spurdi svo hvort ég vaeri ,,svolítid óthekk stelpa", thví ég liti út fyrir ad vera dáldid naughty. Ég hvádi og thá spurdi hann hvort ég skildi ekki ordid. Ég sagdist alveg skilja ordid og játti thví ad ég vaeri ,,dáldill prakkari" í mér og thá sagdi hann lymskulega: Thad er allt í lagi thví ég er líka óthekkur!
Og thetta er ekki allt; Sídar í tímanum barst nafnid Gudrún í tal, thví hin stelpan sem er med mér í tímunum heitir eitthvad sem thýdir hamingja. Ég sagdi ad Gudrún thýddi Divine Mystery (heimild Landsbankaaugl. á flugvellinum) og eftir thad kalladi hann mig thad og hina stelpuna Happiness.
Thegar ég var ad fara hrópadi hann á eftir mér: ,,Goodbye, Divine Mystery. Keep being mysterious!"

fimmtudagur, apríl 21

Gleðilegt Sumar!!

Vildi bara óska ofnverjum gleðilegs sumars...

miðvikudagur, apríl 20

Ferdalagid med körfuna fór greinilega alveg med mig, nú er ég búin ad vera lasin sídan. Er samt ad fara ad vinna eftir klukkutíma einsog asni, svona er madur samviskusamur, fer ad vinna med hita. Annad kvöld er svo tónheyrnarpróf hjá yndislega kennaranum sem er svo rosalega yndislegur ad hann er algjör slepja. Alltaf thegar hann spilar svona dúrhljóm med níund verdur hann ad stynja aftví honum finnst thad svo fallegt. Og líka dúrhljóm med sjöund og sexund. Thá bara faer hann thad. Í sídasta tíma átti ég ad lesa eitthvad lag af bladi sem var ekkert mál en voda hátt. Ég söng thad bara áttund nedar og med glans en thá vard hann alveg örvinladur og sagdi ad naest thyrfti ég ad fá tenórnótur tví thad vaeri svo flókid fyrir sig ad thurfa ad transpónera upp um áttund í huganum! Ég er nú enginn snillingur í ad transpónera en ég set nú ekki fyrir mig ad flytja eitthvad um áttund. Nae thessu bara ekki.

föstudagur, apríl 15

asnastrik dagsins

Ég fór í búdina ádan til ad fá eldunarinspirasjón. Ég var nýbúin í píanótíma og eitthvad svo hátt uppi ad ég bara keypti allt sem ég sá. Tildaemis ákvad ég ad vid thyrftum ad eiga lager af nidursodnum tómötum og kókosmjólk og keypti nokkrar dósir. Svo keypti ég 3kíló af tómötum, 3kíló af lauk, 2kíló af gulrótum, 4kíló af eplum, bananaknippi, risastóran ananas, 10 egg, tvo kjúklinga, ólífur og kapers, ólífuolíu og lítraflösku af hvítvíni, helling af mozzarella og jógúrt, 4 súkkíní, brokkolí, salat, salt, steinselju í potti, kíló af sítrónum og ábyggilega eitthvad fleira. Svo borgadi ég fyrir thetta og radadi öllu fallega í nokkra poka ofaní körfunni. En thegar ég aetladi ad labba heimáleid, sem er svolítill spotti(plús hundradogeitthvad tröppur thegar heim er komid), gat ég ekki einusinni lyft pokunum uppúr innkaupakerrunni. Thad hvarfladi ad mér ad taka leigubíl en ég var búin ad eyda svo miklum peningum ad ég tímdi thví ekki. Ekki stodadi ad hringja í Tóta thví einsog thad hafi ekki verid nógu hraedilegt ad vera veikur á afmaelisdaginn hefur líkamshiti hans nú stigid uppí 4 kommur. Thannig ad ég ákvad ad keyra innkaupakerrunni heim og skila henni í kvöld thegar enginn saei til. Ég var örugglega klukkutíma á leidinni. Karfan lét mjög illa ad stjórn og rann alltaf í allar áttir nema áfram, sérstaklega thví hér er ekki til gata sem er ekki brekka. Til ad halda körfunni beinni thurfti ég ad labba fáránlega haegt, fólk hefur örugglega haldid ad thetta vaeri einhver gjörningur. Sídan gleymdi ég ad gera rád fyrir risakrók sem ég thurfti ad fara útaf tröppum sem voru á leidinni og lötradi thví gódan rúnt um borgina med hnefana kreppta um körfuna ad reyna ad drösla henni upp og nidur af gangstéttabrúnum í svitabadi thví úti er 25 stiga hiti og logn. Hraedilegt. Ég aetla bara ad skila henni á morgum. Munid thid eftir krökkum sem sögdu morgum? En hvad á ég ad elda? Thessi ferd med körfuna drap alla andagift.

fimmtudagur, apríl 14

Afmaelisrassgat dagsins er Tóti, elsku drengurinn. Hann er med 3 kommur á afmaelisdaginn og hérmed er auglýst eftir samúd og aeaejum í hans gard. Hann aetlar nú samt ad koma og fá sér köku med okkur Maggíu og Kidda Kalla thví vedrid er svo gott. Á morgun mun eg hitta Ong og knúsa hana til ad hrista okkur saman eftir fríid. Mig vantar eldhúslega inspirasjón, dettur ekkert í hug ad borda nema spaelegg eda spaghettí med tómatsósu. Einhverjar hugmyndir?

þriðjudagur, apríl 5

life goes on bra bra

Thad var önd á götunni framan vid heimili okkar í gaerkveld og stödvadi alla umferd.
Hér er vor í lofti og magnólíurnar blómstradar. ó thaer eru svo yndislegar. Thad er bara ágaett ad vera komin aftur, ég sem var ad deyja úr íslandsthrá í fyrradag og gat ekki hugsad mér ad fara til kúkastúttgart. Var ad hitta Annelie vinkonu mína og spurdi hana hvernig hún hefdi thad og hún sagdi: Scheiße. thannig ad ég er ad paela í ad tala vid hana núna. Svo aetla ég ad kaupa í matinn og borda eitthvad med tómötum í. Tschüssí