miðvikudagur, febrúar 4

Kennarinn minn í félagsfræði er eitthvað klikkaður. Ég var veik á mánudaginn en þá áttum við að hitta hann einn í einu og tala við hann um næsta verkefni. Ég hringdi í hann og hann sagði "ekkert mál ég hringi bara í þig á eftir og við spjöllum bara í gegnum síma". Hann hringdi síðan aldrei og ég náði loksins í hann í dag en þá sagði hann "Hvað viltu ?" Ohh ég þoli ekki svona rugl. Ég er búin að hafa miklar áhyggjur af þessu og hann var annaðhvort bara búinn að gleyma mér eða nennti ekki að tala við mig. Ég náði allavega að kreista út úr honum hvað ég ætti að gera svo að þetta fór svosum allt vel að lokum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home