Eftirfarandi er lysing mín á deginum í dag, ef einhver skyldi hafa áhuga á tví ad vita hvernig venjulegur dagur er hjá mér. Èg mun tileinka mér afar turran og leidinlegan stíl. Èg mun einnig vara vid tessum turra og leidinlega stíl í einni setningu í innganginum (altso undangenginni setningu), tannig ad You Have Been Warned.
Já, vidburdaríkur dagur í dag. Fyrst rennsli med samspili kl.10:30, gekk frábærlega (bandid hefur aldrei sándad eins vel). Sídan tónleikar í hádeginu (12:15). Gekk frekar brösulega og ég var ekki alveg sáttur. Fólk var samt ánægt med tetta, tannig ad brösuleikinn gæti alveg eins verid falinn í hugarfari mínu á tónleikunum sjálfum. Altso ég veit hvernig ég skynjadi tónleikana, en ræd engu um hvernig adrir skynja tá. En fólk virtist vera bara mjög ánægt (einn sagdi meirasejja "vá!" vid mig...noh...bara svona...), tannig ad tetta gekk áreidanlega vel. Kl. 13:00 var sídan tími í stjórnun (hvernig madur á ad dansa ástrídufullan freestyledans fyrir framan bigband til ad fá fólk í gang) og sídan tridja skipti dagsins tegar samspilid hittist. Ad tessu sinni var tad vikuleg æfing samspilsins (15:00). Tad var fínt, tad er loksins ad koma hópkennd í tetta samspil eftir fimm mánada tilvist. Sídan var ég í pásu í 1,5 klst. og fór á bókasafnid og tók ad láni bók med trompetetydum eftir Bozza, sem er gaur sem var uppi í kringum 1920-30, ad mér skilst. Tad verdur spennandi ad sjá hvernig tetta er, af tví ad ég hef verid ad spá í einhverju svona til ad blanda inn í tónleika. Eda gera eitthvad vid. Eda eitthvad. Allavega tékka á tessu. Sídan var fyrsta æfing freeform samspilsins klukkan 18:15. Tad var rosalega gaman, kennarinn er gamall afalegur kall sem veit ógedslega mikid um tónlist. Hann er jafnframt mikill krakki í sér, sem gerir hann samstundis rosalegan gaur. Hann er líka gamall vinur hans Edwards Fredriksens. Vid spiludum sumsé frítt impróviserada tónlist og töludum sídan um tónlistina inn á milli. Tad var gaman. Tetta verdur skemmtilegt samspil. Tad er ekki svo oft sem madur spilar svona algjörlega frítt, og tad er verdmætt ad fá ad kynnast tví og jafnframt fá ad tala um tad vid gamlan magnadan kall. Og nú er klukkan 20:27 og ég ætla ad fara heim ad fá mér eitthvad ad borda og sídan chilla bara á pakkanum tad sem eftir lifir kvelds. Tad sem er kannski óvenjulegt vid tennan dag er ad ég fékk engan eiginlegan tíma til ad æfa mig sjálfur. En tad getur verid gott af og til ad sleppa tví, svona til ad fordast mónótón lifestyle. Checkit!
Èg verd víst ad bæta tví vid ad ymsum lífedlisfrædilegum fyrirbærum hefur verid sleppt úr tessari frásögn, svo sem tvaglosun, næringarinntaka og ljóstillífun sjálfs míns. Gjörid svo vel ad afsaka mig.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home