HhhaaAAAAAJJJJ!!!!
er hér í bullandi morgunham að skrifa á bloggið eins og mér hafi borist umtalsverð fjárhæð í vasann aldeilis óvænt og ófyrirsjeð. Skrobede í pianoklasse í gær og fór í bæ, keypti buxur (með stillimyndarmerki á rassinum, of korse) og Frank Sinatra fimmfaldan geisladisk á evrur tíu. Stríðsára-Sinatra er assgoti kúl. Og nú sé ég líka fram á að fá hrós og aðdáunarandvörp í skólanum, því á botni mínum er stillimynd. Og svo ætla ég líka að þykjast spila á luftgítar, og þá er minn bara búinn að vinna aðdáun alls kvenkyns í vestanverðri Evrópu. Stundum er livet svo einfalt...já, hér í Evrópu er alt eins og í ett drömmeland, maður svífur á bysíkel um grjóthlaðin stræti og torg, vinkar bakaranum, kíkir niður á höfn að spjalla við salt jarðar til að fá fregnir frá amiríku eða indía, tekur ofan kaskeytið fyrir ráðskonunni, skreppur til Gammel-Lars til að fá lánaða "jazz"-gramófónhlemma og diskútera mannleysuna hann Göbbels. Svo tekur maður fram leizer-pistoluna og ógnar bankastarfsfólkinu og sker svona fallega zetu í bankahvelfinguna og teleportar sig loks suður á Mýrdalssand til að grafa góssið. Ríður heim í hlað á Grána og sprengir upp Pajeroinn og fær sér cigarino og blikkar myndavélina.
viðlag:
já það er fjör, já það er fjör x3
já það er fjör í Evrópuuuu
Benni: það fer alveg að líða að trompeits, vonandi tek ég sessjon um helgina og klára þetta. Svo sendi ég um hæl.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home