sunnudagur, febrúar 1

ljóðstafir kverkanna/(stuðlar á brisbeði)

Fór á aaall svaaaaaaðalegt rokk í gær kunningi, þetta var stanslaus nautnafans félagi get ég sagt þér kallinn. Hitti fólk á bar í gær, hápunktarnir voru sennilega tvær manneskjur. Annars vegar hann Wijnand, sem bar nafn með rentu og kláraði níu Duvel bjóra (en það eru einmitt afskaplega sterkir bjórar) það kvöldið til að manna sig upp í að deitið hans kæmi. Nú svo kom deitið og allt gekk eins og í sögu og nú er hann Wijnand kallinn sennilegast staddur í lostatransi með skíðakennaradeitinu sínu einhversstaðar í Amsterdam. Gott hjá honum. Hins vegar var það kona nokkur sem tók af allan vafa um að hún væri ekki söngkona á fyrstu tíu sekúndunum, þegar hún hló einum svakalegasta sópranhlátri sem ég hef heyrt. Og svo hélt hún áfram að hlæja allt kvöldið, og kurraði eins og dúfa þess á milli. Sorrí, ég bara meika ekki svona hlátur. Það er eitthvað rotið við þetta. Plúsinn við kvöldið var að ég uppgötvaði frábæran viskíbar rétt hjá Leidseplein og hábölvaði sjálfum mér fyrir að hafa ekki vitað af honum fyrr.

ps. er eðlilegt að Hollendingur sendi manni sms sem byrjar á "dude" án þess að vera kaldhæðinn?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home