mánudagur, febrúar 23

hjer kommer ræða.

Til hamingju með bolludaginn! Bollabollabollabolla. Fór í bollukaffi áðan til Valda og Fjólu, þar var margt góðra Íslendinga, svosem Gunnhildur hörpuleikari, Melkorka flaut, Finnur Hákonarson hljóðmaður ásamt spúsu sinni, henni Tótu. Einnig var viðstödd Ásta Indía Valdimarsdóttir, sem var í mjallhvítarkjól. Ekki má heldur gleyma germanska píanóleikaranum Franz, sem var þar staddur fyrir helbera tilviljun og fann sig skyndilega í samræðum um íslenskt lyftiduft og bakpulver með munninn fullan af bollum. Föstudagurinn var eitt stórt crescendo, sem gerði það að verkum að laugardagurinn var hálfpartinn dolce hjá kallinum, með dasj af tremolo og lúku af doritos. Í gær kom svo í heimsókn til mín Þjóðverji sem fékk lánaða tuttugu og sex diska í þeim tilgangi að brenna þá til einkanota. Hann er ljósritunar-og brennsluóður, ég held að hann sé búinn að kópera hálft bókasafnið. Greyið. Ætli hann hlusti á eitthvað oftar en einu sinni? Og svo var Mummi að segja mér að hann geti komið og heilsað upp á oss þegar vér spilum á Spáni í vor! Vei!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home