sunnudagur, febrúar 8

ðis is oll fön.

Var á sellótónleikum áðan og horfði á bjarndýr spila á selló af miklu listfengi. Það var eins og hann hefði fæðst með selló í fanginu. Hann leit út eins og leikari í Swiss Miss auglýsingu, honum fannst svo kósí að vera þarna uppi á sviði með chellóið í hramminum. Nokk magnaður chellist. Ætli hann sofi með sellóið uppi í rúmi hjá sér? Annars þarf ég að hugsa hratt núna af því að ég þarf að halda tíu mínútna tölu um viðfangsefni að eigin vali í kennslufræði á morgun. Ég held ég tali bara um það sem ég þekki best: spíródínamískar breytingar á öndunarmynstri lemúra m.v. ölduhæð í sunnanverðu Barentshafi (deilt með fjölda Andrésblaða sem fjalla um lemúra (fyrir 1983 (frá og með (gregorian(intro)(sk))). Og þá er náttúrulega alltaf best að fara á internetið til að dreifa huganum. Skipta honum bróðurlega á milli mbl.is, oven.blogspot.com, hotmail.com og baggalútur.com. Og þá er maður búinn með allt hugann og ekkert eftir og þá verður maður að fara að sofa. Ég biðst afsökunar á að hafa eytt tíma þeirra sem lásu. Gúnatt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home