miðvikudagur, febrúar 11

Búin ad vera lasin lasin kúkasmasin. Las söguna af Pí, mér fannst hún léleg medan ég var ad lesa hana en mjög gód eftir á. Eiginlega er paelingin frábaer en ég var ad tryllast á öllum nákvaemu lýsingunum og upptalningunum í henni.
Hei ég hitti tenorinn thegar ég var ad ganga inná bókasafnid og hrósadi honum fyrir sjálfan sig og mér sýndist hann barasta audmjúklega ánaegdur med thad. Hann er ennthá uppgötvun ársins í söngheimi mínum, en ég tek thad skýrt fram ad ég hef náttúrulega ekki enn heyrt í Braga syngja. Hann er örugglega enn betri. Thad er frábaert hvad thú ert ad meika thad Bralli minn. Thú skýst einsog öfugt stjörnuhrap uppí himininn!!! Bara ekki fara ad gera Jóhanns Fridgeirs-brosid án thess ad vera ad grínast.
Hjörtur fékk birta grein eftir sig á leidaraopnunni í mogganum thar sem hann gagnrýnir eftirlaunalögin og má thad teljast kraftaverk. Allir ad maeta á morgun á Austurvöll og stydja hann í thessu!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home