já hahahahaa...ég fór á tónleika í gær og hitti fyrir hann Erik Qvik trommara sem er ad kenna á Ìslandi í vetur. Hann sagdi allt gott ad frétta ad heiman. Jáhahahahahaha. Hann kynnti mig líka fyrir tveimur gaurum, gítar og basgaurum sem voru einmitt fyrstu Svíarnir sem ég hef hitt sem vita eitthvad um og halda uppá Chris Speed og Black og Tim Berne og svo framnesvegis. Tad var skyndileg spenna í loftinu og vid ákvádum ad vid tyrftum nú endilega ad hittast og spila á næstunni. Svo vid skiptumst á símanúmerum eins og elskendur í fyrsta sinn. Hahaha.
Èg keypti Stephen Malkmus plötuna í gær. Èg er sko ordinn indie núna. Èg reiknadi út ad tessi plata kostadi ekki nema 1283 krónur. Hverjum hefdi dottid í hug ad árid 2001 madur gæti ordid indie fyrir adeins 1283 krónur? Ekki mér, svo mikid er víst. Èg er líka farinn ad spila á trommur frá med deginum í dag. Ì dag tókst mér ad spila trommubreikid sem er í tridja taktinum í vidlaginu í Bullet with bötterflæ wings (tempo = andante dolce maradonna). Èg hef komist ad tví ad trommuleikur felst í tví ad nota sem minnsta orku hverju sinni, til dæmis med ad bada ekki út öngunum í trommubreikinu í tridja taktinum í vidlaginu í Bullet with bötterflæ wíngs. Betra er ad halda höndum sínum ad sér. Held ég. Èg líktist allavega meira Gulla Briem tegar ég hélt handahreyfingum í fagmannlegu lágmarki.
Jæja, ég er farinn í afmæli. Gódar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home