miðvikudagur, febrúar 4

kraftaverkabolurinn

Hann Jón bróðir minn gaf mér bol með stillimynd RÚV í ammælisgjöf. Ég fór í hann í dag og ég hef aldrei fengið jafn mörg komment um nokkra flík sem ég hefi íklæðst en þessa. Öllum fannst þetta vera ógeðslega frábær hugmynd. Með hverju kommenti sem ég fékk smitaðist frábærleikinn yfir á mig, og núna, í lok dags, er það ekki bolurinn sem er frábær, heldur ég. Aaah hvað ég er frábær, ég. Best að fara út á götu og spjalla við alla nágrannana mína sem ég þekki ekki og breyta deginum þeirra í frábæran dag og síðan gefa öllum sem vilja ókeypis súpu og fara síðan og kenna öllum börnunum að smíða flugdreka, skreppa inn í nokkrar íbúðir og leysa hjónaerjur með frábærri útgeislun minni og kenna George Bush að hekla og dúlla, svo hann fái hekliæði og verði að segja af sér sökum tímaskorts.

ummm...þessi romsa gerir nú eiginlega fátt annað en að gera manni ljóst hvað maður geri lítið fyrir annað fólk svona dagligdags. Úps. Ööö...ég lofa að gera góðverk á morgun..heh...umm...hei! Simpsons!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home