Thad er eitthvad í loftinu! Ég stakk mig LÍKA á blýanti!!!
Ég skal segja ydur thad.
Gerdi hreyfilegan píanó-orda-gjörning med Maggíu í morgun. Thad eru engin takmörk fyrir thví hversu stórkostlega ég fer yfir mín eigin takmörk thessa dagana. Frábaert. Ég er frjáls!!!
Ég er komin med átrúnadargod í skólanum, rússneskan skagfirskan tenór. Hann er yndislegur, heyrdi hann syngja í annad sinn í gaer og hann slítur strengi hjarta míns. Flestum söngvurum finnst hann hraedilegur (ódannadur og ósmekklegur) en ég fíla einmitt thad svo. Verd ad segja honum thad vid taekifaeri. Ég thekki hann sko ekki neitt, hann lítur frekar út einsog roleplay nörd en tenor, med sítt kleprahár og kringlótt gleraugu. Uppgötvun ársins frá minni hálfu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home