föstudagur, febrúar 6

dude - hver er Boddi?

sigurganga bolsins míns með stillimyndinni gekk áfram í gærdag þegar ég fékk að minnsta kosti jafn mörg komment á hann og daginn áður. Meir að segja fólk sem ég hafði aldrei talað við áður vatt sér að mér til að hrósa honum. Ég hef fengið nóg. Af hverju getur fólk ekki metið mig fyrir persónuleika minn, í staðinn fyrir óaðfinnanlegt útlit mitt? Góður guð, allt sem ég bað um var að fæðast með *eitt* lýti, og þú gefur mér ekkert! Whhaaayyyyyy?Ð!Ð Þetta er sagan af óaðfinnanlega fallega rónanum og fjöldamorðingjanum Neptúnusi, sem leiddist út í eiturlyf og glæpi af því að sál hans gat aldrei jafnast á við óaðfinnanlega ytri fegurð hans. Hann ráfaði jafnan um strætin í gömlum rykfrakka og með sjúkrabindi vafið um andlit sitt. Á höfði hans var hattur, og innan á hattinn límdi hann myndir af fórnarlömbum sínum með gulu kennaratyggjói. Hann var hrifinn af Nonnabátum og löngum gönguferðum.

Benni: gerði ránd tú af upptökum á dótið þitt og það er bannað að hafa þetta ekki með af því að sumt af þessu er bara helvíti flött. Og til hamingju með vinnuna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home