æ will have my eterni-tea and trink it, zú.
já, hér í eilífðinni er allt svo næs og húgulegt. Fór til Utrecht í gær að spila á tónleikum í kirkju með frídjassandi nútímatónlistarhópi og það var bæði hálf steikt og hálf ágætt. Eigum við þá ekki bara að setja það í ruslatunnuna. Ég er nefnilega í svo eilífu skapi í dag. Svaf í tíu tíma, sem ég geri næstum aldrei og er búinn að dúlla mér hitt og þetta síðan ég vaknaði og hlusta á Arvo Part og Roscoe Holcomb, sem er gamall hillbillí sem lærði að syngja og spila fyrir daga útvarpsins. Hí iss a verrí næs gæ end sinsír and wos jafnan atvinnulaus. Einnig fór ég út og fékk mér shawarma með Arvo Part í eyrunum. Skemmtilega andheilög stemning við það tilefni. Ég hefði kannski frekar átt að fá mér þunnskorið salatblað og einn rúmsentimetra af epli...ég er kannski ekki alveg nógu wholy þessa dagana. Spila aftur í kveld með japananum ógurlega og svo er komið vikufrí í skólanum. Jaahú o.þ.h.
við nánari umhugsun er arvo/shawarmo pælingin samhliða pælingunni um eilíft líf versus líft líf, alías dauða, sem bregður birtu á allífa ástand mannsins og drauma andspænis dauða o.fl. þ.h. sem gefur tilefni til að grannskoða jafnt sem fjarskoða tilhugsunina um "ferli" alías "pathe" eða "formei" og "punkt" vs. "línu" ef slíkt má tala um hér (þar) /um o.þ.h.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home